Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2023, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2023, Blaðsíða 11
19. apríl 2023 | | 11 Krabbavörn í Vestmannaeyj- um lætur ekki mikið yfir sér en starfsemin er mikilvæg og mun umfangsmeiri en flesta grun- ar. Það kom fram á opnu húsi Krabbavarnar í Akóges 30. mars sl. þar sem kynnt var það sem sjúklingum og aðstandendum þeirra stendur til boða af hálfu félagsins. „Félagið Krabbavörn í Vestmannaeyjum hefur það hlutverk að styðja við einstaklinga sem greinast með krabbamein í Vestmanneyjum og aðstandendur þeirra. Það stuðlar að fræðslu og menntun um krabbamein og krabbameinsvarnir, eflir krabba- meinsrannsóknir, beitir sér fyrir leit að krabbameini á byrjunar- stigi, styður framfarir í með- ferð krabbameina og umönnun krabbameinssjúklinga,“ sagði Kristín Valtýsdóttir um félagið sem var stofnað var 25. apríl 1949 og endurvakið 3. maí 1990. Aðsókn var góð og margt athygl- isvert kom fram, m.a. hvað sjúk- lingum stendur til boða hjá HSU í Vestmannaeyjum. Fólk sagði frá reynslu sinni af baráttunni við krabbamein sem er ekki einn sjúkdómur heldur birtist hann í mörgum myndum. Upphafið er þó það sama, fruma byrjar að fjölga sér óeðlilega og því fyrr sem gripið er inn er von um bata meiri. Einn hápunkturinn var þegar áhöfnin á Dala Rafni kom færandi hendi. Færði Krabbavörn 500.000 krónur sem var afrakstur sölu á dagatali þar sem skipverjar sátu fyrir misjafnlega léttklæddir. „Við þökkum innilega fyrir frábært kvöld sem fór langt fram úr væntingum og fram fór þörf umræða sem átti erindi til allra. Við þökkum innilega fyrir fjár- stuðning sem okkur var veittur af áhöfninni á Dala Rafni, magnaðir peyjar. Við þökkum Einsa kalda fyrir veitingar kvöldsins sem hann gaf til styrktar félagsins og Akóges lagði til húsnæði félaginu að kostnaðarlausu. Hjartans þakk- ir sendum við til allra þeirra sem hugsa til félagsins,“ sagði stjórnin eftir fundinn. Fjölmennt á opnu húsi Krabbavarnar: Skjól og stuðningur við sjúklinga og aðstandendur ÓMAR GARÐARSSON omar@eyjafrett ir. is SAMANTEKT Hátt í eitt hundrað manns sóttu fundinn sem var mjög upplýsandi. Sigurbjörg Kristín Óskarsdóttir, formaður Krabbavarnar flutti athyglisvert erindi um eigin reynslu af baráttunni við krabba- mein sem var ansi hastarleg. „Ég greindist með þríneikvætt illkynja krabbamein á þriðja stigi árið 2014. Það var mjög ört vaxandi. Mér voru gefnar fimmtíu prósent líkur á að ég myndi lifa það af og að miklar líkur væri á endurkomu þess innan sex ára,“ sagði Sigga Stína eins og flestir þekkja hana. „Það var auðvitað mikið högg að greinast. Ég fór í meðferð í ágúst 2014 sem lauk í ágúst 2015 og hér stend átta árum seinna,“ bætti hún við og sagði það er eitt að fá krabbamein og annað að læknast en þá byrji vinnan við að ná fyrri heilsu. „Í mínu tilfelli sködduðust lungun við geislana og því er ég með minna þol en áður og get því miður ekki bætt það. Er með skerta lifrarstarfsemi, á til að fá blöðrur í munninn ef ég borða t.d eitthvað sterkt, mjög sætt eða mat með e-efnum þar sem slímhúðin er léleg. Einnig hafði meðferðin áhrif á sjónina ,“ segir Sigga Stína sem hafði frumkvæðið að karla- kvöldum hjá Krabbavörn sem eru alla miðvikudaga kl.19:30 að Arnardrangi. Þar hittast karlar með krabbamein og aðstandendur einu sinni í viku og ræða málin. Segir Sigga Stína að það megi ekki gleymast að ef maki greinist með krabbamein geti verið gott að hitta aðra sem hafa gengið í gegnum svipaða reynslu. „Upphafið var að karlar voru að koma til mín á skrifstofu Sjóvár og vildu ræða málin, oft þau viðkvæmustu. Þá sá ég að það vantaði stað og stund þar sem þeir gætu hist og spjallað saman um sína líðan. Nú hittumst við viku- lega og þar er allt uppi á borðum. Hjá flestum er það mikil sorg að greinst með krabbamein. Lífið fer úr skorðum og þá getur verið gott og ekki síst fyrir karla að hafa vettvang til að ræða málin,“ sagði Sigga Stína sem vildi bæta við að opinn hittingur er alla þriðjudaga kl.13:00 til 5:00 að Arnardrangi. Ef þú vilt gerast styrktaraðili hjá Krabbavörn Vestmannaeyja er hægt að skrá sig sem félagsmann og kostar það 2.500 kr á ári, ekki há fjárhæð en getur hjálpað mörg- um, hægt er að láta skrá sig inná facebooksíðu félagsins eða greiða inná reikning félagsins. Reikningsnúmer 0582-26-2000 kt. 651090-2029 Stjórn Krabbavarnar Vestmanna- eyja þakkar öllum fyrir þann kær- leik sem þeir hafa sýnt félaginu. Sigga Stína Eitt að veikjast Eftirköstin líka erfið: Gefnar helmingslíkur á að lifa af fyrir átta árum Stendur enn og hafði frumkvæði að sérstökum karlakvöldum Sigurbjörg Kristín.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.