Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2023, Qupperneq 9

Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2023, Qupperneq 9
19. apríl 2023 | | 9 því sem nær dregur jólum. Þá er langmesta salan.“ Grupeixe – Eigið fyrirtæki í Portúgal Eftir að fiskurinn kemur til Portúgal tekur Grupeixe, fyrirtæki í eigu Vinnslustöðvarinnar við fiskinum. „Þar er hann þurrkaður og pakkað í smærri pakkningar, mest í 25 kílóa kassa. Það er fyrir hinn hefðbunda hluta markaðar- ins. Saltfiskur er einnig útvatnaður og frystur, slíkt er þó ekki gert hjá Grupeixe, enn sem komið er. Sala á útvötnuðum fiski fer vaxandi vegna breytinga á neysluvenjum. Fólk eyðir minni tíma í matargerð, ekki síst unga fólkið. Það jákvæða er að það heldur áfram að borða saltfisk en vill fá hann sem mesti tilbúinn. Saltfiskurinn skiptir það máli og er hluti af menningu Portúgala. Hann er eftirsóttur fyrir bragðið, gæðin og hvað hann stendur fyrir.“ Saltfiskur fyrir Spánarmarkað er unninn með öðrum hætti. Sprautu- saltaður, stendur mun skemur í saltinu og er með aðra eiginleika en Portúgalsfiskurinn. „Miklu minni verkun, annað útlit, hvítari og með eiginleika sem Spánverj- um finnst skipta meira máli.“ Vinnslustöðin selur yfir 5000 tonn af saltfiski til Portúgal þar sem Grupeixe vinnur fiskinn. „Áherslan er að vinna íslenskan fisk og fisk frá Vinnslustöðinni en kaupum fisk frá fleiri framleið- endum, íslenskum og norskum. Grupeixe kaupir líka hausaðan frystan þorsk sem er flattur og saltaður þar. Það er allt önnur vara, neðar í gæðastiganum, þótt vissulega sé það góð vara.“ Stærsti markaður fyrir ufsann er í Brasilíu og aðrir markaðir sem skipta máli eru eyjar í Karab- ískahafinu og í Afríku, aðallega í gömlu portúgölsku nýlendun- um, Mosambik og Angóla. „Þar er hefð fyrir neyslu á söltuðum fiski.“ Fjölþjóðlegt samfélag Sverrir segir þetta mikið ferli og sjálfur fylgist hann með fiski sem kemur til vinnslu hjá þeim þar til hann fer í verslanir erlendis. „Við vinnum mjög náið með okkar fólki hjá Grupeixe þar sem Nuno Araujo er framkvæmdastjóri og okkar maður í öllu þar. Hjá Grupeixe vinna rúmlega 40 manns, þar á meðal gott fólk í framleiðslu og sölu sem við höf- um dagleg samskipti og samstarf við, förum yfir stöðuna og tölum mikið saman.“ Nú er vertíð í hámarki og um 70 manns sem vinna við fram- leiðsluna í Eyjum. „Það er mikið að gera núna og vinnudagurinn býsna langur. Venjulegur vinnu- dagur er frá sjö á morgnana til þrjú á daginn en á þessum tíma byrjum við að vinna klukkan fimm og jafnvel fyrr og oftast unnið til fimm á daginn. Mjög langir dagar og unnið fimm til sex daga vikunnar. Mikil vinna en fólk er til í slaginn, kemur hingað til að vinna. Það er um 30 manna kjarni sem er hérna allt árið og svo er fólk sem kemur á vertíð, margir frá útlöndum, auk Íslendinga. Margt fólk kemur frá Portúgal, Póllandi, Úkraínu, Suður Ameríku en einnig víðar að. Allt er þetta fólk sem stendur sig vel og er viljugt en því verður ekki á móti mælt að þetta er erfið vinna,“ sagði Sverrir að endingu. Öflugur hópur í söltuninni. Frá vinstri: Michal Labus, Kristján Möller, Ania Ewa Kiczula, Agnieszka Kiczula, Grzegorz Witold Oredek og Daniela Götschi. Fremstu tvær frá vinstri: Magda Ciuska og Barbara Wanecka. Öll pólsk nema Kristján og Daniela sem er frá Sviss. Laugardaginn fyrir páska í mikilli kótelettuveislu kynnti sjómanna- dagsráð, undir forystu Ríkharðs Zöega Stefánssonar hugmynd að minnismerki um drukknaða sjómenn. Er því ætlaður staður á Skansinum og á því verða rúmlega 480 nöfn sem ná aftur á þrettándu öld. Ríkharður fékk öflugan hóp í lið með sér og liggur mikil vinna að baki. Hönnnuður er Bjarki Sigurjósson og sér Vélsmiðjan Þór um smíðina. Minnismerkið verður á steyptum stöpli sem myndar vítt V. Verða þrjár plötur á hvorum helmingi, tveggja metra háar og samanlögð breidd er níu metrar. Verða þær tvöfaldar og eru nöfnin skorin út í þá fremri og lýst upp þannig að lesa má nöfnin jafnt að degi sem nóttu. „Það má segja að Hallgrímur Rögnvaldsson, veitingamaður og Alfreð Alfreðsson eigi hug- myndina sem strax greip mig heljartökum,“ segir Ríkharður. „Ég kynnti hugmyndina fyrir sjómannadagsráði sem leist vel á. Næsta skref var að fá fólk í lið með okkur og þeir sem ég talaði við voru strax tilbúnir. Verkið er mikið og vandasamt en nú erum við komin með yfir 470 nöfn. Þá var komið að því að finna merkinu stað og fá einstaklinga og fyrirtæki til að styrkja okkur. Niðurstaðan var að setja það upp á Skansinum og með góðri aðstoð hefst þetta. Verður merkið vígt annan júní, föstudaginn fyrir Sjómannadag,“ sagði Ríkharður og má sjá stöpulinn sem búið er að steypa. Nöfnin verða í andlátsröð og eru fyrstu nöfnin frá árinu 1251. Í undirbúningi er gerð forrits þar sem fólk getur sest á sérhannaða bekki sem Frosti Gíslason á hug- myndina að. Getur fólk þá hlustað með snjalltæki á upplýsingar sem þar verður að finna. „Þar erum við að horfa á margra ára verkefni en með meiri upplýsingum eykst gildi minnismerkisins,“ sagði Ríkharður að lokum. Minnismerki um drukknaða sjómenn á Skansinum: Alls rúmlega 480 nöfn frá árinu 1251

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.