Heimili og skóli - 01.02.1964, Síða 27

Heimili og skóli - 01.02.1964, Síða 27
„Ég sagði honum frá barninu, og hann varð frá sér numinn af gleði. Hann var svo umhyggjusamur og nærgætinn, að þaS var nærri því hlægilegt. En ég var ham- ingjusamari en nokkru sinni áSur, þegar ég sá hvernig augu hans Ijómuðu, er hann var aS leggja framtíSaráætlanir vegna barnsins.” Og hér kemur síSari kaflinn: „BarniS mitt fæddist klukkan þrjú í morgun. Hún er yndisleg. Hjúkrunarkonan kom meS hana til mín, svo aS ég gæti fengiS aS halda á henni litla stund. Ég brenn af kærleika til barnsins míns. Ég er þreytt, en mig langar ekki til aS sofa. Ýmsum dásamlegum orSum skýtur upp í huga mínum. Nú fyrst lifir þú fyrir alvöru. Nú veizt þú til hvers þú lifir. Þú hefur lifaS lífi þínu til aS eignast þetta barn. GóSi guS. Ég biS þig aS láta hana verSa sterka og góSa. Leyf henni aS vaxa, svo aS hún megi njóta þess, sem ég hef notiS, hugsa þær hugsanir, sem ég hef hugsaS og elska aSra manneskju eins mikiS og ég hef elskaS manninn minn.” Já, stúlka mín. Eftir nokkrar klukku- stundir ferS þú á dansleik, í fyrsta skipti sem ung og sjálfstæS stúlka. Kannski er þaS misskilningur, er ég geri mér vonir um, aS þessi dagbókarbrot hafi nokkurt gildi fyrir þig. Um þaS verSur þú sjálf aS dæma, eins og þú verSur sj álf aS vera þinn eigin dómari í kvöld og mörg önnur kvöld. Ég hugsa um þig nú eins og þú stóðst fyrir framan mig í kvöld. Þú ert falleg ung stúlka, jafnvel þegar þú ert reiS. Ég man enn hvernig þú leizt út. Ég man reiSi- blikiS í bláu augunum þínum, er þú sagSir viS mig: „Ef mamma hefSi veriS hér, hefSi hún áreiðanlega sagt eitthvað fallegt um kjólinn minn.” Svo hljópstu til mín, fleygðir þér í fang mitt, tókst höndum þínum um háls mér og sagðir: „FyrirgefSu, pabbi!” AuðvitaS hefðir þú ekki þurft að segja þetta, en þó þykir mér vænt um, að þú gerðir þaS. Og þú skalt ekki halda, aS mér hafi ekki þótt kjóllinn þinn fallegur. Hann er dásamlegur. Skemmtu þér nú vel, stúlkan mín. Þinn pabbi. P.S. Dagbókin var skrifuS af móður þinni. H. J. M. þýddi. ÞRÍR munkar í mjög strangri katólskri munkareglu urðu að ástunda algjöra þögn, en báSu nú ábótann um einhverja tilslökun í þessu efni, svo aS þeir mættu tala hvor viS annan viS og viS. Ábótinn gaf þeim elzta leyfi til aS segja eina setningu á ákveðnum hátíSisdegi seinna á árinu. Sá yngsti fékk leyfi til aS segja eina setningu á sama hátíSisdegi næsta ár. En þriSji munkurinn varS enn aS bíSa 3 ár til aS fá aS segja sína setningu. Eftir morgunverS nefndan hátíSisdag fyrsta áriS sagSi munkurinn: „Mér líkar ekki hafragrautur." Eitt ár leiS, og eftir morgunverSinn nefndan dag sagSi yngsti munkurinn: „Mér þykir hafragrautur góSur.“ Enn leiS eitt ár. Þá sagSi þriSji munk- urinn: „Eg er nú orSinn leiSur á þessu eilífa masi um hafragrautinn.“ íh HINN mikli heimspekingur, Immanúel Kant, er slánandi dæmi um, hvernig miklir heimspekingar geta hugsaS of mikiS og of lengi. Eftir langa umhugsun ákvaS hann aS kvænast, en þegar hann kom til heimilis hinnar útvöldu, fékk hann aS vita, sér til mikilla vonbrigSa, aS hún hafSi flutt til annars bæjar fyrir tuttugu árum! HEIMILI OG SKÓLI 21

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.