Heimili og skóli - 01.02.1962, Page 11

Heimili og skóli - 01.02.1962, Page 11
HEIMILI OG SKÓLI 3 SIGURJÓN BJÖRNSSON: Heimili og skóla er það ánægjuefni að geta tilkynnt lesendum sínum nú á 20 ára afmæli ritsins, að Sigurjón Björnsson sálfræðingur hefur tekið að sér að rita greinaflokk fyrir ritið um ýmis efni, sem birtast mun í næstu heftum. Sigurjón er einn af hinum yngri sálfræðingum, hámenntaður og víðsýnn. Hann er nú forstöðumaður sálfræðideildar Heilsu- verndarstöðvar Reykjavíkur. — Ritslj. Mannfólkinu má líkja við tré í skógi. Sum eru þar bein og hávaxin með fagurt laufskrúð, önnur lágvaxin. Mörg eru kræklótt, visin með kalsár- um. . . . Þannig er mannfólkið. En góður skógræktarmaður leitast við að hiú að gróðri sínum og skapa öllum trjám sem bezt vaxtarskilyrði. Hann færir ungar plöntur úr stað, sé of þröngt um þær, dimmt eða kalt. Hann grisjar skóg sinn og heggur burt fúna kvisti. Hann rannsakar jarðveginn og sé hann ófrjór, gefur liann áburð. Líkingin með mannfólki og skógi, uppeldisstarfi og skógrækt er ekki ný. Margir hafa notað hana í ræðu og riti. Og eitt munu flestir ræðumenn og rit- arar vera sammála urn: skógur mann- vangur, þar sem skólamenn og forsjár- menn bama geta rætt og ritað um vandamál sín og hugðarefni, til hag- ræðis og þekkingarauka þeim, er lesa ritið og öðrum, sem hlut eiga að máli. lífsins er furðulega vanræktur. Annað vekur og furðu: menn eru undarlega sljóir fyrir nauðsyn þess að rækta mannlífið. Þó eru kræklóttu trén og kalviðirnir fleiri en auga verði á kom- ið. Hvarvetna blasa við „meinleg ör- lög“, óhamingja og vansæld. Engu er líkara en fjöldinn allur haldi, að þetta sé óumflýjanlegt mannlegt ldutskipti og hljóti að verða svona. Oft er um það rætt, að íslenzka þjóðin sé of fámenn. Og ekki er mér grunlaust um, nema stundum kunni að bera á einhverri vanmetakennd hjá okkur vegna mannfæðar. Hér er mikill misskilningur á ferðinni. Mannfjölg- un er því aðeins góð, að hver ein- staklingur sé heilbrigður og fái notið sín. Það er hrapallega rangt að leggja stærðarmat á þjóð. Hún verður ein- ungis metin eftir gildi sínu, manngildi sínu og það stendur ekki ávallt í réttu hlutfalli við höfðatölu. Manngildi get- ur jafnvel staðið í öfugum hlutföllum við mannfjölgun, — hið síðarnefnda kann að verða á kostnað hins fyrra. Mannrœkt

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.