Heimili og skóli - 01.02.1960, Side 10

Heimili og skóli - 01.02.1960, Side 10
4 HEIMILI OG SRÓLI minnst úr námsmöguleikum barnsins. Frá lestrarbekkjunum mun þó mikið horfið nú á allra seinustu árum. Hin aðferðin, sérkennsla eins eða þriggja til fjögurra barna, þykir gefa góða raun og hefur verið tekin upp með skipulegum hætti sem fastur lið- ur í lestrarkennslunni mjög víða og þó sérstaklega í Svíþjóð. Þótt mörg skilyrði skorti enn við íslenzka skóla til þess að rækja sérkennslu í lestri með fullum árangri, tel ég sjálfsagt að reyna nú þegar að byrja þessa starf- serni, þótt í smáum stíl verði. Styrkja ætti kennara til sérnáms um eins til tveggja ára skeið, jafnvel stutt nám- skeið að haustinu ,sem stundum eru haldin á Norðurlöndum, eru til stór- bóta. Eina viðunandi lausnin er þó sú, að Kennaraskóli íslands taki að sér að veita kennurum nægilega kunn- áttu til að annast sómasamlega kennslu afbrigðilegra barna og barna með lestrarörðugleika. Viðurkennt er, að almennur greind- arþroski er meginskilyrði árangurs við lestrarnámið. Flestum börnum, senr eru verulega á eftir sínum meðal- aldri um almennan þroska, sækist því lestrarnámið eðlilega seinna en með- alþroskuðuni börnum eða betur. I>\ í er heldur ekki rétt að tala um eigin- lega lestrarörðugleika, nema hjá Itarni, er hefur náð mun lakari lestr- arleikni en meðallag þeirra barna, sem sambærileg eru að almennum greindar- og félagsþroska. Af þessu leiðir, að sérkennsla í lestri krefst sérfræðilegrar rannsóknar á barninu, ef vel á að vera, greindar- þroska þess, geðheilsu, skólalíðan, heimili og aðstöðu yfirleitt, auk ræki- Jónas Pálsson s/ilfraðingur. legrar athugunar á lestri barnsins. Nii mun það víst svo, að sérfræðinga til slíkrar rannsóknar skortir við flesta skóla. Einnig vantar sárlega ,,diagnos- tis“-lestrarpróf til að kanna á hnitmið- aðan hátt veilurnar í lestri barnsins og reyna kerfisbundið á hina ýmsu þætti lestrarleikninnar. Hvorugu verður víst bætt úr í bráð ,býst ég við. Engu að síður tel ég sjálfsagt, að skólastjórar, minnsta kosti í hinum stærri skólum, reyni nú þegar að koma á skipulegri sérkennslu í lestri. Mér er ljóst, að einstök börn hafa jafnan fengið aukatilsögn í lestri, kennarar stundum lagt slíkt á sig greiðslulaust og að eigin frumkvæði. eða þá að foreldrar hafa séð að í óefni var komið. Hér er hins vegar um að

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.