Heimili og skóli - 01.04.1964, Side 13

Heimili og skóli - 01.04.1964, Side 13
Við fyrsta lestur bókarinnar varð mér líka að orði: „Skyldu þeir, þarna fyrir vestan, telja mig algeran fábjána eða siðlausan rudda?“ Síðar komst ég að raun um, ásamt fleir- um þátttakendum, að gula bókin var sízt of orðmörg. Og því bæði hollt og gott vega- nesti ferðalangi norðan frá heimskauts- baug, sem í fyrsta skipti hleypir heimdrag- anum. Auðvitað var lagt til, að gula bókin yrði endurskoðuð og endurbætt til hagræðis og blessunar komandi þátttakendum. Þessi urðu mín fyrstu kynni af banda- rískri nákvæmni og frábærri skipulagningu. Eg sé, að ég er kominn nokkuð úrleiðis. En ákvörðunarstaður okkar Islendinganna fimm var Washington D.C., með millilend- ingu á Kennedyflugvelli við New York, þar sem skipt var um vél og síðasti áfangi floginn með amerískri flugvél. Tók það flug fljótt af, aðeins einnar stundar flug, og klukkan 2 síðdegis eftir amerískum tíma var lent á Alþjóðaflugvellinum við Wash- ington. Þar tók á móti okkur (alveg eins og stóð í gulu bókinni) leiðsögukona frá fræðslu- skrifstofu Bandaríkjanna. Útvegaði hún okkur bíl, en bað okkur jafnframt að hafa hraðann á, þar sem við skyldum mæta í mót- tökuveizlu eftir klukkutíma. í veizlu þess- ari voru mættir hátt á fjórða hundrað styrkþegar frá nálega 70 þjóðum, starfs- menn frá sendiráðum viðkomandi þjóða og og gestgj afarnir, yfirmenn bandarískra fræðslumála og starfsmenn námskeiðsins. Já, og hvílíkt samsafn af fólki, alla vega litt, hvítt, svart, brúnt og gult? Það var sem nýr heimur hefði opnazt fyrir mér. Allt í einu öðlaðist ég nýjan og meiri skiln- ing á námsför þessari. Hér var ég ekki að- eins mættur sem venjulegur ferðamaður eða námsmaður, heldur sem fulltrúi lands míns, bæjar, íslenzkrar kennarastéttar, sem vissar og meiri kröfur voru gerðar til en venjulegs ferðalangs. — Við vorum orðnir þátttakendur í alþjóðlegu kennaranám- skeiði. Þarna í veizlunni og næstu daga var ég sífellt að hitta og eignast nýja og nýja kunningja. Má þar nefna 9 barna móður sunnan frá sólríkum ströndum Zanzibar. Enskukennara norðan frá vinabæ Akur- eyrar í Finnlandi. Austan frá Laos rakst ég á grannvaxinn, drengjalegan mann, sem að útliti til minnti einna helzt á íslenzkan ferm- ingardreng. En við nánari kynni reyndist sá vera skólastjóri, Tongkeo að nafni og auk þess þriggja barna faðir, harðgiftur og nær þrítugu að aldri. Og vestan frá Mexico hitti ég dökkhærða „senorítu“ með Indíána- blóð í æðum, sem kölluð var hinu „íslenzku- lega“ nafni Lúlú. Ég get skotið því hér inn, að síðan hef ég heyrt, að búið sé að taka upp menningar- og stjórnmálasamband milli Islands og Mexico. Auðvitað á ég engan þátt í þeim málum. Einu kynni mín af þeirri merku þjóð eru nokkrar dökkhærðar, fagureygðar kennslukonur ásamt verndara þeirra, sem hét Ricardo, að eftirnafni Salazar. Annars held ég, að flestar viðræður og kynning hafi byrjað eitthvað á þessa leið: „Hvaðan ertu?“ Og jafnvel þó svar við- komanda hefði verið: Frá tunglinu, eða Xanadíu, hefði maður ekkert orðið hissa, aðeins glaðst að hitta þátttakendur frá svo einstæðum löndum. Á nokkrum dögum lærði ég meira um lifnaðarhætti þjóða og siðu, en tekizt hefði með lestri margra bóka. Ég vil því segja, að hér gafst stórkostlegt tækifæri til þess að auka á kynni og skiln- ing þjóða í milli. Námsskeið þessi munu eiga rætur sínar HEIMILI OG SKÓLI 33

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.