Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2023, Page 17

Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2023, Page 17
19. apríl 2023 | | 17 aftur upp í efstu deild. Við fórum taplausar í gegnum mótið sem er frábær árangur. Ég var mjög ánægð í FH og félagið á alltaf stað í hjarta mér, rétt eins og ÍBV. Það er gott að enda ferilinn á góðum nótum,” sagði Sísí Lára. Alltaf heiður að klæðast bláu treyjunni Sísí Lára á að baki samtals 50 leiki með landsliðum Íslands, U-17, U-19 og A landsliðinu. ,,Það eru forréttindi og mikill heiður að spila fyrir landsliðið. Ég man eftir fyrstu lands- liðsferðinni með U-17 ára landsliðinu þegar við fórum til Færeyja. Við vorum með mjög sterkt lið og komumst í loka- keppnina sem haldin var í Sviss og við kepptum á móti sterkum þjóðum, Spáni og Þýskalandi. Ég spilaði 30 landsleiki fyrir bæði U-17 og U-19. Ég spilaði minn fyrsta A-landsleik 2016 og fór með landsliðinu á EM í Hollandi 2017. Það er klárlega einn af hápunktum ferilsins. Ég spilaði 20 A-landsleiki og það var alltaf mikill heiður að klæðast bláu treyjunni,” sagði Sísí Lára. Hvað stendur uppúr þegar þú lítur til baka? ,,Þegar ég lít til baka yfir ferilinn minn þá stendur alveg margt upp úr eins og að fara á EM, landsleikirnir, bik- armeistaratitillinn með ÍBV, Noregsmeistaratitillinn með Lilleström, vinna Lengju- deildina og komast upp í efstu deild með FH. Ég eignaðist líka góðar vinkonur í gegnum fót- boltann sem ég mun halda í að eilífu. Það er mjög dýrmætt og það eru mínar bestu vinkonur í dag. Á ferlinum kynntist ég frábæru fólki sem starfar innan knattspyrnuhreyfingannar, hvort sem það eru þjálfarar, liðstjór- ar, starfsfólk hjá liðunum og sjálfboðaliðar. Allt er þetta fólk sem vinnur mikil og góð störf,” sagði Sísí Lára. Komin heim Sísí Lára flutti eftir tímabilið í fyrra aftur heim til Vestmanna- eyja ásamt kærasta sínum, Ísaki Rafnssyni, sem leikur handbolta með ÍBV. „Það er gott að vera komin aftur heim til Eyja. Ég er í mastersnámi í kennaranum og samhliða því er ég umsjónar- kennari í 5. bekk. Mér finnst það ótrúlega gaman. Ég er farin að hlaupa eitthvað, er komin í hlaupahóp hjá Frikka sem er mjög skemmtilegt. Það er gott að finna einhver ný áhugamál og mæta á æfingar með hópi af fólki og er það svona eins og að mæta á fótboltaæfingu. Ég stefni svo á að vera dugleg að spila golf og svo bara njóta lífs- ins,” sagði Sísí Lára að lokum. Eyjamenn hafa ekki farið vel af stað í Bestu deildinni, töpuðu 2:1 fyrir Val í fyrstu umferðinni og 3:0 gegn KA í þeirri seinni. Áttu strákarnir mjög góðan fyrri hálfkeik gegn Val og komust yfir og áttu ótal færi. Í seinni hálfleik gáfu þeir eftir og fengu á sig tvö heldur ódýr mörk. KA var sterkara liðið og úrslitin sanngjörn. Það hefur þó verið margt jákvætt í leik ÍBV sem hægt er að byggja á en ákveðið áhyggjuefni hvað hópurinn er þunnskipaður, til að mynda voru einungis fjórir útileikmenn á bekknum á móti KA og því má ekki mikið út af bregða varðandi leikbönn eða meiðsli. Karlarnir enn án sigurs Guðjón Ernir Hrafnkelsson í harðri baráttu við norðanmenn sem voru einfaldlega betri. Mynd Skapti Hallgrímsson ÍBV vann fyrsta leikinn í slagnum við Stjörnuna í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í Vestmannaeyjum á laugardaginn, 37:33. ÍBV leiddi frá upphafi og var með fjögurra marka forskot í fyrri hálfleik, 21:17. Næsti leikur var í TM-höllinni í Garðabæ í gærkvöldi og þar sem réðist hvort Stjarnan næði að knýja fram oddaleik. Mikil stemning er fyrir úrslitunum og allt gert til að fá fólk í Eyjum á leikinn. „Alvöru stuð og stemning hefur einkennt ÍBV í úrslitakeppni undanfarin ár og núna verður engin breyting á,“ segir í tilkynn- ingu frá ÍBV. Sumir segja ÍBV líklega Íslandsmeistara en leiðin er löng og ljón á veginum. En þeir eiga möguleika. Mörk ÍBV gegn Stjörnunni: Rúnar Kárason 8, Kári Kristján Kristjánsson 8/7, Arnór Viðarsson 7, Sigtryggur Daði Rúnarsson 3, Janus Dam Djurhuus 3, Theodór Sigurbjörnsson 3, Nökkvi Snær Óðinsson 2, Dagur Arnarsson 1, Ísak Rafnsson 1, Sveinn Jose Rivera 1. Varin skot: Pavel Miskevich 11/1, 37,9% – Petar Jokanovic 3/1, 16,7%. Úrslitakeppnin komin á fullt í Olísdeild karla Kári fagnar einu af átta mörkum sín- um í fyrsta leiknum gegn Stjörnunni. Mynd Sigfús Gunnar Sísí var fyrirliði FH þegar liðið fór upp í efstu deild. Sísí hampar bikarmeistaratitlinum með ÍBV 2017.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.