Heimili og skóli - 01.04.1964, Qupperneq 5
Heimili
og
skóli
TÍMARIT U M
UPPELDISMÁL
:\
h :
'O •
OV H
* •
II
•W •
>• :
s :
ÚTGEFANDI: KENNARAFÉLAG EYJAFJARÐAR
Ritið kemur út í 6 heftum ó óri, minnst 24 síður hvert hefti,
og kostar órgangurinn kr. 60.00, er greiðist fyrir 1. júní. —
Útgáfustjórn:
Hannes J. Magnússon, skólastjóri.
Eiríkur Sigurðsson, skólastjóri.
Páll Gunnarsson, kennari.
Afgreiðslu- og innheimtumaður:
Guðvin Gunnlaugsson, kennari,
Vanabyggð 9, Akureyri.
Ritstjóri:
Hannes J. Magnússon, skólastjóri.
Pósthólf 183. Akureyri. Sími 1174.
PRENTSMIÐJA BJÖRNS JÓNSSONAR HF.
HANNES J. MAGNÚSSON:
Fyrstu sporin
Nú um þessar mundir er verið að slíta
barnaskólunum víðs vegar um land og
verður gert næstu daga og vikur. Þessi
tímamót gefa tilefni til margra spurninga
og íhugana, en þeim verður ekki svarað
hér. Stórir hópar af 12 og 13 ára börnum
eru að kveðja barnaskólana fvrir fullt og
allt, en hjá flestum tekur við framhaldsnám.
En á sama tíma og þetta unga fólk er að
kveðja skóla sína bíða 3—4000 7 ára börn
eftir því að skóladyrnar verði opnaðar fyrir
þeim. Það verður kannski nú þegar á þessu
vori, en það verður kannski ekki fyrr en
í haust. En hvað sem er um það, þá er hann
á næsta leiti þessi mikli dagur. Og hvenær
sem hann kemur, er hann alltaf einn af
mikilvægustu dögum ævinnar, og vekur
ýmist kvíða, tilhlökkun eða eftirvæntingu,
■eftir því, hvernig í pottinn er búið.
Já, á sama tíma og feður og mæður fagna
þeim áfanga í lífi barna sinna, að hafa
lokið burtfararprófi úr barnaskólanum eru
þau kannski að búa lítinn 7 ára hnokka
undir sína fyrstu skólagöngu. Þessir for-
eldrar hafa fengið reynslu, en hinir, sem
eru að senda fyrsta barnið sitt í skóla, eru
kannski jafn eftirvæntingarfullir og litli
hnokkinn sjálfur. En hvernig sem á stendur
þá er þetta alltaf mikilvægur dagur fyrir
barnið, og það er ótrúlega mikilvægt, að
fyrsti skóladagurinn og fyrstu skóladag-
arnir takist vel. Þetta er í fyrsta skipti á ævi
barnsins, sem það tekur á sig þá ábyrgð
að verða meðlimur í öðru samfélagi en
hinu litla heimili. Það á að bera ábyrgð á
sér sjálft. Það getur ekki kallað á mömmu
eða pabba, þótt eitthvað beri útaf. Það er
komið í ókunnugt samfélag, þar sem önnur
HEIMILI OG SKOLI 25