Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2023, Blaðsíða 10
10 | | 19. apríl 2023
Þess var minnst í Bókasafni
Kópavogs 5. apríl að 100 ár voru
liðin frá fæðingu Eyjamannsins
Gísla Johnsen Ástþórssonar
blaðamanns, ritstjóra, rithöfund-
ar og teiknara frá Sóla. Ástþór
Gíslason, sjávarlíffræðingur og
elsti sonur Gísla, setti fundinn og
var yfirskriftin 12 Mílur kl. 12. Hún
er sótt í forsíðu fyrsta tölublaðs
Alþýðublaðsins sem kom út undir
ritstjórn Gísla 1958 þegar land-
helgin var færð út í tólf mílur.
Stefán Pálsson sagnfræðingur
rakti ævi og störf Gísla fyrir nær
fullsetnum sal áheyrenda.
Gísli fæddist í Reykjavík 5.
apríl 1923 og lést 25. ágúst 2012
í Kópavogi. Foreldrar hans voru
Ástþór Matthíasson lögfræðingur
og forstjóri og kona hans Sísí
Matthíasson, fullu nafni Jóhanna
Sigríður Gísladóttir Johnsen
Matthíasson, húsfreyja. Ástþór
faðir hans flutti til Vestmannaeyja
að loknu lögfræðiprófi árið 1924
og vann m.a. í verslun tengdaföður
síns Gísla J. Johnsen. Ástþór var
lengi framkvæmdastjóri og eig-
andi Fiskimjölsverksmiðju Vest-
mannaeyja (FIVE), Gúanósins.
Hann sat einnig í bæjarstjórn
Vestmannaeyja 1934-1946 og var
forseti bæjarstjórnar allan þann
tíma.
Gísli Johnsen Ástþórsson bar
nafn móðurafa síns, Gísla J.
Johnsen (f. 1881, d. 1965) sem
var umsvifamikill athafnamaður í
Vestmannaeyjum á sinni tíð. Hann
hóf verslunarrekstur aðeins 17
ára gamall og hóf síðan útgerð. Á
aðeins tíu árum tókst honum að
minnka umsvif Brydesverzlunar
og bæla niður danska einokun
sem verið hafði um langa hríð.
Gísli lét flytja fyrsta vélknúna
fiskibátinn til Vestmannaeyja 1904
og var dugmikill útgerðarmaður.
Hann reisti húsið Breiðablik við
Kirkjuveg og hafði forgöngu um
að fiskimjölsverksmiðja var sett
upp í Vestmannaeyjum. Þá var
Gísli helsti hvatamaðurinn að því
að Sjúkrahús Vestmannaeyja, sem
nú er ráðhús, var byggt.
Gísli J. Ástþórsson ólst upp hjá
foreldrum sínum í Vestmanna-
eyjum á yngri árum en bjó hjá
móðurforeldrum sínum í Reykja-
vík á vetrum eftir að skólagangan
hófst og var þá í Eyjum á sumrin.
Hann fór í Menntaskólann í
Reykjavík en hætti í 4. bekk og
fór til Bandaríkjanna haustið 1942
þegar seinni heimsstyrjöldin stóð
sem hæst. Gísli sigldi vestur um
haf með Brúarfossi í skipalest og
tók siglingin 20 daga. Hann hóf
nám í háskóla Norður-Karólínu
(University of North Carolina)
í Chapel Hill og stefndi fyrst á
að læra viðskiptafræði eins og
fjölskylda hans vildi. Hugur hans
beindist þó fljótlega að námi í
blaðamennsku og var hann orðinn
vel skrifandi á ensku eftir aðeins
þriggja mánaða dvöl í Banda-
ríkjunum. Gísli lauk BA gráðu í
blaðamennsku árið 1945 og var
fyrsti Íslendingurinn sem lauk
háskólaprófi í þeirri grein.
Eftir heimkomuna hóf Gísli störf
á Morgunblaðinu og starfaði þar
í fimm ár sem blaðamaður og
fréttastjóri. Hann var ritstjóri Vik-
unnar í fimm ár, gaf út og ritstýrði
fréttablaðinu Reykvíkingi sem
kom út hálfsmánaðarlega 1952.
Gísli tók við ritstjórn Alþýðu-
blaðsins 1958 og gegndi því starfi
til 1963. Hann gjörbylti blaðinu
og innleiddi ný vinnubrögð við
framsetningu frétta, umbrot og
útlit blaðsins. Þar með hófst
blómaskeið Alþýðublaðsins og var
upplag blaðsins stóraukið meðan
á því stóð.
Eftir það var Gísli dagskrárfull-
trúi á Ríkisútvarpinu um tveggja
ára skeið og starfaði síðan við
enskukennslu í nokkur ár. Hann
var svo blaðamaður og ráðgjafi á
Alþýðublaðinu frá 1970 til 1973
er hann hóf aftur störf á Morgun-
blaðinu og vann þar til sjötugs.
Auk frétta- og pistlaskrifa teiknaði
Gísli skopmyndir í blöðin sem
hann starfaði við. Fiskvinnslu-
konan Sigga Vigga er þekktust af
þeim persónum sem hann skapaði.
Bókin Sigga Vigga og tilveran var
fyrsta myndasögubókin sem kom
út með íslenskum persónum. Gísli
hóf að teikna Þankastrik, sem
birtist vikulega í Morgunblaðinu
og hélt svo áfram á DV. Eftir hann
liggja átta bækur, skáldsögur og
smásagnasöfn auk sex kilja með
myndasögunum um Siggu Viggu
og félaga. Að auki birtist fjöldi
smásagna eftir Gísla í sýnisbókum
og tímaritum. Þá skrifaði Gísli
fjögur leikverk, þar af þrjú sjón-
varpsleikrit.
Yfirlitssýning með verkum Gísla
í tilefni af aldarafmælinu var í
Bókasafni Kópavogs 16. mars til
11. apríl. Í tengslum við sýninguna
voru myndasögubækurnar um
Siggu Viggu endurútgefnar. Sýn-
ingin og endurútgáfan nutu stuðn-
ings frá Guðmundi Kristjánssyni í
Brimi og Ísfélagi Vestmannaeyja.
Sýning á verkum Gísla var sett
upp í Bókasafni Kópavogs í tilefni
af 50 ára afmæli Kópavogsbæjar
árið 2005 en þar var hann lengst
af búsettur. Sú sýning var sett
upp í Safnahúsi Vestmannaeyja
sama ár. Ástþór Gíslason sagði
í samtali við Eyjafréttir að þau
systkinin hafi rætt það hvort setja
eigi aldarafmælissýninguna upp í
Vestmannaeyjum. Það þurfi þó að
hafa einhvern aðdraganda.
Afkomendur Gísla J. Ástþórs-
sonar afhentu Landsbókasafninu
5. apríl sl., þegar 100 ár voru liðin
frá fæðingu hans, handrit Gísla
að öllum skáldsögum, smásögum
og leikritum auk frumteikninga
og fylltu þau gögn marga kassa.
Bækurnar um Siggu Viggu fást í
bókaverslunum.
Ritaðar heimildir: Jökull Jak-
obsson, Skáldsagan Brauðið og
ástin og höfundurinn, Félagsbréf,
Reykjavík 1962. Guðjón Friðriks-
son, Nýjustu fréttir, Reykjavík
2000. PÁA viðtal við GJÁ, Gísli
slíðrar pennann, DV, Reykjavík
2003. Björg Eva Erlendsdóttir
viðtal við GJÁ, Svo fór ég í síld,
Íslenskir blaðamenn, Reykjavík
2007. Andlátsfregn, Morgun-
blaðið 27. ágúst, Reykjavík 2012.
Aldarminning, yfirlitssýning á
verkum og ferli Gísla J. Ástþórs-
sonar, sýningarskrá. Kópavogi
2023.
Brautryðjandi í blaðamennsku
Fyrsti Íslendingurinn sem lauk háskólanámi í blaðamennsku
Blaðamaður, ritstjóri, rithöfundur og landsþekktur teiknari
GUÐNI EINARSSON
gudnieinars@gmail.com
Myndina tók Ástþór Gíslason af pabba sínum á stéttinni fyrir framan gamla
húsið heima í Kópavogi.
Stefán Pálsson, sagnfræðingur flutti
athyglisvert erindi um ævi og störf
Gísla J.