Heimili og skóli - 01.02.1962, Qupperneq 36

Heimili og skóli - 01.02.1962, Qupperneq 36
28 HEIMILI OG SKÓLI og samvizkusemi. Vinnudagur Ingi- bjargar hefur stundum verið nokkuð langur. Hún þekkir betur en flestir aðrir allt fólk í bænum, sem hefur átt við einhverja erfiðleika að stríða, einkum hina fátækari. Ef allir þeir, sem Ingi- björg Eiríksdóttir hefur rétt hjálpar- hönd á einhvern hátt mættu nú mæla, yrði það mikill og samhljóða þakkar- kór. En Ingibjörg hefur ekki unnið þessi störf af fordild, til að hljóta hrós fyrir. Öll sín líknarverk hefur hún unnið af kærleika, óvenjulega fórnfúsum kærleika. Samúðin með þeim, sem bágt eiga, hefur verið sterk- asti þátturinn í lífi Ingibjargar Eiríks- dóttur. Öll störf hennar í félagsmál- um og í einkalífi eru mótuð af þessari ríku samúðarkennd og kærleiksþeli, enda á hún marga vini. Hún er vinsæl af samkennurum sínum og nemend- um, en hennar vinsældir ná óvenju- lega langt út fyrir skólann. Enda hafa spor hennar legið heim að mörgum dyrum hér í bænum á undanförnum áratugum. Þangað kom hún oft fær- andi hendi, og alltaf með hlýju, upp- örvun eða góð ráð. Svona hefur Ingi- björg rekið erindi sitt fyrir hann, sem sagði: „Það, sem þér hafið gert einum af mínum minnstu bræðrum, það haf- ið þér gert mér.“ Ég öfunda Ingibjörgu Eiríksdóttur ekki af allri þeirri hlýju, sem til henn- ar mun streyma á sjötugsafmælinu, ég samfagna henni. Ingibjörg er vel gefin kona, glað- lynd í sinn hóp og samvinnuþýð. Hjartanlegar hamingjuóskir með daginn! H. J. M. Til gamans Gæsileg ung stúlka stöðvaði leiguvagn á Piccadilly og stökk inn. Svo benti hún yfir torgið á herramann einn, sem þar stóð og leit á armbandsúrið sitt. „Akið mér þarna yfir um,“ sagði hún. „Þér eruð ef til vill hræddar við að fara yfir götuna í þessari miklu umferð?" spurði bílstjórinn. „Nei,“ svaraði hún, „en ég er fimmtán mínútum á eftir áætlun, og ef ég kem í leigu- bíl, lítur það að minnsta kosti þannig út að ég hafi lagt allt kapp á að koma á réttum tima.“ Maður nokkur af heldra taginu hafði ekið allan daginn og var orðinn þreyttur og sneri því bílnum inn á hliðarveg, sem lá til smá- bæjar eins. Á meðan benzíngeymir bílsins var fylltur, spurði hann manninn, hve langt væri til næsta bæjar. „Ja, svona eitthvað um fimm kílómetra,“ svaraði benzínmaðurinn. „Hve stór er bærinn?" spurði ferðamaður- inn. „Er þar nokkurt hótel?" „Tja,“ svaraði benzínmaðurinn. „Það mun vera eitt ár síðan að bæjarbúar fengu einhverjar stórborgargrillur og komu á hjá sér einstefnuakstri. Svo óku allir auðveldlega úr bænum, en enginn gat ekið inn í hann aftur." Það var mikið að gera í flugvélinni. Þern- urnar voru önnum kafnar við að taka til morgunverðinn, þegar elskuleg gömul kona kom til þeirra og spurði þær kurteislega, hvar snyrtiklefi kvenna væri. Henni var sagt að hann væri frammi í flugvélinni, og fylgdi hún nákvæmlega leiðbeiningum þernanna allt að dyrum yfirmannanna, sem hún opnaði og starði inn, þar sem yfirmennirnir sátu við tæki sín. Hún kom þó brátt aftur og sagði utan við sig og undrandi: „Ég hef nú aldrei vitað annað eins. Það sitja fjórir menn inni á snyrtiklefa kvenna og horfa í sjónvarp."

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.