Heimili og skóli - 01.02.1962, Side 34

Heimili og skóli - 01.02.1962, Side 34
26 HEIMILI OG SKÓLI Fyrir tuttugu árunr var mér sent fyrsta heftið af tímariti, sem var að hefja göngu sína. Það hét Heimili og skóli. Ég óskaði þess þá, að þetta rit héti: Heimili, kirkja og skóli. Mig langaði til að prestamir norðlenzku ættu aðild að því, svo að sjónarmið kirkjunnar mætti verða túlkað þar. — En nú er ég fyrir löngu búinn að sætta mig við að svo var ekki, því ég efast satt að segja um, að hið trúarlega og kirkjulega sjónarmið hefði verið betur túlkað, eða kirkjan átt öruggari máls- svara í ritinu þessi tuttugu ár, enda þótt einhverjir prestar hefðu verið með í útgáfu þess. Svo vel hefur þar verið á málum haldið frá sjónarmiði kirkjunnar að mínum dómi, — af svo miklum heilindum hefur ritið flutt kristinn boðskap. Af handahófi tek ég sem dæmi nokkrar setningar úr grein ritstjórans í síðasta hefti: „Vilji for- eldrar og skólar leggja grundvöll að heilbrigðu tilfinningauppeldi . . . ættu þeir að byrja á því, þegar í fyrstu bernsku, að leggja grundvöll að trúar- uppeldi barna sinna.“ — „í lotning- unni fyrir einhverju, sem er æðra en við sjálf, liggur kjölfesta lífsins, sem gefur því gildi.“ — „Eina leiðin út úr þessum ógöngum, sem efnishyggjan og tæknin hafa leitt okkur í, er að byrja á ný að rækta tilfinningalífið og trú- arlífið. Það er nálega hin eina von mannkynsins nú.“ — Slíkur boðskapur á sannarlega sitt erindi í riti um mikilsverðustu mál þjóðarinnar — uppeldismálin. Ég þakka ritstjóra og útgefendum Heim- ilis og skóla ágætt starf í tuttugu ár og óska ritinu heilla og blessunar á þess- um tímamótum. Kirkjubæjarklaustri, á bóndadaginn 1962. Gisli Brynjólfsson.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.