Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1964, Qupperneq 4

Læknaneminn - 01.07.1964, Qupperneq 4
LÆKN ANEMINN hrc:3ur), eins og það má gjarnan hc'.ta, þótt kenningarnar um upp- runa sjúkdómsins hafi tekið stakkaskiptum. Líklega hefur þessi trú manna á missmíði sem hér eigi hlut að máli valdið þeirri fárán- legu nafngift, ,,tvíburabróðir“, sem æðimargir íslenzkir sjúklingar — og læknar? — taka sér í munn. ,,Ég er hérna kominn með hann brcður minn á bakinu og langar til að biðja yður að losa mig við hann11, sagði sjúklingur, sem til mín kom ekki alls fyrir löngu. Þetta átti kannski að vera spaug í og með, en var auðvitað full al- vara. Fyrst var skrifað um þennan sjúkdóm 1847, en níutíu og níu árum síðar birtist grein í Lancet eftir tvo lækna, Patey og Scarff, við Middlesex-sjúkrahúsið í Lon- don, þar sem því er haldið fram, að orsök sjúkdómsins sé ekki meðfædd, heldur særist húðin í rassskorunni af líkhárum, sem bori sér æ dýpra og myndi þannig ganga, sem síðan inficerist. Þegar svo hárin losni í fyllingu tímans, hverfi þau inn um fistilopin. Rökin sem styðja þessa kenn- ingu eru margvísleg, en hér skal drepið á fá ein: 1. Sinus pilonidalis kemur aldrei fyrir á bömum og sjaldan ungling- um fyrr en um það leyti sem hár- vöxtur er kominn á fullorðins-stig. 2. Sjúkdómurinn er algengastur meðal þeirra sem eru vaxnir miklu líkhári, dökku og stríðu. 3. Einstök hár og lokkar í fistl- inum eru ævinlega laus og bendir ekkert til þess, ekki heldur vefja- rannsókn á fistil- og cystuveggj- um, að hárin hafi nokkurn tíma staðið þar inni „föstum fótum“. 4. Sjúkdómurinn tekur sig iðu- lega upp eftir rækilega excision á svæðinu, jafnvel margendurtekna, svo að óhugsandi verður að telj- ast að nokkur fistilkrókur eða kimi hafi verið eftir skilinn. 5. Samskonar fistlar koma fyrir — þó sjaldnar sé — á öðrum stöð- um líkamans, í greipum rakara (2. mynd), í amputationsstúfum, ax- illa, perineum og nafla. — Ég hef séð typiskan sinus pilonidalis með hárlokk og öllu tilheyrandi í nafla á tvítugum manni, sem er mjög loðinn og strýhærður. Flestir sem tekið hafa boðskap Middlesex-læknanna trúanlegan, slá þann varnagla að þótt fæstir sacro-coccygeal fistlar séu af með- fæddum rótum runnir, kunni þó einn og einn að vera það, t.d. hjá því fólki, sem engan sjáanlegan hárvöxt hefur á þessu svæði. Spá mín er sú, að þessar efasemda- raddir eigi eftir að þagna með öllu, cg kynni þá skýringin að felast í kenningum þeirra, sem álíta að ,,dauð“ hár annars staðar af bkamanum berist niður eftir bak- inu innan klæða og valdi fistlum. Svo mikið er víst, að sum hárin í sinus pilonidalis „standa á haus“ en önnur ekki og eru þó hvor- tveggja laus. Eins og nærri má geta á kenn- ing þeirra Pateys og Scarffs langt í land að sigra allan hinn kírúrg- íska heim. Átján ár eru ekki lang- ur tími til að þoka úr vegi rótgrón- um, síendurteknum kennisetning- um. En það er fleira en uppruni þessa sjúkdóms, sem skoðanir eru skiptar um; meðferð hans engu síður. Naumast virðist vera hægt að stinga niður penna um sinus Dilonidalis nema segja um leið frá nýrri variation í meðferð. Sumir höfundar vilja kljúfa ganginn upp og skafa, fylla sárið með tróði og láta það holdfyllast, en flestir eru þó enn í dag sammála Thor-

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.