Heimili og skóli - 01.04.1964, Blaðsíða 15

Heimili og skóli - 01.04.1964, Blaðsíða 15
Höfundur í hópi bandarískra skólanema. lenzku sönglaga, Dýravísur í útsetningu Jóns Leifs og Hver á sér fegra fööurland, eftir Emil Thoroddsen, skal ég engan dóm fella. Hins vegar má geta þess, að Islend- ingamir vötku athygli fyrir stæðilegan og karlmannlegan vöxt, þá ekki hvað sízt vegna þess, að atriði okkar kom næst á eftir Vordansi hinna undursmávöxnu og fíngerðu meyja frá Viet Nam, sem minntu helzt á brothættar postulínsbrúður, og því varð að hækka hljóðnemann um 30—40 sm. áður en söngur risanna frá Islandi gat hafizt. Annars voru það kennslukonurnar frá Mexico, sem enn einu sinni vöktu hjá mér mesta eftirtekt og aðdáun, og nú fyrir lit- ríka og fagra þjóðbúninga og listrænan og táknrænan þjóðdans, sem var dásamlegt sambland af spænskri arfleifð og fornri menningu Indíána. Annar áfangi: Þriggja til þriggja og hálfs mánaðar dvöl við amerískan háskóla. Þátt- takendum námskeiðsins er skipt í smærri hópa, nokkuð eftir starfssviði og verk- efnum, sem menn hafa valið sér. Venju- legast eru 20—30 einstaklingar í hverjum hóp, og lenti ég í flokki 20 kennara frá 8 löndum, þ. e. a. s. 7 frá Laos, 6 frá Mexico, 2 frá Trinidad og einn frá eftirtöldum lönd- um: E1 Salvador, Colombíu, Brazilíu, Ítalíu og íslandi. Þessi hópur hélt norður til Michigan- fylkis, að Western Michigan University í borginni Kalamazoo, sem er um 80 þúsund manna iðnaðarbær, sunnarlega í Michigan og miðja vegu milli stórborganna Chicago og Detroit. Þó að seint sé, væri ekki úr vegi að kynna lítils háttar aðra íslendinga, er þátt tóku í námsför þessari. En þeir voru: Fröken Ingibjörg Stephensen talkennari úr Reykjavík. Dvaldist hún við Northwestern University í Evanstone, einni af útborgum HEIMILI OG SKOLI 35

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.