Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2023, Side 9

Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2023, Side 9
21. september 2023 | | 9 á Kirkjuveginn í Eyjum í byrjun febrúar. „Áður en við fluttum hingað þá hafði ég heimsótt manninn minn og líkaði mjög vel við mig. Fjöllin, fossarnir, norð- urljósin og þessi náttúra er hreint stórbrotin. Um tíma bjuggum við á Tálknafirði og ég vann þar í einhverja þrjá mánuði. Þar var ég líka að vinna við þrif á svipuðum gámahúsum.” Hún segir notalegt að búa í Eyjum og íbúana hafa tekið vel á móti þeim. Þá séu aukin lífsgæði fólgin í því að losna við bíla- umferðina og verandi umkringd náttúru. „Síðan eru mun betri möguleikar hér upp á framtíðina að gera fyrir barnafjölskyldur miðað við í Lettlandi. Strákarnir kunna vel við sig í skólanum og þegar börnin eru ánægð þá eru foreldrarnir það líka.” Yndislegt að vera orðinn hluti af samfélaginu Christopher Sørensen er stofn- andi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins Plast Solutions ApS í Danmörku sem framleiðir allar gerðir plasts fyrir fiskeldi, lífgas og iðnað. Þá sérhæfa þau sig í uppsetningu á tæknilögn- um og fiskeldiskerfum eins og þess sem unnið er að fyrir ILFS. Áhersla er lögð á sjálfbærni og umhverfisvænar lausnir. „Þannig að við erum hér til að aðstoða við byggingu og uppsetningu núverandi verkefna og meðal annars að sjóða saman alls konar plasteiningar.” Plast Solutions var stofnað árið 2018 eftir að Christopher hafði tekið eftir vaxandi þörf fyrir fiskeldisframkvæmdir og vildi bjóða upp á sérhæfðari lausnir fyrir atvinnugreinina. Í dag eru nokkrir hluthafar í félaginu og eru starfsmenn orðnir fimmtíu talsins. „Við mættum hingað í byrjun maí og það hefur verið algjörlega frábært að koma til Íslands. Við höfum aðallega verið að vinna út í Noregi þannig að þetta er svolítið öðruvísi og þessi eyja sérstaklega, hún er alveg einstök. Við höfum verið hérna í teymum til skiptis. Hvert teymi er hér í þrjár til fjórar vikur að vinna og fer svo heim í tvær vikur” segir Christopher. Christopher býr í búðunum við Helgafell og segir aðstöðuna þar góða. Hann er nýmættur aftur til Vestmannaeyja eftir að hafa verið í Esbjerg á suðvestur Jótlandi þar sem eiginkona hans og dóttir þeirra eru búsett. Fjölskyldan á svo eftir að sameinast á ný þegar mæðgurnar flytja til Eyja í byrjun október. „Það er yndislegt að vera orðinn hluti af þessu litla eyjasamfélagi og okkur hlakkar til að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér” segir Christopher að síðustu. Við erum ekki að vinna í ballett Inn í botni er hægt að rekast á vinina Krystian Czepiél og Piotr Maolzik frá Póllandi. Krystian er 35 ára verkstjóri við seiða- stöðina og hefur verið búsettur á Íslandi síðan 2017. Hann kom til Vestmannaeyja í byrjun árs og býr í búðunum við Helgafell. „Það er mjög fínt að búa þar og maður kynnist fólki frá öllum heimshornum. Það getur samt stundum verið erfitt að búa með svona mörgum karlmönnum sem þurfa oft að losa um streitu og fá einhvers konar útrás. Síðan eru kannski sumir kvarta undan hvor öðrum en svona er þetta, við erum ekki að vinna í ballett.” Geturðu séð fyrir þér að eiga heima hérna í framtíðinni? „Ég get því miður ekkert sagt um það núna. Ég þarf bara að elta verk- efnin. Ég verð örugglega hérna í einhver þrjú til fjögur ár þar til við erum búin með seinni hlutann austur í fjöru og svo sjáum við bara til hvað gerist. Ég væri alveg til í að eignast fjölskyldu hérna en eftir þetta verkefni þá þarf ég ef til vill bara að elta það næsta,” segir Krystian en hann er mjög ánægður á Íslandi og þá sérstak- lega ánægður með veðurfarið. „Það er aldrei of heitt né of kalt. Þetta er bara akkúrat eins og það á að vera. Síðan er ég líka mikið fyrir rok þannig að þetta er bara fullkomið.” Ætlar að deyja hérna Piotr, eða Pétur eins og hann er kallaður á íslensku, er smiður frá Kraká og hefur búið á Íslandi í að verða tvo áratugi. Hann er orðinn nokkuð sleipur í að tala íslensku og hefur verið að mæta á íslensku- námskeið. Hann leigir einbýlishús í Eyjum og fær fjölskylduna í heimsókn til sín í næstu viku. „Ég ætla að deyja hérna” segir hann staðfastur er spurður hvort hann ætli að búa á Íslandi í framtíðinni. Sólveig Rut og Renāte í annarri kaffi- og eldunaraðstöðu búðanna. Krystian Czepiél og Piotr Maolzik. Renāte, Endijs, Sandris og Deivids. Borðtennisborðið er einkar vinsælt meðal íbúa hótelsins. Christopher Sørensen, fram- kvæmdastjóri Plast Solutions ApS.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.