Heimili og skóli - 01.04.1964, Qupperneq 14

Heimili og skóli - 01.04.1964, Qupperneq 14
að rekja til ársins 1948, með tilkomu svo- nefndra Fulbright-laga og síðar skyldra lagagreina. Oldungadeildar-þingmaðurinn J. W. Fulbright mun fyrstur hafa hreyft þeirri hugmynd, að í stað þess að flytja eignir ameríska hersins erlendis heim til sinna föðurhúsa í stríðslokin, þá að selja þær í viðkomandi löndum og nota andvirði þeirra til menningarlegra viðskipta þjóða á milli. Að vísu mun sjóður sá hrökkva skammt nú og því tekna til hans aflað með öðru móti. íslendingar hafa verið aðilar að samn- ingi þessum frá 1957, er Bandaríkin komu hér á fót stofnun, sem nefndist Mennta- stofnun Bandaríkjanna á Islandi (The U.S. Educational Foundation in Iceland). Fram til þessa munu um 24 íslenzkir kennarar hafa hlotið styrk þennan, auk styrkja til ýmissa annarra aðilja. Vil ég nota hér tæki- færið og flytja framkvæmdarstjóra stofn- unarinnar hér á íslandi, frú Doris Finns- son, mínar beztu þakkir fyrir frábært starf og lipurð í garð okkar styrkþega, og ekki sízt þar, sem frúin mun senn láta af störf- um hjá stofnuninni vegna anna við önnur störf. Þá hafa frá upphafi allir Bandaríkja- forsetar verið málefni þessu vinveittir og sýnt því mikinn skilning, og ekki hvað sízt fyrrverandi Bandaríkjaforseti John F. Kennedy. Seint mun mér líða úr minni sá dagur, 22. nóv., er okkur barst til eyrna hin ótrú- lega og óhugnanlega fregn, að Kennedy forseti hefði verið skotinn til bana suður í Dallas. Við vorum stödd norður í Lansing, höfuðborg Michigan, og höfðum nýlokið að skoða þinghöllina, er reiðarslagið kom yfir. Sumir grétu, aðrir báðust fyrir, síðan sló djúpri og dularfullri þögn á hópinn, unz Eileen kennslukona sunnan frá Trini- dad hóf að syngja: „I want to live in a friendly world“. Smátt og smátt kom hópur- inn aftur til sjálfs sín og eftir stóð veru- leikinn einn, nakinn og kaldur. Síðan hef ég oft velt fyrir mér: „Hver var tilgangur hins óða manns, með voðaskotinu suður í Dallas?“ Stutt lýsing á tilhögun námsfararinnar yrði eitthvað á þessa leið: Fyrsti áfangi: Hálfs mánaðar dvöl í Washington D.C. Þessum tíma er að mestu varið til að kynna styrkþegum land og þjóð, ef svo mætti segja, með fyrirlestrum og kvikmyndum, auk umræðufunda smærri hópa. Auk skóla- og fræðslumála, sem sátu þar í fyrrirúmi, voru flutt erindi um stjórn- mál, efnahagsmál, trúmál, tryggingarmál, bókmenntir, tónlist og leiklist. Einnig áttu menn þess kost að skoða borgina, sækja söfn, veitingahús og sögufræga staði. Ekki get ég látið hjá líða, að minnast á tvær sýningar, sem þátttakendur stóðu fyrir. Hin fyrri var sýning á ýmsum þj óðlegum munum, sem þátttakendur höfðu komið með frá heimalandi sínu. Kenndi þar margra grasa og því geysifróðlegt á að líta. Skólum í borginni og nágrenni var boðið að skoða sýningu þessa og var þar mikið fjölmenni saman komið, og höfðu þátttakendur nóg að- gera að skýra út og svara fyrirspurnum sýningargesta. Af ís- lenzkum sýningargripum vöktu sauðagær- urnar mesta athygli. En flestir gesta héldu þessi hárprúðu skinn vera af hundum eða jafnvel geitum. Hin síðari sýning var eins konar „talent show“, þar sem kennarar þátttökuríkjanna komu á fót skemmtidagskrá. Vegna tak- markaðs tíma varð að miða fjölda skemmti- atriða við 25 þátttökuríki. ísland var svo heppið að vera í hópi hinna útvöldu. Um listrænan flutning hinna tveggja ís- 34 HEIMILI OG SKÓLI

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.