Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.10.1987, Side 16

Heimili og skóli - 01.10.1987, Side 16
Fræðsluskrifstofa Norðurlands eystra: Ráðgjafar- og sálfræðideild - Frá starfsfólki RSD - Stutt kynning Mikil umræða fer nú fram um skólamál, og við verðum víða vör við áhuga og þá ábyrgð sem kennarar og foreldrar finna á sér hvfla gagnvart vel- ferð barna í skóla, árangri þeirra og líðan. Sá þáttur skólastarfs, sem hér verður gerður að umtals- efni er sú þjónusta sem veitt er í grunnskólum landsins, af hálfu ráðgjafar- og sálfræði- deild skóla, RSD. Við viljum reyna að svara spurningum eins og: - Hvað er RSD? - Hvar fer þessi starfsemi fram. - Hverjir eru starfsmenn? - Hvernig fer starfið fram? - Hvernig get ég leitað eftir ráðum, ef ég hef áhyggjur af framvindu mála hjá barni mínu, nemanda mín- um, hjá sjálfri mér? í grunnskólalögum frá 1974, er kveðið á um ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu við skóla í því formi sem nú er. Landið skiptist í 8 fræðsluumdæmi og í hverju þeirra skal vera fræðsluskrifstofa. Eitt af verk- efnum fræðsluskrifstofu er kennsluráðgjöf og sálfræði- þjónusta. Misjafnt er eftir landshlutum, hvernig þetta þjónustustarf hefur mótast, og hversu þróað það er. Við, sem þetta skrifum, störfum á Fræðsluskrifstof- unni á Akureyri og þjónum Norðurlandi eystra. Það er því út frá þeirri starfsemi, er þar fer fram, sem þessi orð eru skrifuð. Við ráðgjafar- og sálfræði- þjónustuna starfa þetta skóla- ár Qórir sálfræðingar (þar af einn í 20% starfi) og einn sér- 16 kennari, sem er ráðinn sér- kennslufulltrúi að sérkennslu- deild skrifstofunnar, en vinn- ur í náinni samvinnu við sál- fræðideild. Starfsmenn skrifstofunnar skipta með sér skólum um- dæmisins og er við það miðað að hver skóli hafi sálfræðing og sérkennara, að leita til. Þeir vinna síðan saman að lausn mála þar sem þess er þörf, eða deila á milli sín verkefnum allt eftir eðli þeirra mála, sem um ræðir. Starfssvið sérkennslu- fulltrúa Sérkennslufulltrúi hefur að- setur á Fræðsluskrifstofu. Hann tekur þar þátt í marg- þættum verkefnum, sem varða sér- og stuðnings- kennslu í umdæminu. Þessi verkefni geta verið skipt- ing tímakvóta á skóla, áætl- anagerð og skipulagsmál, fræðslufundir fyrir sér- og stuðningskennara, uppbygg- ing sérkennslugagnasafns skrifstofunnar, auk greining- ar- og ráðgjafarstarfa. Náin samvinna er, sem fyrr segir, við starfsmenn RSD og er sérkennari þar faglegur samstarfsaðili sálfræðinga. Hluti þeirrar vinnu er unnin í skólunum í samvinnu við skólastjóra, en þó einkum við þá kennara, sem starfa að sér- og stuðningskennslu. Sér- og stuðningskennsla í skólum tekur á sig ýmsar myndir eftir þörfum og mögu- leikum á hverjum stað. Mark- viss nýting þessa úrræðis er af- ar mikilvæg. Skammtímaúrræði í einni eða fleiri greinum, sem gjarn- an hefui; verið kallað stuðn- ingskennsla, verður að vera mjög markvisst. Það, ekki síð- ur en sú sérkennsla, sem veitt er, ef nemandi hefur ekki möguleika á að fylgja aldurs- svarandi námskrá, og nauð- syn reynist að setja honum eig- in námskrá að einhverju eða öllu leyti. Sér- og stuðningskennarar, svo og aðrir kennarar, geta leit- að eftir samvinnu við, og notið ráðgjafar sérkennslufulltrúa um þessi verketni, sé þess þörf. Þetta samstarf getur varðað: - skipulagningu sérkennslu innan skóla - greiningu á námsvanda einstakra nemenda - ráðgjöf við val á sér- eða stuðningskennsluúrræði - gerð kennsluáætlana - ráðgjöf til bekkjarkennara vegna hópa eða bekkja - fyrirbyggjandi aðgerðir af ýmsum toga, s.s. notkun hópprófa - miðlun eða kynningu á kennslugögnum. Sérkennari nýtir sér ýmís próf við athuganir sínar, próf sem meta stöðu barns í námí, greina námslega undirstöðu- þætti og ýmsa þroskaþætti. Oft verður niðurstaðan, eftír slíkar athuganir og samtöl víð foreldra og kennara, að lítilla aðgerða sé þörf til að snúa við óheillaþróun. Þær geta verið ráðgjöf til kennara og foreldra og/eða stuðningskennsla til skemmri tíma. Vandinn getur þó reynst meiri, og ef þörf krefur er leit- að samvinnu við fleiri sérfræð- inga, svo sem sálfræðing, tal- kennara, sjúkraþjálfara, lækni eða aðra, allt eftir því hver vandinn er. í framhaldi af at- hugun er svo sett fram tillaga

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.