Heimili og skóli - 01.02.1962, Síða 32

Heimili og skóli - 01.02.1962, Síða 32
24 HEIMILI OG SKÓLI anna í landinu. Samtakamáttur þeirra beggja hlaut að geta lagfært margt, sem annars fór aflaga, vegna þess, að þessir aðilar vinna hvor í sínu lagi, Eirikur Sigurðsson. verða jafnvel stundum ekki alltof sam- taka. En annar megintilgangurin var sá, að reyna að hjálpa báðum þessum að- ilum við þeirra margþætta og mikil- væga hlutverk. Þar eru verkefnin ótæmandi, t. d. að miðla erlendri og innlendri reynslu og þekkingu, vara við hættum og vera í senn fræðandi og vekjandi rit, tengiliður á milli heimila og skóla, sent léti sér ekkert óviðkom- andi, sent snertir uppeldis- og skóla- starfið. Það er ekki okkar að dæma um, hvernig þetta hefur tekizt. Ritið hef- ur aldrei verið ádeilurit, þótt á margt megi deila í uppeldisháttum okkar og skólamálum. Það hefur því aldrei haldið uppi neikvæðum málflutningi, en aftur leitazt við að flytja mál sitt á jákvæðan hátt, benda frekar á það, sem er til fyrirmyndar og vekja athygli á heilbrigðum uppeldisháttum, t. d. beita þeirri uppeldisaðferð að lofa fremur en lasta. Þá hefur það einnig vakið athygli á kristinni trú og lífsvið- horfum sem hinum traustasta grund- velli alls uppeldis. Allt þetta hefur væntanlega tekizt misjafnlega. Það mætti ætla, að foreldrar hefðu tekið þessari hjálp með framréttri hendi, en ritið hefur þó ekki fengið þá út- breiðslu, sem skyldi. Annað er það einnig, sem vert er að benda á, og stendur til bóta. Það hafa ekki nógu margir góðir og ritfærir menn fundið livöt hjá sér til að skrifa í ritið, senda því greinar, fréttir og myndir, sem gat orðið til þess að gera það fjölbreyttara. Þar liöfum við orð- ið fyrir nokkrum vonbrigðum með kennara og raunar foreldra einnig. Kennarar hafa aftur verið drýgstir við útbreiðslu ritsins og stöndum við þar Páll Gunnarsson.

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.