Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Side 4

Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Side 4
4 | | 6. janúar 2023 Föstur hafa lengi verið taldar góðar fyrir okkur mannfólkið og hafa verið iðkaðar lengi af mörgum mismunandi hópum. Það er stækkandi hópur bæði hér í Eyjum, uppi á fasta- landinu og úti í hinum stóra heimi, sem stundar föstur reglulega undir handleiðslu Jóhönnu Jóhannsdóttur á sérs- tökum föstu námskeiðum. Jóhanna fór fyrst af stað með námskeiðin árið 2020 þegar fyrirtæki hennar, Hressó, varð að loka vegna kórónuveirufar- aldurs og Jóhanna hafði nægan tíma til að huga að og prófa eitthvað nýtt. ,,Hugmyndin kemur í raun og veru frá ýmsum stöðum. Ég er sjálf dugleg að taka þátt í erlendum námskeiðum á netinu. Eitt námskeið var um hversu mikilvægt er að þarmaflóra fólks sé heilbrigð, hvernig við getum breytt henni, meðal annars með föstum og réttri fæðu. Ég fór svo á námskeið í háskólanum á því sviði og tók nokkra fyrirlestra um föstur og lotu föstur. Ég las einnig bókina 800 fastan eftir Dr. Micael Mosley og fór aðeins að skoða og prufa mig áfram í bæði 800 föstum og hreinum vatnsföstum,” sagði Jóhanna og bætti við að hún væri einnig mikil áhugamanneskja um sálfræði. ,,Ég hef lært margt á því sviði í gegnum tíðina sem ég nota einnig óspart á nám- skeiðunum. Ég veit að það er mun auðveldara að standast áskoranir í hóp heldur en aleinn og það er alls ekki sama hvernig maður hugsar þetta ferli,” sagði Jóhanna. Allir hafa gott af því að fasta Hvers vegna er gott fyrir mann að fasta? ,,Það er gott að gefa kerfinu smá frí. Við förum að brenna fitu í stað kolvetna og ganga á þær birgðir sem við höfum. Ef við förum í lengri föstur þá fer af stað ferli sem kallast á íslensku sjálfsát frumna. Þá hefst einskonar jólahreingerning í líkamanum. Þá fer líkaminn að leita uppi prótein og byrjar að eyða eigin frumum, en hann tekur einungis frumur sem eru eitthvað farnar að gefa sig eða eru úr sér gengnar. Talið er að einmitt þær frumur hefðu orðið til vandræða í framtíðinni og þróast út í sjúkdóma og verki. Nokkrir hafa einmitt upplifað dularfullt hvarf til dæmis á verk í hné eða öxl eftir að hafa fastað. Framleiðsla á vaxtarhormóni sem kallast HGH eykst einnig í föstum, en það er eftirsóknarvert til þess að byggja upp vöðvastyrk eftir að föstum líkur. Það er gott fyrir alla að staldra einstaka sinn- um við og skoða hvað er að fara ofan í líkamann. Það er hollt að verða svangur. Það er sjúklega gott að borða hollan mat rólega og í friði eftir föstur, matur verður eitthvað allt annað og meira en við erum vön. Þetta er líka leið út úr þæginda- hringnum, gera eitthvað nýtt, þjálfa sjálfsagann og skora á sjálfan sig, búa til nýjar og hollari venjur og læra eitthvað nýtt – það hafa allir gott af því,” sagði Jóhanna. Úr þremur í tæplega hundrað þátttakendur Aðspurð sagði Jóhanna að hún hefði verið að hugsa um að hætta við þegar aðeins þrír einstaklingar hafi skráð sig til leiks, en ákvað að láta slag standa og sér ekki eftir því í dag. ,, Ég var að hugsa um að hætta við, þegar aðeins þrír skráðu sig og gleyma þessari hugmynd en ég er glöð að ég gerði það ekki – heldur samdi ég bara við þessa þrjá um að keyra þetta af stað þrátt fyrir fámenni. Þá fékk ég tíma til að æfa mig að hafa námskeið á netinu og halda utan um svona hóp. Ég ákvað að prófa aftur og þá komu 10 manns, svo 20 manns og svo 40. Síðan þá hefur þátttakan verið mjög góð, að meðaltali um 70 manns á hverju námskeiði. Þetta er að spyrjast út, ég er komin með hóp af fólki sem ég þekki í rauninni ekki neitt en hefur frétt af námskeiðunum í gegnum aðra, bæði fólk af fasta landinu og erlendis frá til dæmis frá Noregi, Bandaríkjunum og Kanada,” sagði Jóhanna en hún hefur núna haldið þrettán svona námskeið. ,,Þau eru alltaf að þróast og verða betri og ég að verða öruggari og fróðari. Ég held námskeiðunum lifandi, til dæmis með fyrirlestri í beinni í upphafi hvers námskeiðs. Grunnurinn er alltaf sá sami en það er alltaf eitthvað nýtt og spennandi með,” sagði Jóhanna. Fólk kemur aftur og aftur Hvernig lýsa þessi námskeið sér? ,,Upphafið er að hlusta á fyrir- lesturinn sem ég set inn á hópinn á netinu. Hann kemur fólki í rétta gírinn og hjálpar til við að stilla hausinn rétt en það er það langmikilvægasta sem þú gerir á námskeiðinu. Við föstum svo í 24 tíma – tökum svo nokkra daga í 800 föstu sem er að borða 800 kaloríur á dag. Í framhaldi af því kemur aftur hrein vatnsfasta og yfir í 800 föstu í nokkra daga. Á lokasprettinum á námskeiðinu reynir þú að taka þína lengstu föstu – En það er val hvers og eins hversu langt það er. Ég legg áherslu á að fólk hlusti á sinn eig- in líkama, það er ekkert sem þarf eða verður á þessum námskeið- um,” sagði Jóhanna en hún hefur eignast góðan hóp af fastakúnnum sem koma alltaf aftur. ,,Hversu yndislegt er það að fólk komi aftur og aftur? Það eru nokkrir sem eru orðnir fastakúnnar hjá mér og finnst algjörlega ómissandi að vera með á námskeiðunum mínum a.m.k 2 sinnum á ári. Einnig eru tvær til þrjár manneskjur hafa komið á næstum öll námskeiðin mín,” sagði Jóhanna en næsta námskeið hefst sunnudaginn 15. janúar og skráning á það er hafin. ,,Ef þig langar að vera með þá er bara finna JóJó á facebook og skrá sig – svo einfalt er það,” sagði Jóhanna. ,,Mig langar að þakka öllum sem hafa komið á námskeiðin mín, þetta hafa verið ævintýralega skemmtileg ferðalög og það er svo góð tilfinning að fá línur frá fólki sem hefur gjörbreytt lífinu eftir að það kynntist föstum. En það að fasta reglulega getur verið lífsstíll sem hefur áhrif á öll svið lífsins, fólk léttist á líkama og sál, losnar við verki og sjúkdóma, losar sig við lyf og slæma líðan. En það er með þetta eins og allt annað, hentar sumum ótrúlega vel og öðrum ekki eins vel. En það er alltaf þess virði að prufa,” sagði Jóhanna en hún vildi að lokum koma því á framfæri að allir væru hjartanlega velkomnir. ,,Maður þarf enga sérstaka hæfileika eða reynslu til að vera með, það geta næstum allir verið með á hvaða aldri og í hvaða formi sem er! Þeir sem ekki ættu að koma eru, ungmenni sem eru enn að vaxa, konur með barni og fólk sem á sögu um átröskunar- sjúkdóma. Allir aðrir eru hjartan- lega velkomnir ,” sagði Jóhanna að endingu. Jóhanna Jóhannsdóttir á Hressó Föstur: Fólk léttist á líkama og sál Losnar við verki og sjúkdóma, losar sig við lyf og slæma líðan

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.