Heimili og skóli - 01.02.1960, Blaðsíða 25
HEIMILI OG SKÓLI
19
Magnús Pétursson, kennari, sjötugur
Þann 26. febrúar s.l., varð Magnús
Pétursson, kennari við Barnaskóla
Akureyrar, sjötugur, og er þó ekki á
honum að sjá, að hann hafi náð þeim
aldri. Hárið er að vísu orðið hvítt, en
enn hleypur hann við fót jafnvel upp
kirkjutröppurnar og upp alla Syðri
brekkuna á Akureyri, því að þar á
hann heima.
Þegar Magnús varð fimmtugur,
skrifaði ég um hann greinarkorn í
þetta rit og rakti þar ætt hans og upp-
runa, svo og nokkur æviatriði hans,
og verður því að mestu sleppt hér. —
Ævi Magnúsar hefur verið skemmti-
legt ævintýri, eins og ævi margra
þeirra fátæku og umkomulitlu sveita-
pilta, sem voru að alast upp um síð-
ustu aldamót. Þrátt fyrir fátækt, aflaði
hann sér furðu haldgóðrar menntun-
ar og valdi sér ævistarf. Sú menntun
hefði þó hrokkið skammt, ef hann
hefði ekki búið yfir óvpnjulega mikl-
þættir í lífi þess ungs. í brjósti barns
búa hlið við hlið verndarþörf og sjálf-
stæðishvöt. Róleg ást foreldra er þess
ein umkomin að vekja barninu þá ör-
yggiskennd, sem það þráir, og að
veita vaxandi vilja þess nauðsynlegt
svigrúm til athafna og sjálfstæðis.
Ég stóðst ekki þá freistingu að taka
þennan stutta kafla úr grein prófess-
orsins, og þá meðal annars í því
trausti að lesendur Heimilis og skóla
vilji fá meira að heyra og kaupi bók-
ina. — Ritstj.
um mannkostum, sem gerðu nám hans
á Hvítárbakka og ýmsum námskeið-
um, að haldgóðu veganesti í vanda-
sömu ævistarfi.
Magnús valdi sér kennarastarfið, og
Magnús Péturssun kennari.
þá sérstaklega tvær greinar þess: fim-
leika og handavinnu drengja. Hann
var íþróttamaður ágætur fram eftir
öllum aldri. Hafði fimleikaflokka,
auk þess sem hann kenndi í barna-
skólanum. Og þar var nú líf í tuskun-
um. En það, sem hefur gert Magnús
að úrvalskennara er þó ekki fyrst og
fremst kunnátta hans, þótt ágæt væri,
heldur skaplyndi hans. Sumir halda,
að það þurfi einhverja óvenjulega
hörku til að stjórna börnum og ungl-
ingum. En ljúfmennska og glaðværð
Magnúsar reyndist þar giftudrýgri.