Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Blaðsíða 7

Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Blaðsíða 7
6. janúar 2023 | | 7 Fljótlega eftir að ég flutti til Eyja, fæðingarstað og uppeldisstöðvar eiginkonunnar, fórum við hjónin að huga að því koma þaki yfir höf- uðið á fjölskyldunni, sem síðan varð að veruleika með byggingu á húsi okkar að Hrauntúni 6. Fyrstu kynni mín af þeim merka manni, Páli Zophonías- syni voru einmitt tengd þessum byggingarframkvæmdum, þegar ég þurfti útreikninga og ráðgjafar á þakburðarvirki hússins, en í þá daga þurfti ekki að leggja fram sérteikningar þegar byggingarleyfi voru gefin út. Skrapp þá eina kvöldstund til bæjartæknifræðingsins nýráðna, sem bjó neðar á Illugagötunni, ég á 14 en Páll á 7. Þó liðið hafi verið á kvöldið, tók hann mér vel, var ekki lengi að finna út lausnir, sem halda enn. Að fá að borga fyrir viðvikið, kom ekki til greina. Árið eftir fór að gjósa, allt fór úr skorðum, þá reyndi mikið á okkar fólk í for- ystunni, Magnús H. Magnússon bæjarstjóri í hópi reynslumikilla forystumanna í bæjarstjórn og bæjarstafsmanna. Það var mikið lán fyrir okkar byggðarlag að hafa annað eins einvala lið. Þá reyndi mikið á menn ekki síst bæjar- tæknifræðinginn. Seinna þegar maður velti þessum óskapar tímum fyrir sér gerði maður sér grein fyrir því að þarna var réttur maður á réttum stað. Páll varð síðan bæjarstjóri 1976. Í kosningunum 1978 hlaut ég kosn- ingu í bæjarstjórn fyrir Alþýðu- flokkinn, og skömmu seinna þegar Magnús var kosinn á þing varð ég formaður bæjarráðs. Sem gefur að skilja var samstarfið mikið við bæjarstjórann, en bæjarráð er framkvæmdastjórn bæjarins á hverjum tíma. Strax í upphafi samstarfsins fann maður kraftinn og frumkvæðið sem Páll hafði, svo mikið að við tókum tal saman, eftir fyrstu fundina í bæjarráði, um að betra væri að málin væru samþykkt í bæjarráði áður en þau væru fram- kvæmd. Stundum var sem sagt búið að framkvæma það sem var á dagskrá fundarins. Vinnubrögð sem voru þau einu sem dugðu á tímum gossins og endurupp- byggingu í kjölfar þess, þegar taka þurfti ákvarðanir á staðnum, enginn tími til formlegra ákvarð- ana, þær væri alltaf hægt að taka seinna. Í reynd hefði í mörgum tilfellum hvorki gengið né rekið í brýnum verkefnum ef ekki hefði verið fyr- ir frumkvæði og hugrekki þeirra sem stóðu í framvarðarsveitinni á þessum einstöku tímum. Í kosn- ingunum 1982 urðu breytingar á meirihlutaskipun í bæjarstjórn og því miður var Páll ekki endurráð- inn, hafði kannski ekki áhuga, veit lítið um það. Í kosningunum 1986 breyttust hlutföllin aftur, og var það okkar fyrsta verk, sem þá mynduðum meirihluta, að fara þess á leit við Pál að hann tæki aftur við starfi bæjarstjóra. Páll hafði þá stofnað sitt eigið fyrirtæki og var hugur hans allur þar, skiljanlega. Seinna þegar ég var ráðinn á tæknideild bæjarins meðal annars sem eftirlitsmaður fasteigna Vest- mannaeyjabæjar voru samskiptin farsæl. Páll hefur komið víða við fyrir utan atvinnugeirann og má segja að skátahreyfingin hafi ekki síst notið kröftugra starfa hans sem hreyfingin nýtur örugglega góðs af enn þann dag í dag. Það er mikill fengur í fólki eins og Páli og fjölskyldu, hafið þakkir fyrir samstarfið, kynnin og mikil og fórnfús störf fyrir samfélagið okkar. Guðmundur Þorlákur Bjarni Ólafsson. Guðmundur Þ.B. Páll réttur maður á réttum stað: Mikill fengur í fólki eins og Páli og fjölskyldu FRÉTTAPÝRAMÍDINN2022 Páll hefur eytt ófáum stundum við tölvuna og prentarann í gegnum starfsævina. Páll ásamt Björgvini Björgvinssyni vinnufélaga til margra ára. Palli og Mari hafa ýmislegt brallað saman í gegnum tíðina. Guðmundur Þorlákur Bjarni Ólafsson

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.