Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2023, Qupperneq 15

Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2023, Qupperneq 15
19. apríl 2023 | | 15 „Ég held að menn fari ekki í orku- skipti fyrr en þeim verði tryggð forgangsorka og fyrirkomulagi á orkusölu verður breytt. Þegar þessi áfangi næst verður að finna milliverð sem seljendur og kaupendur geta sætt sig við. Þetta hefur verið í umræðunni lengi og þá vegna raflýsingar hjá garð- yrkjubændum sem hafa ekki séð sér hag í að setja upp raflýsingu á óskerðanlegum taxta. Þá yrðu þeir ekki samkeppnishæfir við innflutt grænmeti. Það hlýtur að breytast núna því það er umhverfisvænna að rækta hér á landi en að flytja inn grænmeti,“ segir Willum Andersen, tæknilegur rekstrar- stjóri hjá Vinnslustöðinni sem farið hefur í saumana á orkunotk- un og kolefnisspori félagsins síð- ustu tuttugu árin og sett í stærra samhengi. Willum segir að til geta uppfyllt samninga um orkuskipti þurfi að leggja tvo nýja strengi til Vestmannaeyja. „Skoðum þetta út frá Vinnslustöðinni og miðum við mesta álag. Allt á fullu á loðnu- vertíð, þá erum með á forgangi með 6,2 MW álag fyrir utan rafskautaketilinn. Ef við tökum seinni rafskautaketilinn í notkun og keyrum bræðsluna bara á raf- magni þyrftum við 26,2 MW fyrir Vinnslustöðina í heild. Landsnet hefur sagt að árið 2030 ætli þeir að hafa forgangsorku til Vestmannaeyja 50 MW sem er ekki nóg. Ísfélagið þarf ekki minna en við til að standast kröfur um orkuskipti. Ísfélagið og Vinnslustöðin þurfa þá samanlagt 50 MW og laxeldið sem hér er að rísa 15 MW. Þá er annar iðnaður, bærinn sjálfur og sjóvarmadælu- stöðin eftir. Það er mín skoðun er að við þurfum að minnsta kosti 100 MW af forgangsafli árið 2030 fyrir Vestmannaeyjar. Þangað til eru ekki nema sex eða sjö ár en þetta þarf að gera ef við ætlum að standa við alþjóðlegar samþykktir um orkuskipti,“ segir Willum og bætir við að þetta eigi ekki ein- göngu við Vestmannaeyjar heldur standa allir frammi fyrir þessu um allt land. Það þarf því að virkja meira? „Það sem fer mest í taugarnar á mér eru vinnubrögðin á Alþingi þar sem rifist er um einhverja orkupakka og hvaða virkjunar- möguleikar eigi að fara í biðflokk og nýtingarflokk. Á sama tíma er ekki verið að virkja í landinu til að mæta orkuskiptum sem búið er að samþykkja. Það tekur tíu ár að undirbúa hverja virkjun og sterk öfl í samfélaginu beita öllum brögðum til að stoppa allar fram- kvæmdir. Ég segi, eigum við að lifa af landinu eða á landið að lifa á okkur? Allir á rafbíla, og svo er hvergi virkjað til að koma þeim á milli staða.“ Orkuskipti kalla á raforku Willum segir að við svo verði ekki búið. „Orkuskipti kalla á raforku. Það þarf ekki að ræða það frekar. Það er allt gott að segja um orkuskipti en það verður ekki bæði sleppt og haldið. Það er rætt um rafmetanol sem lausn á loftslagsvandanum en það er enn- þá langt í að hægt verði að knýja skip áfram með rafmetanoli. Þær lausnir sem eru á borðinu í dag til framleiðslu eru mjög meng- andi. Til að framleiða tíu til 20 kílóvattsstundir af metanoli þarftu 100 kílóvattsstundir af rafmagni. Er það umhverfisvænt þó um sé að ræða endurnýjanlega orku? Nei, það er umhverfissóðaskapur sem hvergi kemur fram í um- ræðunni. Það er sameiginlegt með öllum þessum nýju orkugjöfum sem eiga að koma í staðinn fyrir olíu er lélegt orkuinnihald. Mjög dýrir í framleiðslu. Ef menn myndu stefna á að knýja fiskiskip- in með þessu eldsneyti þá yrði að breyta lögum um fiskveiðistjórn með tilliti til stærðar báta og vegna þess hversu orkuinnihaldið er lítið þarf mun stærra tankapláss í þessa báta til að koma því fyrir. Willum Andersen Umræða um orkuskipti á villigötum: Þarf tvo nýja strengi og 100 MW til Eyja fyrir 2030 Allir á rafbíla kallar á meiri raforku Ekkert virkjað Rifist um orkupakka Sterk öfl á bremsunni Bræðsla VSV er með tvo rafskautakatla sem nýtast illa vegna skertrar raforku. Mynd Addi í London. Willum Andersen. Mynd Addi í London. ÓMAR GARÐARSSON omar@eyjafrett ir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.