Heimili og skóli - 01.04.1964, Qupperneq 7

Heimili og skóli - 01.04.1964, Qupperneq 7
hjá hinum litlu og seinþroskuSu börnum. ÞaS má aldrei kúga börn á þessum aldri íil náms. ÞaS verSur aS koma eftir öSrum leiSum. Allt nám, ekki sízt innan viS skóla- skyldualdur, þarf aS vera létt og frjálslegt, svo aS þaS veki áhuga, en drepi ekki. Hjá 5—6 ára börnum þarf þaS helzt aS vera eins og leikur. Og ég hef stundum spurt sjálfan mig aS því, hvort viS værum í raun og veru svo illa komnir meS okkar mörgu og oft mjög góSu heimili, aS foreldrarnir skuli ekki geta annast þetta sjálfir. í því felst ekkert vantraust á smábarnaskólunum út af fyrir sig. En þetta er í raun og veru dásamlegt verkefni fyrir foreldrana, ekki sízt föSurinn, sem vegna atvinnu sinnar hefur allt of lítil kynni af börnum sínum. En þaS er einnig ástæSa til aS vara for- eldra viS því, aS gylla skólann of mikiS fyrir börnum sínum. Segja þeim, aS þar sé alltaf gaman. ÞaS ervarasamtvegna þess, aS þá er hætt viS, aS þau verSi fyrir von- brigSum, ef ekki fyrstu daga, þá aS minnsta kosti síSar, því aS skólanám getur aldrei orSiS eintómt gaman. Þar hljóta aS vera skyldur og ekki allar léttar eSa auSveldar. Allur undirbúningur undir skólanámiS verSur aS vera sem raunhæfastur, þar má helzt hvorki vera of né van. Ég myndi telja, aS einna bezti undirbún- ingur undir skólanámiS almennt væri sá aS tala mikið viS börnin, þroska málfar þeirra og gera þau forvitin. Einu sinni var þaS talin ódyggS aS vera forvitinn og talinn ljóSur á börnum. Ég tel þaS eina hina þroskavænlegustu dyggS mannsins, bæSi ungra og gamalla. ÞaS er hiS mesta óhappa- verk aS slökkva forvitni barna. En þaS er einna auSveldast meS því aS færast ætíS undan aS svara spurningum þeirra, en spurningar lítilla barna er eitt hiS dásam- legast tákn um vaxandi þroska og þekk- ingarþrá. Já, í öllum guSs bænum, reyniS ef þiS getiS aS svara spurningum barna ykkar, ekki sízt á forskólaaldri. ÞiS hafiS af því ótæmandi ánægju og börnin ómetan- legt gagn. TaliS mikiS viS börnin og laSiS þau til aS spyrja. Þetta á ekki aS.vera í neinu kennsluformi, heldur eins og sjálf- sagSur þáttur í daglegu lífi. ÞaS má þekkja þau börn úr, þegar þau koma í skólann, sem njóta þessarar blessunar — ég leyfi mér aS nota svo sterk orS. Foreldrar þurfa aS leit- ast viS aS opna fyrir börnunum lífiS í kring. Til þess þarf engan skólalærdóm. Tala um þaS, sem gerist og mun gerast, tala um umhverfiS, hin daglegu störf, tímann, náttúruna o. fl. Ekki á neinu gælu- eSa barnamáli, heldur í fullri alvöru. Börnum leiSist aS viS þau sé alltaf talaS í einhverj- um gælutón. Þau kunna aS meta þaS, og þau vaxa viS þaS, aS viS þau sé talaS í alvöru og aS ekki sé alltaf veriS aS minna þau á þaS, aS þau séu lítil börn. ÞaS er jafnvel gott aS ráSgast viS börnin um sitt hvaS — þaS eykur þeim sjálfstraust og vekur hjá þeim enn meiri virSingu fyrir foreldrunum. — Börn þarfnast frekar fyrirmynda en gagnrýnenda — hefur einhver vitur maSur sagt. Uppeldi á ekki og þarf ekki aS vera sífelldar umvandanir og ráSleggingar. Fyrirmyndin getur komiS í staSinn fyrir meiri hlutann af því öllu. ÞaS er annars eftirtektarvert og alvarlegt í senn, hve mörg 7 ára börn eru blátt áfram illa talandi, hug- myndasnauS og orSfá. Þetta eru börnin, sem lítiS er talaS viS. Ég minnist margra og langra rökkurstunda, þegar ég var barn. Þá sagSi faSir minn okkur systkinunum sögur, oftast voru það útilegumannasögur, sem hann samdi jafnóSum. Þær voru kannski nokkuS líkar hver annarri, en þaS gerSi ekkert til. Þær voru meS tungutaki HEIMILI OG SKÓLI 27

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.