Heimili og skóli - 01.02.1960, Qupperneq 23

Heimili og skóli - 01.02.1960, Qupperneq 23
HEIMILI C)G SKOLI 17 þarfnast það sálaryls og ástarhóta. Lengi fram eftir aldri er umhverfi barnsins torskilið og dularfullt. Það vekur því geig og ótta, lamandi kenndir, sem há þroskanum, ef þær verða sterkar og haldast til lengdar. Móðurástin aftur á móti vekur barn- inu öryggiskennd og glæðir ást í brjósti þess sjálfs. Af þeirri rót vex heilbrigt tilfinningalíf og sálrænt jafnvægi barnsins. Barn, sem svipt er móðurást, annað hvort vegna ástleysis móður eða fyrir erfiðar ytri ástæður, býr við miklu lakari skilyrði til al- hliða þroska. Geigur og vanlíðunar- kennd setjast að því og draga úr and- legum, siðferðilegum og jafnvel lík- amlegum þroska þess. Af þessum si)k- um er barni, sem fer á ntis við móður- ást, hættara við geðtruflunum og sið- gæðisbrestum en barni, sem hefur not- ið ástríkis og rólegrar umhyggju frá fæðingu. í stað hins hlýja verndar- hjúps, sem umlukti fóstrið, þarfnast barnið óbrigðuls ástríkis, sem vekur því sjálfu ást, samúð og traust. I órofa ástartengslum við foreldra sína öðlast barnið alhliða tilfinninga- þroska. Ef slík tengsl myndast ekki, eða rofna of snemma, er mjög hætt við að eðlilegt jafnvægi tilfinninga- h'fsins raskist. Ásthneigð til móður er samrunnin eðli barnsins, það getur ekki annað en elskað hana og þráð ást hennar. En el því linnist ást móður- innar bregðast, reynir það á ýmsan hátt að knýja hana fram. Eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir tekur barnið að dylja og bæla þrá sína. Við þetta gerbreytist barnið. Framkoma þess einkennist af tilfinningasljóleika og kæruleysi, þó að logand þrá brenni því í brjósti. Af þessum sökum verða börn, sent alast upp við ástleysi for- eldra, oft vansæl oa; erfið í daglegri hegðun. Hin bælda þrá myndar geð- flækju eða duld, sem grefur um sig í sálarlífi barnsins og getur leitt til taugaveiklunar og geðtruflunar. Um það er f jallað síðar í þessari bók. Því meir sem eðlilegt jafnvægi til- finningalífsins raskast því erfiðara verður uppeldi barnsins. Erfiðleik- arnir eru margbreytilegir eftir aldri barnsins og ytri aðstæðum. Þeir byrja venjulega á því, að trúnaður rofnar milli barns og foreldra, fyrr en þroski barnsins leyfir. Hins vegar sleppir for- eldrið barninu þó ekki með öllu und- an eftirliti og ögun. Afleiðingin verð- ur sú, að barnið beygir sig fremur fyr- ir valdi og myndugleika foreldrisins en að það lúti því af ást og skilningi. Af þessu hugarfari vex mótþrói með barninu, sem getur brotist út í ofsa og jafnvel óleyfilegum verknaði. Barnið kappkostar þá að brjótast undan handleiðslu o» ögunarvaldi foreldris- ins. Þess vegna er börnum, sem hafa farið á mis við ást og rólega um- hyggju foreldranna, hættara en öðr- um við að leiðast út í misferli. E. t. v. er það dulvituð hefnd. Afbrýði og ofurást. Oft er foreldra- ást misskipt milli barnanna, svo að systkini njóta ekki öll sama atlætis. Þetta á sér ýmsar orsakir og verða þær ekki raktar til hlítar hér. Ein hin alvarlegasta er sú, að móðurinni hafi vaknað andúð á barninu úm leið og hún vænti þess, t. d. að henni hafi fundizt barnið valda sér hneisu (óskil- geitð barn), skerða frjálsræði sitt, íþyngja sér efnahagslega. Barnið verð-

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.