Heimili og skóli - 01.02.1962, Page 14

Heimili og skóli - 01.02.1962, Page 14
6 HEIMILI OG SKÓLI sér ákveðnar uppeldisreglur, í sam- ræmi við þá manngerð, sem hann vildi skapa, og fylgja þeim fast eftir. Sál- fræðingar þessarar stefnu fylltu for- eldra með reglum og ráðleggingum. Allmjög hefur þetta breytzt á síð- ustu árum. Vissulega eru góðar og vandaðar mælingar og vel gefin ráð alltaf góðra gjalda verð. En það er ekki nóg. Nú er til þess ætlazt af sál- fræðingum, að þeir séu reiðubúnir að skilja einn og annan geðrænan vanda, sem steðjar að einstaklingum, fjöl- skyldum og stærri liópum. Og þegar tíðarandinn hefur þannig snúizt um hálfan hring, taka sálfræðingar að dusta rykið af gamalli speki, sem af- lögð hafði verið á dögum raunvísind- anna. Og það er furðulegt, hvað kom- ið getur í leitimar. Nú rifjast t. d. upp fyrir mönnum, að það er ekki verri latína en áður fyrr, að gefa sér góðan tíma til að hlusta á aðra, reyna að setja sig í spor annarra og skilja að- stæður þeirra sem hleypidómalausast. Enda þótt þær hugsanir, sem ég hef sett hér fram, séu æði brotakenndar og stuttaralegar, ætti lesandanum samt engu síður að verða nokkuð ljóst, hvaða stefnu ég aðhyllist í uppeldis- málum. í næstu heftum af Heimili og skóla munu birtast nokkrir smáþættir um uppeldismál. Verða þar rædd ýmis at- riði, sem mér virðist að einna mestu máli muni skipta í sambandi við fjöl- skyldumál og uppeldi barna. Reynt verður að leggja áðurnefnd sjónarmið til grundvallar því, sem þar verður sagt. ÚR BRÉFI „. . . . Ég kom því ekki í verk að senda Heimili og skóla greinarkorn að þessu sinni, en vil þó ekki láta hjá líða að þakka ykkur, sem hafið borið hita og þunga af útgáfu ritsins í 20 ár. Á meðan ég átti heima á Eskifirði studdi ég Heimili og skóla örlítið með því að vinna að útbreiðslu þess. Síðan hef ég ekki, því miður, veitt ritinu það ] ið, sem vert væri, en það stafar ekki af því, að ég viðurkenni ekki tilgang þess og þjónustu. Heimili og skóli er þarfur tengilið- ur á milli foreldra og kennara, heimila og skóla, og hlýtur að stuðla að gagn- kvæmum skilningi. Ritið hefur á liðn- um árum flutt margar merkar greinar um skóla- og uppeldismál og þarfar hugvekjur til kennara og foreldra. í orðsendingu Heimilis og skóla vegna afmælisins, er látinn í ljós efi um, að ritið eigi sér vini. Ekki trúi ég öðru en vinir þess fyrirfinnist margir, en hitt er sennilegra, að þeir gleymi að sýna það í verki sem skyldi og er það miður. Tómlæti um góð málefni hef- ur löngum verið þeim fjötur um fót. Kennurum og foreldrum ber að þakka Heimili og skóla veitt lið í þágu skóla- og uppeldismála á liðnum árum. Það er ósk mín til afmælisbamsins, að það eigi langan aldur fyrir höndum og vökula baráttu fyrir betri uppeldis- háttum og mikilli samvinnu heimila og skóla. Þökk fyrir liðin ár. Reykjavík 4. janúar 1962. Skúli Þorsteinsson.

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.