Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.10.1987, Side 19

Heimili og skóli - 01.10.1987, Side 19
Starfsfólk RSD er bundið þagnarskyldu, og þeirra upp- lýsinga, sem fólk veitir, er vandlega gætt. Upplýsingar eru ekki veittar þriðja aðila nema með samþykki þeirra, er þær varða. Starfsfólk skól- anna, kennarar og aðrir eru einnig bundnir þagnarskyldu. Árangur af starfi RSD er mjög háður því, að trúnaðarsam- band náist milli okkar og þeirra, sem til okkar leita. Við leggjum okkur því fram um að haga okkur samkvæmt því. Samstarf við aðrar stofnanir RSD hefur samstarf við ýms- ar stofnanir utan skólanna sjálfra. Nærtækast er að nefna félags- og heilbrigðisþjónust- una, t.d. Svæðisstjórn um málefni fatlaðra, Félagsmála- stofnun Akureyrar, barna- verndarnefndir hinna ýmsu sveitarfélaga í umdæminu, og barnalækna heilsugæslu- stöðva eða Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri. Einnig eigum við samstarf við geð- deild FSA. Nú kynnu ýmsir að hugsa með sér, að þetta sýndi bara fundagleði okkar, en óneit- anlega þurfa aðilar að hitt- ast og ráða ráðum sínum. Við erum ennfremur ánægð með að geta sagt með góðri samvisku, að samstarf þessara Sérkennsla fullorðinna, sem hefst nú á haustdögum, er einnig dæmi um áþreifan- legan árangur af samstarfi milli Fræðsluskrifstofu, Fé- lagsmálastofnunar Akureyrar, Svæðisstjómar og geðdeildar FSA. Hér er um að ræða tvenns konar tilraunaverkefni, sem munu hafa mikil og já- kvæð áhrif á velferð fjölmargra einstaklinga, ef vel tekst til. Að lokum Fræðsluskrifstofan á Akureyri hefur mjög verið í fréttum fjöl- miðla undanfarna mánuði af ástæðum, sem óþarft er að rekja hér. Þetta hefur verið erf- iður tími, og aðstaðan til að stofnana hafi skilað áþreifan- legum árangri. Þannig eigum við þess kost að koma til móts við börn með sérþarfir strax frá fyrsta degi skólagöngu þeirra. Sérfræðingar Svæðis- stjórnar kynnast nefnilega þessum börnum mjög ungum, og geta þar með undirbúið skólagöngu þeirra í samstarfi við okkur. Það hefur ómælt gildi fyrir nemandann, að upphaf skólagöngu hans sé sem ákjósanlegast. sinna því, sem okkur ber, ekki alltaf jafn góð. Við leyfum okk- ur að trúa því, að sá kafli í sögu stofnunarinnar sé nú senn að baki. Aðilar hafa lýst vilja sín- um til að jafna ágreining sinn, og ákveðin skref hafa verið stigin í því skyni. Við erum því heldur bjartsýn nú í upphafi skólaárs á það, að starfsskil- yrði okkar fari einungis batn- andi. 19

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.