Heimili og skóli - 01.02.1962, Page 22

Heimili og skóli - 01.02.1962, Page 22
14 HEIMILI OG SKÓLI arnir sleppt af henni verndarhendi sinni of snemma. Mikið er nú rætt um svall og óhæfi- lega framkomu unga fólksins á svo- kölluðum „skemmtisamkomum“, þar sem ölóðr unglingar sleppa sér. Þetta er eitt af okkar miklu vandamálum, og þetta sama vandamál eiga nágranna- þjóðir okkar við að stríða. Til þessa liggja margar ástæður, svo sem slæmt fordæmi fullorðna fólksins, ekki sízt hins svokallaða menntafólks, og aga- leysið í þjóðfélaginu. Vandfarið er með tómstundir fyrir unglinga, sem hafa mikil peningaráð. Peningar í höndum óvita eru skaðlegir. Óþrosk- aðir unglingar vita, að hægt er að kaupa hættulegar nautnir fyrir pen- inga. Utivera húsmæðra í bæjum ger- ir heimilin að lélegri uppeldisstofnun- um en áðttr var, þegar húsmóðirin sinnti heimilinu eingöngu. Og ungl- ingar fá of snemma að sækja almennar „skemmtisamkomur", þar sem svall og ósiðleg framkoma viðgengst. Hvorki skólar né kirkja eru nógu sterkar stofnanir til að vinna á móti þessu, þó að þau sýni fyllsta vilja í þá átt. Múg- sefjunin ræður meiru í okkar þjóðfé- lagi en aðvörunarorð þeirra, sem vilja unglingunum það bezta. Mín skoðun er sú, að unglingar inn- an 16 ára eigi ekki að fá að sækja al- mennar svallsamkomur, en láta sér nægja skennntana- og félagslíf skólanna og ýmsra æskulýðsfélaga. Unglingar eiga einnig að vera sem lengst undir vernd heimilanna. En mörg heimili senda börn sín frá sér fyrir þann tíma t. d. í atvinnu, jafnvel þó að hægt sé að fá atvinnu fyrir þau heima fyrir. Þá nota unglingarnir sér frjálsræðið á þessu viðkæma skeiði og sleppa sér. Ég hef grun um, að stundum séu ungling- arnir sendir í atvinnu fjarri heimilum sínurn af misskildum peningasjónar- miðum. Það er nefnilega ekki neitt æskilegt, að unglingar hafi mikla pen- inga handa á milli til að sóa á meira eða minni gagnslausan hátt, í áfengis- kaup og lélegar svallsamkomur. Það er betra að hafa minna heima og vera í skjóli heimilisins. Með öðrum orðum, ég álít að unglingar fari of snemma að heiman undan nauðsynlegum heimilis- aga. Heimilin ræki ekki uppeldis- skylduna af nógu mikilli alvöru. Við fullorðna fólkið teljum, að heil- brigð æska eigi að leita þroska í íþrótt- um, útiveru og fræðslu góðra bóka og í því að skapa eitthvað sjálf. Mikils er um vert, að æskan temji sér hófsemi og bindindi, því að freistingamar eru margar. En á skautasvellinu, í skíða- brekkunni eða á íþróttavellinum eflast Iteztu eiginleikar liinnar vaxandi æsku. Þar er hollara að vera en í tóbaks- svælu samkomuhúsanna. Þar þjálfar hún líkama sinn, gerir hann þolinn og stæltan, sem hann þarf að vera í okkar harðbýla, norðlæga landi. Þar er stefnt að því að skapa heilbrigða sál í hraust- um líkama. Þjóðin öll hagar sér stundum eins og unglingur á gelgjuskeiði, þar sem frumstæðar tilfinningar og ástríður eru látnar ráða gjörðum manna. Hugsun og skynsemi kemst þar oft ekki að. Menn hlýða múgsefjuninni og fylgja hjörðinni hugsunarlaust. Þetta á ekki aðeins við um ungt fólk, heldur einnig fullorðið. Orsakir þessa er að finna í því, að þjóðin hefur tekið svo miklum breyt-

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.