Heimili og skóli - 01.02.1962, Side 23

Heimili og skóli - 01.02.1962, Side 23
HEIMILI OG SKÓLI 15 ingum síðustu tuttugu ár, að það minnir helzt á lýsinguna á umskipting- unum í gömlum þjóðsögum. Erlend áhrif með dægurlagagóli og lélegum kvikmyndum hafa heillað Jiana, og þó mest unga fólkið, sem ekki hefur náð að mótast af þjóðlegri menningu. Að vísu er reynt í skólum og kirkju að innræta unga fólkinu fornar dyggðir eins og trúrækni, þjóðrækni og skyldu- rækni. En kvikmyndastjörnurnar (þó ómerkilegar séu) og dægurlögin virð- ast hér áhrifameiri. Hér kemur múg- sefjunin til. En vonandi er þetta fyrir- brigði, sem líður lijá eftir ákveðinn tíma. IV. Ég hef í þessu greinarkorni drepið á nokkur atriði í uppeldismálum okk- ar. Ég hef einkum með því viljað und- irstrika þetta þrennt: 1. Mikilvægt er að liugsa vel um uppeldi barna fyrstu árin og skapa sem mestan frið um heimilið. 2. Keppa þarf að því að útvega stálpuðum börnum og unglingum lioll viðfangsefni í tómstundum sínum eft- ir áhuga og hugðarefnum þeirra. 3. Foreldrar skyldu varast að sleppa of snemma verndarhendi af börnum sínum á unglingsárunum, en tengja þau við heimilið sem lengst. Þó að ýmislegt fari aflaga í uppeldis- málum okkar, er þó ekki ástæða til uppgjafar og svartsýni, því að þjóðar- stofninn er hraustur og þjóðinni góðar gáfur gefnar. Við þurfum aðeins að vernda uppeldi æskunnar, og meta liana meira en fjárhagslega stundar- hagsmuni. Gylfi P. Gíslason menntamálaráðKerra . Skólinn á að stuðla að skiln- ingi á þeirri vegsemd og þeim vanda, sem því fylgir að vera maður. Hann á að gera nemendur sína hæfa til að vera frjálslyndir menn, menn, sem kunna að hagnýta frelsi til þroska og fram- fara, án þess að af ldjótist agaleysi og formleysi. Hann á að gera þá víðsýna, svo að þeim verði auðvelt að skynja og skilja breytingar og nýjungar, án þess að þeim gleymist gildi hins gamla. Hann á að gera þá vil jasterka, án þess að gera þá þvera og ofstopafulla. Hann á að gera þá góðviljaða, án þess að þeir verði veiklundaðir. Hann á að gera þá umburðarlynda, án þess að skyn þeirra á það, hvað er rétt og rangt, sljóvgist. Hann á að gera þá hæverska, án þess að þeir glati við það hispursleysi. Hann á að glæða með þeim heilbrigð- an áliuga á lífinu og dásemdum þess, án þess að gera þá skemmtanasjúka. Hann á að gera þá vinnufúsa og vinnuglaða, án þess að gera þá að strit- urum. Hann á að kenna þeim að meta gildi vináttunnar og göfg ástarinnar. En hann á líka að brýna fyrir þeim nauðsyn þess að vera sjálfum sér nóg- ur. Sá einn er sannur maður, sem kann að njóta hvors tveggja í jafn ríkum mæli, félagsskapar og einveru....“ Menntamál 1961. Kaupendur! — Gjörið svo vel að verzla við þá, sem auglýsa í Heimili og skóla.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.