Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2023, Blaðsíða 12
12 | | 19. apríl 2023
„Krabbamein varða alla á ein-
hvern hátt. Þriðjungur landsmanna
greinist með krabbamein einhvern
tíma á lífsleiðinni og flestir
upplifa fyrr eða síðar að náinn
ættingi eða vinur fái krabbamein.
Að meðaltali greinast nú um 1800
manneskjur ár hvert hérlendis,“
sagði Sigrún Elva Einarsdóttir,
sérfræðingur hjá Krabbameinsfé-
laginu m.a. í athyglisverðu erindi
sem hún flutti.
„Þó að orsakir krabbameina
megi oftast rekja til samspils
margra þátta sýna rannsóknir
að ýmsar lífsvenjur hafa áhrif á
líkurnar á því að fólk fái ákveðnar
tegundir krabbameina. Meðal
þess sem hefur jákvæð áhrif og
getur dregið úr líkum er að borða
mikið af grænmeti, ávöxtum
og heilkornavörum. Regluleg
ástundun hreyfingar er einnig
verndandi þáttur auk þess að
verja húðina fyrir geislum sólar.
Þættir sem aftur á móti auka
líkur á krabbameinum eru m.a.
reykingar og önnur tóbaksnotkun,
áfengisneysla og mikil neysla á
rauðu kjöti og unnum kjötvörum.
Áætlað er að hægt væri að koma
í veg fyrir allt að 4 af hverjum
10 krabbameinstilfellum með
heilbrigðum lífsháttum.“
Bregðist fljótt við
Sigrún Elva sagði mikilvægt að
fólk þekki einkenni sem geta
bent til krabbameins og bregðist
fljótt við þeim ef þeirra verður
vart. „Því fyrr sem krabbamein
greinast, því betri eru batahorfur.
Það er einmitt inntakið í Mottu-
marsátakinu í ár, karlar eru hvattir
til að humma ekki fram af sér að
leita til læknis ef þeir verða varir
við einkenni svosem óvenjulega
blæðingu, hnúta eða þykkildi,
breytingu á meltingu, hægðum
eða þvaglátum, óútskýrt þyngdar-
tap, þráláta hæsi, breytingar á
fæðingarblettum og fleira.
Skilaboðunum er sérstaklega
beint til karlmanna í ljósi þess að
nýleg rannsókn Krabbameinsfé-
lagsins sýndi fram á að karlmenn
sem fundu fyrir einkennum sem
svo reyndust rakin til krabbameins
leituðu sumir seint til læknis og
að jafnaði umtalsvert lengur en
konur. Hátt í helmingur karlanna
beið í þrjá mánuði eða lengur og
14% þeirra beið í ár eða lengur.
Krabbameinsfélagið hvetur
alla til að taka sem flest skref í
átt að heilsusamlegum lífshátt-
um sem geta dregið úr líkum á
krabbameinum og að humma
ekki fram af sér að leita til læknis
ef einkenna verður vart,“ sagði
Sigrún Elva og benti fólki á vefinn
þeirra, www.krabb.is. Þar er hægt
að lesa ýmislegt um krabbamein
og starfsemi félagsins.
Sigrún Elva hjá Krabbameins-
félaginu 1800 greiningar á ári:
Rétt mataræði og
hreyfing til varnar
Gyða Arnórsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur og deildarstjóri
sjúkradeildar HSU í Vestmanna-
eyjum kynnti þjónustu sem þar
er í boði fyrir skjólstæðinga
með krabbamein. Sérfræðingar í
krabbameinslækningum eru Hlyn-
ur Níels Grímsson og Sigurður
Böðvarsson sem þjónusta HSU
Eyjum. „Sigurður er með stofu í
Eyjum og reynir að koma þriðja
hvern miðvikudag. Stýrir hann
lyfjameðferðum í nánu samstarfi
við hjúkrunarfræðinga dagdeildar
lyfjagjafa í Eyjum. Aðrir sér-
fræðingar í krabbameinslækning-
um með skjólstæðinga frá Eyjum
eru í samstarfi og stýra meðferð
gegnum starfsfólk HSU í Eyjum,“
sagði Gyða.
Dagdeild lyfjagjafa á sjúkradeild
tók til starfa árið 2007 og stóð
Bjarni Sighvatsson fyrir söfnun
fyrir búnaði og tækjum sem þar
eru. Þar eru tveir lyfjagjafastólar
og er opið einu sinni í viku, á
miðvikudögum. „Þar eru bland-
aðar margar gerðir lyfja og gefin
á staðnum, m.a. krabbameinslyf
í æð eða undir húð. Vest-
mannaeyjar eru einn af
fjórum stöðum á landinu
þar sem þessi þjónusta er
í boði.
Erum við í nánu
samstarfi við blöndunar-
deild Landspítalans og
notum sama búnað. Líka
erum við í samstarfi
við dag- og göngudeild
blóð- og krabbameins-
lækninga LSH. Sérhæfðir
hjúkrunarfræðingar sjá
um að blanda og gefa
krabbameinslyfin og fara
reglulega á námskeið á
LSH. Krabbameinslyfin
eru blönduð í sérstökum
íblöndunarskáp,“ sagði
Gyða.
Í boði er heimahjúkrun,
félagsráðgjöf og dag-
deildin er hluti sjúkradeildar með
góð tengsl við sérfræðinga og
vakthafandi lyflækni.
„Ef kemur til innlagnar vegna
t.d. aukaverkana, verkjastillingar,
sýkingar eða annars bakslags er
sjúkradeildin til staðar til mats og
meðferðar. Deildin býður einnig
upp á hvíldar- og endurhæfingar-
innlögn með daglegri sjúkraþjálf-
un. Það þarfnast umsóknar gegn-
um færni-og heilsumatsnefnd.
Upplýsingar um það er að finna á
island.is,“ sagði Gyða að lokum.
Veitir ráðgjöf og upplýsingar
Sólrún Erla Gunnarsdóttir, félags-
ráðgjafi var nýlega ráðin í hálfa
stöðu á HSU í Vestmannaeyjum.
Starf hennar felst í að veita sjúk-
lingum og aðstandendum ráðgjöf,
upplýsingar, fræðslu og stuðning.
Er hægt að óska eftir viðtali eða
aðkomu félagsráðgjafa í gegnum
hjúkrunarfræðinga og lækna.
Hjá henni er hægt að fá upplýs-
ingar um úrræði sem í boði eru,
ráðgjöf og fræðslu til sjúklinga
og aðstandenda. Félagsráðgjafi er
tengiliður milli sjúklinga og hjálp-
arkerfa þegar þörf er á. Aðstoð við
umsóknir í önnur kerfi, símavið-
töl, eftirfylgd og ráðgjöf. Einnig
aðstoð og stuðningur þegar vinna
þarf úr sorg og áföllum.
Dæmi um félagsleg réttindi
er veikindaréttur hjá vinnu-
veitanda, sjúkrasjóðir stéttar-
félaga, sjúkradagpeningar SÍ,
lífeyrissjóðir, endurhæfingar- og
örorkulífeyrir, ferðakostnaður og
stuðningsþjónusta sveitarfélagsins
svo eitthvað sé nefnt.
Sólrún er með mikla reynslu að
baki m.a sem félagsráðgjafi hjá
Vestmannaeyjabæ, deildarstjóri
öldrunarmála og stjórnandi á
Hraunbúðum ásamt því að hafa
tekið að sér sjálfstæð verkefni og
handleiðslu. Sagðist hún hlakka
til starfsins á HSU og vonaðist
hún til að geta létt undir með fólki
í krefjandi verkefnum lífsins. Hún
hrósaði jafnframt því góða og
fjölbreytta starfi sem unnið er hjá
Krabbavörn í Vestmannaeyjum og
sagði framtak þeirra að halda op-
inn kynningarfund á starfseminni
til fyrirmyndar.
HSU Vestmannaeyjum
Margvísleg þjónusta í boði:
Dagdeild lyfjagjafa
ein fjögurra
á landinu
Náið samstarf við Landspítalann
Félagsráðgjafi styrkir starfið
Þær voru meðal fyrirlesara.
Sólrún Erla Gunnarsdóttir,
Gyða Arnórsdóttir og
Sigrún Elva Einarsdóttir.