Heimili og skóli - 01.02.1962, Side 18

Heimili og skóli - 01.02.1962, Side 18
10 HEIMILI OG SKÓLI Fimmtugur: • • Orn Snorrason kennari Það er stórt orð fimmtugur, og ég trúi því \arla, að Örn Snorrason hafi náð þeim aldri, þessi síglaði og glettni húmoristi, sem getur með einni setn- ingu komið hvaða drumb sem er í gott skap. Og þó, ef það er rétt, og það er víst alveg rétt, að Örn sé fæddur 31. janúar árið 1912, þá hlýtur hann að vera fimmtugur. Örn er fæddur á Flat- eyri við Önundarfjörð og ólst þar upp með foreldrum sínum, Snorra Sigfús- syni skólastjóra og konu hans Guð- rúnu Jóhannesdóttur. Hann stundaði nám í Menntaskólanum á Akureyri og tók þaðan stúdentspróf vorið 1933. Að því loknu innritaðist hann í Háskól- ann, lauk þaðan heimspekiprófi og sat einn vetur í guðfræðideildinni. En þá settist hann í Kennaraskólann og tók kennarapróf vorið 1936. 1937 fékk hann kennarastöðu við Barnaskóla Ak- ureyrar og kenndi þar í 22 ár. En haustið 1960 fékk hann stöðu við Gagnfræðaskóla Akureyrar. Það er hverjum skóla happ að njóta starfs- krafta Arnar, því að svo marga og góða kennarakosti hefur hann, og kemur þar bæði til menntun hans, skaplyndi, fjölhæfni og persónuleg hlýja í garð nemendanna, svo að hann laðaði öll börn að sér, enda hafði hann jafnan ágætan aga, sem hann þurfti ekkert fyr- ir að hafa. SvoV'ildi til að kennslustofa hans var uppi yfir skrifstofu skóla- stjóra. Stundum gat það komið fyrir að allt ætlaði um koll að keyra í stofu Arnar. Þá var hann kannski í skolla- blindu við krakkana, en eftir fimm

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.