Heimili og skóli - 01.02.1962, Side 27

Heimili og skóli - 01.02.1962, Side 27
HEIMILI OG SKÓLI 19 FÉLAGARNIR Þegar við horfum á bekkjardeild í skóla, verður ekki annað séð, en að bekkurinn okkar sé ein heild sundur- leitra einstaklinga, en ef við horfum dýpra, athugum t. d. börnin, þegar þau hverfa frá skólanum, eða ef við ættum þess kost að fylgja þeim heim, eða sæjum þau að leik seinna um dag- inn, myndum við verða þess vör, að bekkurinn okkar leysist gjörsamlega sundur, og þó eru þar oft tvö og tvö börn, sem halda mjög fast saman, eink- um teipurnar. Drengirnir eru síður við eina fjölina felldir, og skipta oftar um leikfélaga en telpurnar, sem lialda tryggðum hvor við aðra svo árum skiptir. Nálega hvert barn í bekknum á sinn félaga, stundum fleiri en einn, en venjulega þó aðeins einn verulega góð- an vin. Vinátta þeirra getur staðið í mörg ár. Þessi félagsþörf er svo rík hjá börnunum, að hún gengur næst klæð- um og fæði. Það má segja, að þegar bekkur kemur í skóla, þá sé barizt um félaga fyrstu dagana og vikurnar, en þeir, sem útundan verða í þessari sam- keppni verða óhamingjusömu börnin. Það er þó ekki útilokað að þeir geti eignazt félaga úr öðrum bekkjum, en það er þó alltaf hálfgert neyðarúrræði. Sumum tekst það heldur ‘ekki. Þau börn eru í alvarlegri hættu. Þetta er svo merkilegt atriði í skóla- lífinu og í einkalífi barnanna, að það er full þörf á að kennarinn reyni að gera sér grein fyrir þessu fyrirbrigði. Gengi barnsins í skólanum stendur í ingu verða. Einmitt í þessu er hinn mikilvægasti lærdómur fólginn — og á þessu æviskeiði ætti hann ekki að verða of dýru verði keyptur, eins og allt of hætt er við, ef þessi tími er ekki notaður. Sú leið er hins vegar næstum örugg til ófamaðar að láta barn aldrei bera neina ábyrgð á fé, en uppfylla óskir þess sjálfur. Við erum stundum óspör á hrósið um okkar ágætu þjóð. Raunar vantar ekki lastið lieldur, enda vitum við ósköp vel, að margt fer aflaga hjá okk- ur. Ekki verður það allt auðveldlega bætt, og á það m. a. við um það, sem miður fer á því sviði, sem hér er fjall- að um. Og ekki er þess vænzt, að þetta greinarkorn valdi nokkrum straum- hvörfum, en eins og áður er sagt, er því fyrst og fremst ætlað að vekja at- hygli á þessu málefni: Finnst mönnum dstæða til að rœða það, — eða þykir þess engin þörf? Finnist mönnum það umræðu vert og íhugunar, þá má benda á lítið en greinargott rit, sem kemnr út um þess- ar mundir undir nafninn Börn og þen- ingar, og mun reynast gott innlegg í umræðurnar. Höfundur þess er dönsk kona, Kirsten Sigsgárd að nafni, en að útgáfu þess á íslenzku stendur Seðla- bankinn — Sparifjdrsöfnun skólabarna.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.