Heimili og skóli - 01.02.1960, Síða 20

Heimili og skóli - 01.02.1960, Síða 20
14 HEIMILI OG SKÓLI ekki upphátt. Tunglið náði toppi píl- viðarins — það komst fram hjá hon- um, og ég var alltaf jafn þögull. „Kalt í kvöld,“ sagði pabbi loksins. „Haustið er komið í loftið. Það verð- ur svalt í fyrramálið." „Já, það er sennilegt,“ svaraði ég. Svo spjölluðum við litla stund um einhverja smámuni þangað til við gengum inn og háttuðum. Það var að kvöldi liins fimmta dags. — Við ætluðum að halda heim eftir tvo daga. Þagnirnar í samræðum okk- ar pabba urðu alltaf lengri og lengri. Ég hafði gefið upp alla von um að geta skýrt honum frá tilfinningum mínum gagnvart honum, og ég sagði við sjálfan mig: að þetta hefði líklega verið heimskuleg hugsun og til orðin af einhverri tilfinningasemi. En jafn- framt hafði mér orðið það ljóst, að ég hafði vanrækt son minn. Hann hafði ekki kunnað sérlega vel við sig hér á bernskuheimili mínu. Allt í einu langaði mig til að sýna honum, að gamla húsið okkar væri ekki aðeins gamalt draugahús, þar sem ég hafði lifað öll mín bernskuár. Það var dimmt og kalt, þegar vekj- araklukkan hringdi kl. 4 næsta morg- un. Ég skalf af kulda, þegar ég lædd- ist inn í gamla barnaherbergið mitt, þar sem Jón svaf. Ég ætlaði að kveikja á arninum. Þurrir furuviðarbútarnir loguðu vel. Snarkið á arninum var þægilegt, og logarnir köstuðu hlýleg- um bjarma um herbergið, þegar ég vakti Jón. „Á fætur með þig, gamli minn,“ sagði ég. „Við erum að fara á veiðar, þú og ég.“ Þegar Jón hoppaði út úr rúminu, vissi ég, að þetta var að hans skapi. „Nú skulum við tveir vera sval- ir karlar í dag,“ sagði ég glaðlega. Ég steikti pylsurnar yfir logunum, og þrátt fyrir góðan vilja, brunnu þær talsvert og eggin urðu alltof brún. En þegar ég sneri mér við og sá pabba standa í dyrunum í náttfötunum sín- um, var ég ekki í nokkrum vafa um, að honum hafði smátt og smátt orðið það ljóst af því sem hann heyrði þarna, að hér var skemmtileg og hugþekk saga að endurtaka sig, yndis- leg saga frá gömlum dögum. í fyrstu voru augu hans spyrjandi, síðan samþykkjandi. Eitt einasta augnatillit sagði honum allt: Að ég af djúpri þakklætiskennd var að reyna að gera hið sama fyrir son minn sem hann hafði gert fyrir mig. Honum hlaut að vera það Ijóst, að ég var að reyna að skapa syni mínum þann æv- intýraheim, sem hann hafði búið mér í bernsku minni. Og ég veit líka, að honum varð það nú ennig Ijóst, að þetta, sem nú var að gerast, var ekki neitt einangrað fyrirbrigði fyrir mig og Jón, iheldur löng, löng dagaröð, sem við áttum eftir að lifa í trúnaði og góðum félagsskap. Til þess að leyna geðshræringu sinni, sagði hann ásakandi: „Hvað eruð þið eiginlega að gera hér um miðja nótt? Og hvers vegna hefur þú aldrei lært að steikja egg?“ En af því augnaráði, sem hann sendi okkur Jóni, er við lögðum af stað með gamla veiðitösku út í nótt- ina, vissi ég að hann skildi — skildi allt það, sem ég hafði ekki getað sagt honum.

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.