Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Síða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Síða 14
14 | | 6. janúar 2023 Helgi Rúnar Óskarsson stjórnar- formaður Rannsóknarseturs um menntun og hugarfar er mikill áhugamaður um þetta verkefni og hefur verið ötull talsmaður þess. „Forsagan er sú að ég kynnist Hermundi fyrir nokkrum árum þá var hann að vinna að því að stofna hér rannsóknarsetur um þessi efni og eftir nokkur samtöl ákvað ég að stökkva á vagninn með honum. Ég tek það fram að ég er fyrst og fremst að nálgast þetta sem leikmaður og foreldri en ekki fagmaður í þessum fræðum en hef átt fimm börn í skólakerfinu bæði hér heima og erlendis og þekki því ágætlega til á þeim enda.“ Ekki getað fundið betri stað Helgi segir það hafa verið mjög skemmtilegt og hvetjandi ferli að koma að átakinu Kveikjum neist- ann í Vestmannaeyjum. „Ég held að við hefuðum ekki getað fundið betri stað en Vestmannaeyjar til þess að keyra þetta verkefni. Ég er náttúrulega ekki að segja þér nein- ar fréttir að í Vestmannaeyjum vill oft verða mikil stemmning fyrir hlutnum. Fyrir þessu fann maður oft hérna áður fyrr þegar maður kom til Vestmannaeyja að spila handbolta. Mér finnst það hafa tekist í þessu verkefni að skapa stemmningu fyrir þessu.“ Hann segist þakklátur fyrir það hvernig samfélagið allt í Eyjum hafi tekið þessu verkefni og haldið því á lofti. „Þar má nefna Írisi bæjarstjóra og svo auðvitað skóla- stjórnendur og kennara. Einnig hafa aðrir aðilar stutt vel á bak við þetta verkefni eins og þið fjöl- miðlar og bókasafnið og fleiri og fyrir það allt bera að þakka. Það er frábært að finna það að orðum fylgja aðgerðir en ekki bara orðin tóm eins og oft vill fylgja svona verkefnum.“ Alltaf hægt að gera betur Aðspurður um þörfina fyrir verkefni sem þetta segist Helgi ekki vera í nokkrum vafa. „Það má auðvitað hafa ýmsar skoðanir á menntakerfinu okkar þar er víða verið að gera mjög góða hluti og ég er langt frá því að vera sér- fræðingur í menntamálum. Ég er aftur á móti vel læs á tölfræði og gögn og hef vanið mig á það að horfa á staðreyndir. Það ber öllum alþjóðlegum gögnum saman um það að lestrargeta er á undanhaldi. Það er víða basl að kenna börnum að lesa. Pisa kannanir segja okkur líka að við erum að dragast aftur úr öðrum þjóðum sem við viljum bera okkur saman við. Það er eitthvað sem við getum ekki litið fram hjá. Þegar við sjáum það að ógnir eða vandamál steðja að börnunum okkar þá er það skylda okkar allra sem samfélags að gera það sem við getum til að bæta það. Þó það sé víða verið að gera góða hluti þá er það alveg eins í íþróttum, viðskiptum eða menntamálum það er alltaf hægt að gera betur.“ Treysta á vísindin Helgi segir mikilvægt að fylgjast vel með þróun þessara hluta og laga okkur að breyttum aðstæð- um. „Við erum að sjá ótrúlegar breytingar á börnum í dag og fyrir nokkrum árum. Sérstaklega þegar kemur að afþreyingu og dægradvöl. Tæknin og áreitið sem börn eru með í höndunum allan daginn er ekki hægt að líkja saman við afþreyingu fyrri kynslóða. Það er því fullkomlega eðlilegt að við þurfum að laga okkar kennsluaðferðir að breyttu umhverfi.“ Þarna vill Helgi horfa til vís- indanna. „Við lögðum allt okkar traust á vísindin í heimsfaraldr- inum og uppskárum eftir því. Ég hef trú á því að við getum leyst úr þessum verkefnum á sama hátt og þar er Hermundur á meðal okkur færustu vísindamanna,“ sagði Helgi að lokum. Verkefni okkar allra: Ekki getað fundið betri stað en Vestmannaeyjar Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66° norður stjórnarformaður Rannsóknar- seturs um menntun og hugarfar. FRÉTTAPÝRAMÍDINN2022 Það er með mikilli hlýju og ánægju sem við þökkum fyrir að rannsóknar- og þróunarverkefnið Kveikjum neistann hlýtur viður- kenningu sem framtak ársins 2022 í Vestmannaeyjum. Það gefur okkur öllum sem að verkefninu komum byr í seglin. Við erum einstaklega þakklát bæjarstjóra og öðrum ráða- mönnum í Eyjum fyrir að treysta verkefninu og stíga með þátttöku sinni skrefið í átt að betri árangri barnanna. Við erum einnig mjög þakklát skólastjórnendum og kennurum í GRV, foreldrum og Kára Bjarnasyni forstöðumanni safnahúss Vestmannaeyja og hans starfsfólki fyrir frábært samstarf. Áskoranir Það eru gífurlega miklar áskoranir í íslensku menntakerfi. 38% af 15 ára unglingum ná ekki grunnfærni í lesskilningi og stærðfræði og líð- an barna og ungmenna er stöðugt verri samanber aukna lyfjanotkun síðustu árin. Vísindi Kveikjum neistann byggist á rannsóknum og þekkingu fremstu vísindamanna heims á sviði taugavísinda (Edelman), náms (Ericsson), áhugahvatar (Csikszentmihalyi) og hugarfars (Dweck, Duckworth). Að tengja þessi vísindi við kennslu barna og unglinga er mikil áskorun sem kallar á breyttar áherslur og gífurlegan fókus. Breytt skipulag skóladagsins með áherslu á grunn- færni, hreyfingu, þjálfunartímann og ástríðutímann er lykilatriði í verkefninu. Möguleikar Nú taka um hundrað börn í 1. og 2. bekk grunnskólans þátt í verkefninu. Eftir að það hófst hefur þjálfunartíma verið bætt við í fleiri árganga og lesfimipróf felld niður á unglingastigi. Árangur verkefnisins lofar góðu og náðu öll börn í 1. bekk síðasta skólaár að brjóta lestrarkóðann sem var frábært og framar okkar björt- ustu vonum. Í vor verður tekið stöðumat í lestri hjá börnum i 2. bekk með það að markmiði að 80% þeirra teljist FULL-LÆS eða geti lesið aldurssvarandi texta og skilið innihald hans. Sú reynsla sem komin er bæði hjá kennurum og foreldrum þeirra barna sem taka þátt í verkefninu af breyttu skipulagi skóladagsins er mjög jákvæð og þá bæði fyrir árangur og líðan barnanna. Við horfum bjartsýn fram á veginn og eigum þá von að menntabærinn Vestmannaeyjar verði fyrirmynd annarra bæja – og sveitarfélaga í skóla og mennta- málum. Hermundur Sigmundsson og Svava Þ. Hjaltalín: Áskorun sem kallar á breyttar áherslur

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.