Læknaneminn - 01.07.1964, Blaðsíða 3
LÆ KNANEMIIUm
títg. Fél. Læknanema Háskóla Islands.
Reykjavík, júlí 1964 1. tbl., 17. árg.
Þórarinn Guðnason:
SiMLS PILONIDALIS
Um leið og Læknaneminn þakk-
ar Þórarni Guðnasyni lækni, fyr-
ir skemmtilega grein, eru honum
fluttar beztu afmælisóskir biaðs-
ins, en Þórarinn varð fimmtugur
þ. 8. maí s.l.
I þriggja binda Nordisk Lære-
bog i Kirurgi, sem ég og fleiri lás-
um undir kandidatspróf fyrir um
það bil aldarfjórðungi, fyrirfinnst
ekki orð um sinus pilonidalis. En í
kaflanum um proctologíuna hef ég
skrifað eftir próf. Guðm. Thorodd-
sen á spássíuna: „Fistlar frá
meðfæddum sacro-coccygeal cyst-
um geta mjög líkzt fistula ad an-
um. Eru efst í rima inter nates.
Therapie: Exstirpatio cystum.“
Nú á dögum mun þessum kvilla
lýst í flestum kennslubókum í
skurðlækningum, og sýnist mér þó
að ýmsir höfundar geti hans furðu-
lauslega. Annars jókst áhugi
lækna á sjúkdómnum í síðari
heimsstyrjöldinni sökum þess hve
algengur hann var meðal hermann-
anna. Þótti það ekki einleikið og
vildu sumir kenna um miklum
jeppaakstri á vondum vegum
(Jeep disease). Heimildir tjá, að
á árunum 1942—45 hafi 77.637
bandarískir hermenn verið undir
læknishendi vegna sinus pilonidal-
2
is, auk níu þúsund hermanna sem
leituðu læknis sökum annarra
kvilla en reyndust haldnir þessum
sjúkdómi. Á hans reikning voru
skrifaðir 3.387.000 veikindadagar
og kostnaður allur vegna sjúk-
dómsins var talinn nema hvorki
meira né minna en rúmum hundr-
að milljónum dollara.
Sjúklingur með sinus pilonidalis
kemur oftast til læknis vegna
ígerðarbólgu á sacro-coccygeal
svæðinu, venjulega utantil við
miðju, og þegar skorið er í ígerðina
eða hún gerir út, batnar þetta í
bili, en þó helzt fistillinn einatt
opinn og gægjast þá stundum út
úr honum litlir hárlokkar. Sé bet-
ur að gáð sjást örlítil op, eitt eða
fleiri, í botni skorunnar milli rass-
kinnanna, nær endaþarmi en ígerð-
in (1. mynd). Sjúkdómurinn er
þrisvar sinnum algengari hjá körl-
um en konum.
Lengi var því trúað að kvilli
þessi væri sköpulagsgalli. Sjúkl-
ingarnir áttu að hafa meðfæddar
cystur með hærðum veggjum milli
húðarinnar og spjaldbeins eða
rófubeins og þegar þær opnuðust
út á yfirborðið var þetta nefnt
sacro-coccygeal fistill eða sinus
pilonidalis (pilus = hár, nidus =
IISBú'KASAFK
53850
ÍSLANOS