Heimili og skóli - 01.02.1962, Qupperneq 39

Heimili og skóli - 01.02.1962, Qupperneq 39
HEIMILI OG SKÓLI 31 ég hef heyrt nokkuð frá þér. Hvernig líður þér?“ Geymdu þetta ekki til morguns. Já, það þarf ekki rnikið til. Eigin- maðurinn getur klappað á öxlina á konunni sinni og sagt: „Ja, okkur hef- ur nú sannarlega liðið vel saman — okkúr tveimur." Eiginkonan getur hallað höfðinu andartak að manni sín- urn og sagt: „Ekki vildi ég nú skipta á þér og nokkrum öðrum manni í öll- um heiminum." Hvað tekur þetta langan tíma? Sama máli gegnir um samband okk- ar við foreldrana. Það verður eins kon- ar vani. Við erum óþolinmóð og hugs- unarlaus gagnvart þeim. Það virðist vera erfitt að segja: „Ég gleymi aldrei því, sem þið hafið fyrir mig gert.“ Foreldrarnir mættu einnig muna þetta. Þeir mættu gjarnan segja við fullorðinn son sinn eða dóttur: „Það getur vel verið að ég hafi oft ávítað þig og skammað, en það er nú sarnt mikið í þig spunnið." Alveg er þetta eins með vini okkar. Flestir menn ganga út um dyr sínar og inn um þær aftur. En sumir koma aldrei aftur. Og ef orðin hafa verið sögð — hlýju orðin, viðurkenningar- orðin, liöfum við, sem bíðum árang- urslaust eftir því að hann eða hún komi aftur, þó nokkuð að gleðjast yf- ir. Það er eitt hið mikilvægasta hér í heimi, að við segjum það, sem segja ber, við þá, sem við unnum. Gjörðu það ekki aðeins á hátíðastundum, heldur á þetta að koma eins og af sjálfu sér. Gjörðu það d hverjum ein- asta degi. H. J. M. þýddi. Til gamans Kennarar í sumum amerískum skólurn fá í hendur í byrjun hvers skólaárs litla hand- bók. í útgáfunni 1960 stendur þessi kláusa: „Frá mánudegi til fimmtudags skulu kenn- arar vera í skólanum hálfan tíma eftir að börnin eru farin. A föstudögum fá kennarar frí, þegar hringt er út klukkan þrjú. En gjör- ið svo vel að varast að troða börnin undir.“ Þegar ég á dögunum fékk mér alllanga hjólreiðarferð, varð ég fyrir því, að yfir mig dundi hellirigning, og leitaði ég mér aldreps í litlu húsi einu við veginn. Þar bjó gamall maður, sem tók mér mjög vingjarnlega. Myrkrið var að detta á og hann stóð á fæt- ur til að kveikja á olíulampanum. í daufu ljósi lampans sá ég að í loftinu hékk nýlegur rafmagnslampi. „Nú,“ sagði ég og benti á lampann, „er peran útbrunnin?“ „Nei,“ svaraði gamli maðurinn. „Hún er í fullkomnu lagi. Við revndum hana daginn sem lagt var inn hérna, en við höfum ekki þurft að nota hana enn, því að við höfum aldrei orðið olíulaus síðan.“ HEIMILI OG SKÓLI TÍMARIT UM UPPELDISMÁL Útgefandi: Kennarafélag EyjafjarOar. Ritið kemur út í 6 heftum á ári, minnst 24 síður hvert hefti, og kostar árgang- urinn kr. 40.00, er greiðist fyrir 1. júní. Útgáfustjórn: Hannes J. Magnússon, skólastjóri. Eiríkur Sigurðsson, skólastjóri. Páll Gunnarsson, kennari. Afgreiðslu- og innheimtumaður: Guðvin Gunnlaugsson, kennari, Vanabyggð 9, Akureyri. Ritstjóri: Hannes J. Magnússon, skólastjóri. Pósthólf 18S. Akureyri. Slmi 1174. Prentverk Odds Björnssonar h.f.

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.