Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Qupperneq 2
Útgefandi: Eyjasýn ehf. - kt. 480278-0549
Ægissgötu 2 - 900 Vestmannaeyjum.
Ritstjórn og ábyrgð: Ómar Garðarsson og Sindri
Ólafsson - omar@eyjafrettir.is - sindri@eyjafrettir.is.
Umbrot: Leturstofa Vestmannaeyjum ehf.
Ljósmyndir: Blaðamenn Eyjafrétta.
Prentun: Stafræna Prentsmiðjan ehf.
Sími: 481 1300
Netfang: frettir@eyjafrettir.is.
Auglýsingar: auglysingar@eyjafrettir.is
Veffang: www.eyjafrettir.is
EYJAFRÉTTIR er áskriftarblað.
Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Guðni Th. Jóhannesson forseti
Íslands sæmdi á nýársdag fjórtán
Íslendinga heiðurs-merki hinnar
íslensku fálkaorðu við hátíðlega
athöfn á Bessastöðum. Meðal
þeirra sem hlutu orðuna í þetta
sinn var Sigurgeir Jónasson
ljósmyndari fyrir störf á vett-
vangi ljósmyndunar og varðveislu
heimilda í heimabyggð.
Bara sami Sigurgeir í Skuld
„Ég er nú alveg rólegur yfir þessu
öllu og held alveg ró minni,“
sagði orðuhafinn þegar við slóum
á þráðinn til hans í vikunni. „Ég
hef alveg sofið ágætlega bæði
fyrir og eftir, ekki orðið fyrir
teljandi breytingum við þetta. Ég
er bara sami Sigurgeir í Skuld.“
Hann segir að það hafi verið
mest krefjandi í þessu ferli öllu
að halda gefið þagnarloforð. „Ég
er nú vanur að segja þeim flest
strákunum á kaffistofunni uppi á
flugvelli. Þeir voru gáttaðir að lesa
þetta á netinu þannig að ég varð
að fara að sýna þeim gripinn. Ég
fékk svo heimild hjá orðuritara til
að deila þessu með fjölskyldunni
með smá fyrirvara. Ég var að fara
að gista hjá dóttur minni og fannst
nú svona líka skemmtilegra að
fólk fengi smá fyrirvara á því að
mæta í samkomu sem þessa.“
Ekkert punt eða prjál
Sigurgeir segir samkomuna sjálfa
hafa verið látlausa og heimilis-
lega. „Þetta var ekkert of mikið
punt eða prjál í gangi þetta voru
bara léttar veitingar og mjög fínar
sörur á boðstólnum.“ Athöfnin
í heild sinni tók um klukkutíma
að sögn Sigurgeirs. „Það tók sinn
tíma að hengja herlegheitin í alla
en þetta var bara notaleg stund og
gaman að koma í þetta merkilega
hús og hitta þau sómahjón sem
voru ekkert nema almennileg-
heitin.“
Aðspurður um það hvort Eyja-
menn megi eiga von á því að
rekast á Sigurgeir með riddara-
kross í barmi á förnum vegi hló
viðmælandinn. „Nei ætli það,
það er til einhver skriffinnska
í kringum það hvenær má nota
þetta en ég hef ekki sett mig ofan
í það og það stendur ekkert til að
fara að skreyta sig með þessu alla
jafna. Ég ætla að leyfa mér að
vera áfram ég sjálfur. Það breytir
því ekki að ég er mjög sáttur með
þetta og þakklátur og vonandi
verðugur,“ sagði Sigurgeir að
endingu.
Sigurgeir í Skuld sæmdur fálkaorðunni:
Þakklátur og vonandi verðugur orðuhafi
Elísa Reed, Guðlaugur Sigurgeirsson, Sigurgeir Jónasson, Guðni Th. Jóhannesson forseti og Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir.
Erfitt er að segja til um hvort
snjórinn sem hrellt hefur Eyja-
menn yfir jólin sé sá mesti og
langsetnasti á seinni árum og
áratugum. Veðurminni er yfirleitt
lítið en örugglega hefur komið
meiri snjór í Eyjum en jafnöruggt
er að hann hefur sjaldan verið
þaulsetnari en nú.
Þegar þetta var borið und-
ir Óskar Sigurðsson, fyrrum
vitavörð í Stórhöfða sagði hann
snjódýptarmælingar mjög óvissar
vegna skafla. Hann nefndi þó
nokkur dæmi um mikinn snjó í
Vestmannaeyjum. Dagana 2. til
4. mars 2008 var mikill snjór í
Eyjum en stoppaði stutt. Hann
var þaulsetnari dagana 13. til 27.
janúar 1993. Það sama má segja
um snjó frá 3. til 14. mars 1979
sem var eitt kaldasta ár síðustu
aldar. Margir sem komnir eru á
efri ár muna eftir mikla snjónum
20. til 24. mars 1968.
Þegar litið er lengra aftur í
tímann, var mikill snjór í Eyjum
2. til 5. maí 1948. Líka 12. til 18.
febrúar 1928 og loks 4. til 10.
mars 1926.
Alla vikuna hafa bæjarstarfs-
menn og verktakar unnið að því
að hreinsa götur bæjarins en sér
varla högg á vatni slíkt er snjó-
magnið. Um helgina spáir hláku
en ekki er von á alvöru þýðu fyrr
en um miðjan mánuð.
Mikill snjór en dýptarmælingar óvissar