Heimili og skóli - 01.02.1962, Blaðsíða 10

Heimili og skóli - 01.02.1962, Blaðsíða 10
9 HEIMILI OG SKÓLI HELGI ELÍASSON, fræðslumálastjóri: VELVAKANDl Þegar litið er yfir feril tímaritsins Heimili og skóli, frá því að það hóf göngu sína fyrir 20 árum, er augljóst, að þar hefur verið unnið trúlega á þeim grundvelli, sem útgefendur þess sögðu í byrjun, þ. e. að vera tengilið- ur rnilli lieimila og skóla og flytja les- endunr sínum fjölbreyttan fróðleik — bæði innlendan og erlendan — um flytja ritinu og ritstjóra þess hugheilar ámaðaróskir á þessum tímamótum og þakka því góðan skerf þess til íslenzkra uppeldis- og skólamála, í von um, að það í framtíðinni megi stuðla sem bezt að því að heimili og skóli geri íslenzka æsku sem hæfasta til þess að ávaxta pund sitt sem ríkulegast. uppeldis- og skólamál. Ritið hefur verið vel vakandi á þessu sviði. Fyrir tveim áratugum var ekki nema eitt tímarit, senr fyrst og fremst var helgað skóla- og uppeldismálum, en það var tímaritið Menntamál. Sam- band íslenzkra barnakennara gaf það út, og fjallaði ritið einkum um hags- munamál kennarastéttarinnar, mennt- un kennara og aðstöðu tif kennslu- starfa. Það var því fyllilega tímabært að gerð væri tilrauu með annað tíma- rit, sem fjallaði að mestu leyti um þá þætti uppeldismálanna, er einkum varða heimilin og samskipti þeirra við skólana. Það voru duglegir og áhugasamir menn, í kennarafélagi Eyjafjarðar, sem hófu útgáfu tímaritsins Heimili og skóli, menn, sem höfðu trú á góðu málefni og vildu fórna tíma og kröft- um í þágu þess. Hér hafa margir lagt hönd á plóginn, en þó mun enginn hafa lagt eins rnikið af mörkum til ritsins af efni og vinnu og ritstjórinn, Hannes J. Magnússon, skólastjóri á Akureyri, sem verið hefur ritstjóri tímaritsins frá upphafi. Um leið og ég þakka Heimili og skóla fyrir hið mikilvæga framlag, sem forsjármenn þess hafa nú í 2 áratugi lagt til aukins skilnings á gildi sam- starfs þeirra aðila, sem annast eiga uppeldi og fræðslu bama á landi hér, er það ósk mín, að ritið megi á kom- andi árum halda áfram að vera sá vett-

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.