Heimili og skóli - 01.02.1962, Blaðsíða 24

Heimili og skóli - 01.02.1962, Blaðsíða 24
16 HEIMILI OG SKÓLI GUÐJÓN JÓNSSON: Oréin eru til alls fyrst „Pabbi segir, að maður eigi ekki að spara peningana sína, heldur skemmta sér fyrir þá.“ Hann var 8 ára. Hann fór að ráðum föður síns og var nýbúinn að skemmta sér fyrir 150 krónur í Tívolí, þess vegna átti liann ekkert til þess að kaupa sparimerki fyrir á merkjasölu- degi skólans. Kannski erum við á sama máli og þessi faðir — finnst hann að minnsta kosti eiga sér nokkra afsökun: Sparifé hefur um langt skeið rýrnað svo ört, að vextirnir hafa ekki hrokkið til að halda kaupmætti upphaflegrar inn- stæðu. En ef við göngum út á þessa braut á annað borð, hvert lendum við þá? Við vitum, að það er óeðlilegt og óheil- brigt að sóa öllu jafnharðan, þjóðfélag, sem býr við slíkt til lengdar, fær ekki staðizt. Ef við samt göngum opnum augum til liðs við eyðilegginguna og boðum hinni vaxandi kynslóð: Spar- aðu ekki, því að þú átt á hættu, að það verði þér gagnslaust, — þá er skammt yfir í aðrar kenningar eins og: Gerðu engum greiða, því að þú átt á hættu, að þér verði ekki þakkað, — hirtu aldrei um sannleikann, ef lygin getur orðið þér til framdráttar. Ef við álítum þetta æskilega þróun, þá tökum við undir með þessum föð- ur. Og næsta kynslóð------ Hugsjónir krefjast ávallt áreynslu. Nei, við viljum þetta ekki. Við ósk- um þess öll, að börnum okkar famist betur en eldri kynslóðinni. Við vilj- um, að sannleikurinn verði í heiðri liafður, að þjóðir og einstaklingar hjálpi hver öðrum til sem mestrar far- sældar, — og við vitum, að eitt af grundvallaratriðum hagsældar hverrar þjóðar og hvers einstaklings er einmitt að skemmta sér fyrir aðeins hóflegan hluta peninga sinna, en verja sem mestum hluta þeirra á hagnýtari hátt, og m. a. spara eitthvað af þeim. Það er vissulega knýjandi nauðsyn, að verðrýrnun sparifjár verði stöðvuð. Nógu öflugt almenningsálit getur kom- ið því til vegar. En þetta mál liggur

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.