Heimili og skóli - 01.02.1964, Qupperneq 21

Heimili og skóli - 01.02.1964, Qupperneq 21
hann reykti. Það' var líklega bezt að hætta þessari vitleysu. Hann var svo upptekinn af þessum hugs- unum, að hann vissi ekki fyrri til, en dyrn- ar opnuðust og móðir hans kom inn. Hann þreif seðilinn út úr sér og ætlaði að fela hann í lófanum. En það var of seint. Móðir hans hafði þegar séð, hvað um var að vera. Og nú logsveið hann í lófann, því að það var ekki alveg dautt í seðlinum, en hann þorði ekki að æpa, þótt hann langaði mest til þess. Móðir hans kom nú brunandi í áttina til hans. Hún var þung á brúnina. „Hvað á þetta að þýða, drengur? Ertu farinn að reykja? Hvað ertu með í lófanum? Það voru eng- ar sígarettur til“. Það var ekkert undan- færi. Hann varð að opna lófann og sýna henni hálfbrunninn seðilinn. „Ertu alveg frá þér, drengur! Hnuplar peningum til þess að fara svona með þá. Heldurðu að peningar séu til þess að kveikja í þeim? Eg skal kenna þér að láta það vera fram- vegis.“ Hún sló hann þéttingsfast á vang- ann. Þetta gerðist allt með svo skjótri svip- an, að hann kom engum vömum við. Seðil- ræksnið datt á gólfið. Hann greip hönd- unum fyrir andlitið og hrópaði með grát- stafinn í kverkunum um leið og hann þaut út: „Ég átti hann sjálfur.“ Hann sást ekki aftur fyrri en við mið- degisverðarborðið, og þar sat hann þögull og afskiptalaus, þar til máltíð var lokið. Eftir hádegið þurfti hann aftur í skól- ann í handavinnu og kom ekki heim fyrri en um klukkan 3. í dyrunum mætti hann móður sinni. Hún var nú mild á svip og brosti við honum. Hefir ef til vill fundið til þess, að hún hefði verið nokkuð ströng fyrr um daginn út af seðlinum. „Heyrðu, Doddi minn“, sagði hún vin- gjarnlega. „Ég þarf að biðja þig að skreppa í búð fyrir mig og kaupa sígarettur, ég gleymdi því alveg í morgun. Hún Anna Geirs er komin og ég má til að fá þær“. Hún rétti honum 25 krónu seðil. Hann var vanur að hlýða móður sinni, en nú langaði hann mest til að tæta seðilinn í sundur og fleygja sneplunum framan í hana. En hann gerði það ekki. Hann fleygði leikfimidóti sínu inn í forstofuna, greip seðilinn úr hendi móður sinnar, og hreytti út úr sér um leið og hann hvarf út um dyrnar: „Svo þú ætlar þá líka að brenna seðil og láta Onnu Geirs hjálpa þér til þess“. Innan stundar var hann kominn aftur, fleygði vindlingunum á eldhúsborð- ið, svo rauk hann út. Dagurinn leið að kvöldi, og Doddi var þögull eftir að hann kom inn. Hann bjó sig undir skólann eins og venjulega, en leitaði engrar aðstoðar hjá móður sinni, eins og hann gerði þó oft. Eftir kvöldverð fór hann að hátta með fyrra móti. Móðir hans sá, hvað honum leið. Hún vissi, að hann var særður — djúpt særður. Og orð- in, sem hann hafði sagt við hana í and- dyrinu, hljómuðu enn fyrir eyrum henn- ar: „Svo þú ætlar þá líka að hrenna seðil og láta Önnu Geirs hjálpa þér til þess“. En þetta var nú svo ósanngjarnt. Það var svo ólíkt með börn og fullorðna, þau máttu ekki reykja. Ekki hafði hún sjálf farið að reykja fyrri en eftir fermingu, naumast dottið það í hug. Þó hafði faðir hennar reykt stundum — ekki mikið — bara pípu — en mamma hennar hafði aldrei reykt. Það hafði ekki verið móðins þá — frekar talinn ósiður, að kvenfólk reykti eða drykki. Hvers vegna hafði hún þá sjálf farið að reykja? Henni þótti það vont, mjög vont í fyrstu og henni hafði orðið óglatt. En því hafði hún þá farið að reykja? I hreinskilni sagt: Hún hafði HEIMILI OG SKÓLI 15

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.