Heimili og skóli

Ataaseq assigiiaat ilaat

Heimili og skóli - 01.10.1987, Qupperneq 23

Heimili og skóli - 01.10.1987, Qupperneq 23
vegna heimilisástæðna, erfið- leika í skóla, vistaða á sveita- heimilum. Sé þetta síðasta úr- ræðið, þá verður að vera til staðar skipulagt starf sér- menntaðs fólks til að aðstoða hinn almenna kennara í dag- legu starfi. Því einhver tilgang- ur hlýtur að liggja að baki vist- un fjarri heimilum. Mikil þörf er því fyrir sér- menntað fólk s.s. sálfræðinga, sérkennara, þroskaþjálfa, tal- kennara, sem starfi með skól- anum. í litlum sveitarskóla er nauðsynlegt að fá utanaðkom- andi sérfræðinga til skrafs og ráðagerða. Ekkert er eins hættulegt og að einangrast með erfiðleika hvort heldur er hegðunarvanda eða námsörð- ugleika. Möguleikar litla skólans eru miklir, og ástæða til að ætla að árangur af skipulagðri með- ferð sé meiri þar en í fjöldan- um þar sem nemandinn týn- ist. Vegna mannfæðar á fræðslu- skrifstofunni hér á Norður- landi vestra hafa heimsóknir þeirra í skólann verið fáar. Skólaárið 1985-1986 kom sál- fræðingur aðeins einu sinni í skólann, og þá í lok skólaárs en verkefnin voru ærin, ogjafn brýn sem annars staðar. Sl. vetur voru heimsóknir mun tíðari, en sálffæðingurinn gegnir jafnframt starfi sér- kennara. Við finnum strax að nú kemur starf fræðsluskrif- stofunnar skólanum að gagni. Þetta tókst með auknum þrýstingi kennara og skóla- stjóra. En hvað þýðir þetta fyr- ir starfið í öðrum skólum hér í umdæminu? Heimsóknum fækkaði að sama skapi og þeim fjölgaði hér. Litla skólanum er nauðsyn- legt að eiga aðgang að viðbót- arkennslugögnum á fræðslu- skrifstofu, s.s. þroskaspilum, námsgögnum vegna lestrar- örðugleika, og efni fyrir af- burða greinda nemendur. Við sjáum fyrir okkur vel búna kennslumiðstöð á fræðsluskrifstofu með efni á myndböndum, tölvudiskling- um, verkefnabanka, til útláns í skólana og á heimilin. Nauðsynlegt er að huga að efni sem tengist nánasta um- hverfi, t.d. í hverju fræðslu- umdæmi. Verkefni sem skól- arnir gætu tekið að sér að vinna hver í sinni heimabyggð, verkefni sem síðan nýttust samfélaginu. Kanna mætti samgöngur, byggðarmál, bú- seturöskun, tekjur, mengun, umhverfismál, atvinnuvegi, þ.e. að virkja skólann sem einn af hornsteinum byggðarlags- ins. Þetta gæti verið framtíðar- hlutverk fræðsluskrifstofu. Með baráttukveðju. Reynsla foreldris af Fræðsluskrifstofunni: Fræðsluskrifstofan er foreldrum nauðsynleg - Ingunn Sigurðardóttir - Þegar sonur minn var 2ja ára gamall komst ég að því að hann var óeðlilega seinn til framfara. Ég fór með hann í nákvæma rannsókn hjá sérfræðingum í Reykjavík. Sú rannsókn leiddi í ljós að hann þurfti að fá örvun og aðstoð hjá sérmenntuðu fólki. Þessa hjálp fékk hann hjá ráðgjafa- og sálfræðiþjón- ustu Fræðsluskrifstofunnar á Blönduósi. Hefði þessi starf- semi ekki verið fýrir hendi heima í héraði hefði ég orðið að íhuga aðsetursskipti með tilliti til þarfa drengsins. Ég var mjög ánægð með alla samvinnu við starfsfólk skrif- stofunnar og það hve það lagði sig fram um að ná árangri við þjálfun hans. Er ég þeim afar þakklát fyrir. Starfsemi fræðsluskrifstof- unnar stuðlar í raun að því að hið sjálfsagða jafnrétti allra bama til náms og þroska sé virt og nái fram að ganga eins og skýrt er kveðið á í grunn- skólalögum. Því ber okkur að efla hana eins og kostur er. 23

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.