Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.10.1987, Blaðsíða 20

Heimili og skóli - 01.10.1987, Blaðsíða 20
Kristín Sigfúsdóttir: Hvað ætlar þú að gera í málinu? - Hvernig ætlar þú að standa vörð um rétt bams þíns? - Þessar spurningar er að finna í tvíblöðungi, sem Kennara- samband íslands gaf út og börnin okkar báru heim í tösk- unum sl. vor. Ef til vill er þessi bæklingur enn að velkjast eða hefur verið fleygt ólesnum út í horn. Ég las þessi skilaboð sem beint var til mín og hef velt þeim fyrir mér. Reyndar hef ég oft hugsað um þessi mál síðan börnin mín fóru í skóla. Kennarar hafa í mörg ár talað fyrir daufum eyrum lands- manna um þann vanda sem skólarnir eiga við að stríða og fer sífellt vaxandi. Hvernig komið er í skólamálum virðist hafa birst þjóðinni sem nýr sannleikur sl. vetur. Fjölmiðl- ar hafa fjallað um skólamál í erindum og greinum. Þessi umfjöllun er löngu tímabær og reyndar ekki lengur umflúin því svo illt er í efni. Ég hef átt börn í grunnskóla síðastliðin níu ár og nær eingöngu verið heimavinnandi foreldri, þar til í vetur í fyrsta skipti í fullu starfi sem framhaldsskóla- kennari. Á þessum árum hef ég orðið þess vör hvernig kenn- araskortur, fjöldi í bekk og þrengsli hafa fjötrað eðlilegt skólastarf og bitnað á barni - heimili og skóia. Ég hef líka orðið vitni að því hvernig nem- endur geta blómstrað af ánægju og framförum þegar ekkert þessara atriða hefur staðið í vegi. Síðastliðinn vetur gerist það að prentað er frumvarp til laga um að leggja niður fræðslu- skrifstofurnar í núverandi mynd. Vonandi verður þetta frumvarp látið rykfalla. Ef fræðsluskrifstofurnar yrðu niður lagðar væri þar með horfið aftur til fræðslulaganna frá 1946 með stofnun einhvers- 20 konar ,,umboðsmannaem- bættis“ (námsstjórastöðu) eins og tíðkaðist fyrir mörgum áratugum. Fræðsluskrifstof- urnar eru traustur bakhjarl skólastarfs í hverju umdæmi og hafa náð mjög góðum ár- angri í samnýtingu fagfólks og ráðgefandi starfsemi. Öflugar fræðsluskrifstofur eru lífæð skólanna og að leggja þær niður væri að greiða ung- um kennurum endanlegt rot- högg. Ef það yrði gert er ég hrædd um að dynja mundi yfir okkur auglýsingar um lausar stöður utan Reykjavíkur, og er þó nóg fyrir. Fræðsluskrifstof- urnar þarf að efla og veita þeim mikið meira fjárræði og fram- kvæmdavald t.d. í útgáfu námsefnis. Það er nánast óhæfa að þessi skáldaþjóð með heimsmet í bíla- og mynd- bandaeign skuli ekki hafa efni á eða dug til að gefa út skóla- ljóð svo dæmi sé tekið. Skóla- ljóð eru ekki til. Mér fýndist vel athugandi að hver fræðslu- skrifstofa gæfi út fyrir sitt um- dæmi Ijóð eftir skáld lífs eða liðin af viðkomandi svæði. Ég trúi því ekki að viljann vanti til að gefa út námsefni. Eitt er víst að mörg börn og foreldrar eru langþreytt á öllu lausblaða- safninu. Fræðsluskrifstofurn- ar eru líklegastar til að efla námsgagnaútgáfu og sjá til þess að litlir skólar í dreifbýli verði ekki afskiptir. Ég hef tvisvar sinnum leitað á náðir Fræðsluskrifstofú Norður- landsumdæmis eystra og í bæði skiptin get ég fullyrt að mikill vandi var leystur á skjótan og auðveldan hátt. Það er sannfæring mín að betri ár- angur næst í allri kennslu í grunnskóla ef gott samband er milli foreldra og kennara ekki síst ef börnin þurfa á aðstoð, eða sérkennslu, að halda. Þá verða foreldrarnir að ná góðu sambandi við faglegan ráðgef- anda svo þeir geti veitt barninu stuðning og hjálp heima. Fræðsluskrifstofurnar hafa sannað gildi sitt í þessu leið- beiningastarfi og unnið þrek- virki til hjálpar börnum, for- eldrum og kennurum. Foreldrar við skulum standa vörð.

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.