Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Síða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Síða 12
12 | | 6. janúar 2023 Ísabella Ýr Héðinsdóttir dúxaði á stúdentsprófi þegar hún útskrifaðist af félagsvís- indalínu frá FÍV í desember með meðaleinkunn upp á 7,9. Ísabella Ýr ætlar að nýta tímann fram á haustið til að vinna í Tvistinum en í haust stefnir hún svo á kennaranám við Háskóla Íslands. Ísabella Ýr segir að það hafi ekki eitthvað eitt staðið upp úr eftir skólagönguna sína frá FÍV en hún hóf nám við skólann haustið 2019 ,,Ef ég á að nefna dæmi þá var sturlað gaman í Danmerkurferðinni sem við nemendur í auka dönskuáfanga fórum í með kennurunum okkar, þeim Margréti og Tinnu í október 2022,” sagði Ísabella Ýr en Ísabella Ýr ásamt samnem- endum sínum upplifðu að hluta til öðruvísi framhaldsskóla ár sökum Covid. ,,Námið í Covid gekk bara frekar vel. Mér fannst ekkert hræðilegt að vera heima en þegar leið á var ég byrjuð að sakna þess að mæta í skólann með krökkunum og vera saman að læra inn í sal,” sagði Ísabella Ýr. Á eftir að sakna kennaranna Er eitthvað sem þú átt eftir að sakna við FÍV? ,,Ég á eftir að sakna fullt af hlutum við FÍV. Mér finnst mjög gaman að vera í skóla og að læra þannig að það á eftir að vera skrítið að byrja ekki aftur eftir jólafrí. Það sem ég mun sakna mest er örugglega að vera ekki að hitta suma kennara á hverjum degi eins og maður hefur gert síðastliðin þrjú og hálft ár,” sagði Ísabella Ýr en aðspurð um ráð til tilvonandi stúdenta FÍV stóð ekki á svörum. ,,Bara njótið þess að vera í FÍV á meðan þið getið,” sagði Ísabella Ýr og vildi að lokum þakka kærlega fyrir sig. ,,Takk kærlega fyrir mig, það er klárlega engin lygi að þetta séu bestu árin.” Ísabella Ýr Dúxaði á stúdentsprófi á haustönn: Engin lygi að þetta eru bestu árin Guðbjörg Sól Sindradóttir er nýkomin heim frá Sikiley en þar dvaldi hún yfir áramót ásamt tengdafjölskyldunni. Guðbjörg Sól er formaður nemendaráðs FÍV og hefur haft í nægu að snúast í vetur bæði í námi og sem formaður. ,,Nýliðin önn gekk vel hvað varð- ar námið og félagslíf skólans. Við hjá nemendaráðinu héldum nokkra viðburði. Þar má nefna spilakvöld, fótboltamót innan skólans, fót- boltaleik á móti vinaskóla okkar frá Bretlandi, bingó, FIFA-mót og spurningakeppni,” sagði Guðbjörg Sól en hápunkturinn í félagsllífinu var fótboltaleikur gegn Bretum. ,,Leikurinn stóð uppúr þó allir viðburðir hafi heppnast ægilega vel. Einnig voru nemendur afar sáttir með PlayStation 5 kaup nemendaráðsins,” sagði Guðbjörg Sól. Góð þátttaka nemenda ,,Virkni og þátttaka nemenda hefur verið góð á þessari önn en við vonumst til að sjá enn fleiri á þeirri næstu. Markmið nemenda- ráðsins á komandi önn er að halda einn til tvo viðburði á mánuði sem eiga að höfða til sem flestra. Þannig fáum við fleiri nemend- ur á viðburði sem gerir þá enn skemmtilegri og eftirminnilegri,” sagði Guðbjörg Sól en hápunktur vorannarinar er arshátíð skólans sem alltaf er haldin með pompi og prakt. ,,Árshátíð skólans verður haldin á fyrrihluta annarinnar. Það er viðburður sem allir nemendur bíða spenntir eftir á hverju ári. Við erum full tilhlökkunar fyrir komandi önn og erum spennt að skipuleggja viðburði sem við get- um gert saman,” sagði Guðbjörg Sól að endingu. Guðbjörg Stýrir félagslífinu í FÍV: Kraftur í námi og félagslífi Við sendum handhöfum Fréttapýramídanna hjartans hamingjuóskir með tilnefningunaTIL HAMINGJU!

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.