Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2023, Síða 16
Ívar Bessi og Amelía hlutu
fréttabikarana
E Y J A M A Ð U R I N N
Ótrúlega
gaman og
allt í teskeið
Amelía Einarsdóttir er 19
ára hornamaður sem getur
spilað horn báðum megin.
Amelía var í hóp í 36 leikjum
á tímabilinu og fékk meiri
ábyrgð og spilatíma eftir því
sem leið á tímabilið og skilaði
alltaf sínu. Amelía er útsjóna-
samur leikmaður með góða
tækni, frábæra hönd og góðan
leikskilning.
Amelía hefur spilað með
öllum yngri landsliðum Íslands
og hefur farið meðal annars
í umspilsleiki í Serbíu og til
Litháen þar sem Evrópukeppni
B fór fram. Amelía varð
Íslandmeistari með ÍBV í 3., 4.
og 5 flokki auk þess að vera
bikarmeistari í 4. flokki.
Amelía er framtíðarleikmað-
ur og bundnar eru miklar vonir
við hana á næstu árum.
Fullt nafn: Amelía Dís Einars-
dóttir.
Fjölskylda: Einar, Sara, Kristófer
Tjörvi, Aron Gunnar og Jóhann
Darri.
Hefur þú búið annarsstaðar en í
Eyjum: Já, ég bjó í Stykkishólmi.
Mottó: Njóta lífsins.
Síðasta hámhorfið: Outer banks.
Uppáhalds hlaðvarp: Þarf alltaf að
vera grín.
Aðaláhugamál: Aðaláhugamál er
sennilega bara handboltinn.
Eitthvað sem þú gerir á hverjum
degi sem þú gætir ekki verið án:
Bursta tennurnar, gæti ekki sleppt
því.
Hvað óttast þú mest: Köngulær og
stóra fiska.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Bubbi og 1D.
Hvað er velgengni fyrir þér:
Velgengni fyrir mér er í raun bara
að ef þú ert sáttur við það sem þú
ert að gera og ert hamingjusamur
getur enginn sagt þér að þér gangi
ekki vel.
Hvenær byrjaðir þú að æfa hand-
bolta? Ég byrjaði að æfa hand-
bolta þegar ég var 11 ára.
Hvernig fannst þér tímabilið í ár?
Tímabilið í ár verður klárlega eitt
það eftirminnilegasta, bókstaflega
allt í kringum þetta tímabil var
með ólíkindum. Stuðningurinn
var frábær og er ekki hægt að
sjá svona stuðning neins staðar
annars staðar á landinu í kvenna-
íþrótt, umgjörðin í kringum liðið,
sjálfboðaliðar, þjálfarar, ráðið,
allt til fyrirmyndar. Svo skemmdi
árangurinn ekki fyrir en án alls
hins hefði hann ekki orðið.
Sjaldan verið jafn gaman að vera í
handbolta og á þessu tímabili.
Var eitthvað sem kom á óvart í
vetur? Það var eiginlega ekkert
sem kom á óvart á þessu tímabili,
þetta gekk mjög smurt fyrir sig,
ótrúlega gaman og allt í teskeið.
Hver eru markmiðin þegar kemur
að handbolta? Mín markmið
þegar kemur að handbolta hafa
verið breytileg síðustu ár og er
ég ekki ennþá komin með 100%
niðurstöðu, ég ætla að vera alla-
vega eitt tímabil í viðbót í Eyjum
og svo sé ég bara til.
Hvað tekur nú við þegar tímabil-
inu er lokið? Fókusinn núna er að
vera klár fyrir næsta tímabil og
framhaldið er óákveðið.
Eitthvað að lokum? Ég vil þakka
fólkinu sem vinnur að því að gera
þetta mögulegt og gerir allt fyrir
okkur.
Geðveikt að
fá að taka
þátt í þessu
Ívar Bessi Viðarsson er 17 ára
vinstri skytta en er þó líklega
þekktastur fyrir varnarleik sinn
en hlutverk hans í meistara-
flokki ÍBV hefur verið stigvax-
andi á tímabilinu en hann var í
hóp í 27 leikjum á tímabilinu.
Ívar Bessi var í lokahóp
-17 á síðasta ári þegar liðið
hafnaði í sjötta sæti í hand-
knattleikskeppni Ólympíu-
hátíðar Evrópuæskunnar í
Slóvakíu.
Ívar Bessi er ótrúlega dugleg-
ur drengur, tilbúinn að leggja
á sig það sem þarf til að ná
árangri. Er með DNA sem ein-
kennir ÍBV vörnina. Hefur alla
tíð æft virkilega vel og er eins
og svampur þegar kemur að
leiðsögn, segir meðal annars
um Ívar Bessa í umsögn þjálf-
ara um hann.
Ívar Bessi á svo sannarlega
framtíðina fyrir sér.
Nafn: Ívar Bessi Viðarsson.
Fjölskylda: Tveir bræður, ein
systir.
Hefur þú búið annarsstaðar en í
Eyjum: Nei.
Mottó: Ætlaði að ljúga einhverju
en á ekkert mottó.
Síðasta hámhorfið: Brooklyn nine
nine.
Uppáhalds hlaðvarp? Þarf alltaf
að vera grín eða beint í bílinn.
Aðaláhugamál: Íþróttir aðallega.
Eitthvað sem þú gerir á hverjum
degi sem þú gætir ekki verið án:
Fara í sturtu.
Hvað óttast þú mest: Nálar/
sprautur.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: House music þessa dagana.
Hvað er velgengni fyrir þér: Að
græða pening á því að gera það
sem þér finnst gaman.
Hvenær byrjaðir þú að æfa hand-
bolta? 6 ára.
Hvernig fannst þér tímabilið í ár?
Tímabilið í ár fannst mér gott,
geðveikt að fá að taka þátt í þessu.
Var eitthvað sem kom á óvart í
vetur? Úrslitakeppnin kom mér
á óvart það er að segja hvaða lið
endaði í hvaða sæti (fyrir utan það
að við unnum).
Hver eru markmiðin þegar kemur
að handbolta? Væri geðveikt að
komast út.
Hver er af ykkur bræðrum er
bestur? Allt er þegar þrennt er,
heyrði ég.
Hvað tekur nú við þegar tímabil-
inu er lokið? Ég verð eitthvað í
landsliðsverkefnum en fyrir utan
það ætla ég að vinna, lyfta og éta
í sumar.
Eitthvað að lokum? Neibb.
16 | | 15. júní 2023 Umsjón: GÍGJA ÓSKARSDÓTTIR