Heimili og skóli - 01.04.1964, Page 26

Heimili og skóli - 01.04.1964, Page 26
Séra Birgir Snæbjörns- son veitir upplýsingar um guðfræðinóm og prestsstörf. r BÆKUR OG RIT Út er komin hjá Ríkisútgáfu námsbóka ný lestrarbók, — Dýrin tala við Egil, — eftir Guðmund M. Þorláksson kennara. Efni bókarinnar er ætlað að glæða áhuga barna á íslenzkum dýrum, þar sem þau lifa sínu eðlilega lífi, og búa börnin þannig undir hið eiginlega nám í dýrafræði. Sagan gerist í sveit og er þar sagt frá því, þegar Egill á Brekku fær þá ósk sína upp- fyllta, að dýrin geti talaö við hann. Milli samtalsþáttanna eru sögur og ævin- týri um dýr, ásamt spurningum, sem oröið gætu tilefni til munnlegra frásagna og skýringa. Bókin mundi henta vel þeim foreldrum, sem vildu lesa hana með börnum sínum og ræða efni hennar við þau. Bókin er 80 blaðsíöur í Skírnisbroti, skreytt 40 myndum, auk kápumynda, og eru allar teikningar gerðar af Þresti Magn- ússyni, teiknara. Prentsmiðja Hafnarfjarðar hefur annazt prentun. ❖ Út er kominn hjá Ríkisútgáfu námsbóka Skriftarmælikvaröi til hliðsjónar við eink- unnagjöf í skrift. Þetta eru rithandarsýnis- horn úr skriftarprófum 12 ára barna í Reykjavík vorin 1962—63. Guðmundur I. Guðmundsson og Marinó L. Stefánsson völdu sýnishornin. Alls eru sýnd dæmi um skrift 22 einstaklinga og er tveim rithönd- um, að einhverju leyti ólíkum, raöaÖ saman á síðu með sömu einkunn. Er þess vænzt, að skriftarsýnishorn þessi geti orðið mæli- kvarði við einkunnagjafir í barnaskólum, er kennarar hafi til hliðsjónar, þegar skrift eldri barna er metin, einkum við barna- próf. Prentun annaðist Lithoprent h.f. 46 HEIMILI OG SKOLI

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.