Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2023, Qupperneq 9
21. september 2023 | | 9
á Kirkjuveginn í Eyjum í byrjun
febrúar. „Áður en við fluttum
hingað þá hafði ég heimsótt
manninn minn og líkaði mjög vel
við mig. Fjöllin, fossarnir, norð-
urljósin og þessi náttúra er hreint
stórbrotin. Um tíma bjuggum
við á Tálknafirði og ég vann þar í
einhverja þrjá mánuði. Þar var ég
líka að vinna við þrif á svipuðum
gámahúsum.”
Hún segir notalegt að búa í
Eyjum og íbúana hafa tekið vel á
móti þeim. Þá séu aukin lífsgæði
fólgin í því að losna við bíla-
umferðina og verandi umkringd
náttúru. „Síðan eru mun betri
möguleikar hér upp á framtíðina
að gera fyrir barnafjölskyldur
miðað við í Lettlandi. Strákarnir
kunna vel við sig í skólanum og
þegar börnin eru ánægð þá eru
foreldrarnir það líka.”
Yndislegt að vera orðinn
hluti af samfélaginu
Christopher Sørensen er stofn-
andi og framkvæmdastjóri
fyrirtækisins Plast Solutions
ApS í Danmörku sem framleiðir
allar gerðir plasts fyrir fiskeldi,
lífgas og iðnað. Þá sérhæfa þau
sig í uppsetningu á tæknilögn-
um og fiskeldiskerfum eins og
þess sem unnið er að fyrir ILFS.
Áhersla er lögð á sjálfbærni og
umhverfisvænar lausnir. „Þannig
að við erum hér til að aðstoða
við byggingu og uppsetningu
núverandi verkefna og meðal
annars að sjóða saman alls konar
plasteiningar.”
Plast Solutions var stofnað árið
2018 eftir að Christopher hafði
tekið eftir vaxandi þörf fyrir
fiskeldisframkvæmdir og vildi
bjóða upp á sérhæfðari lausnir
fyrir atvinnugreinina. Í dag eru
nokkrir hluthafar í félaginu og eru
starfsmenn orðnir fimmtíu talsins.
„Við mættum hingað í byrjun
maí og það hefur verið algjörlega
frábært að koma til Íslands. Við
höfum aðallega verið að vinna út í
Noregi þannig að þetta er svolítið
öðruvísi og þessi eyja sérstaklega,
hún er alveg einstök. Við höfum
verið hérna í teymum til skiptis.
Hvert teymi er hér í þrjár til fjórar
vikur að vinna og fer svo heim í
tvær vikur” segir Christopher.
Christopher býr í búðunum við
Helgafell og segir aðstöðuna þar
góða. Hann er nýmættur aftur til
Vestmannaeyja eftir að hafa verið
í Esbjerg á suðvestur Jótlandi
þar sem eiginkona hans og dóttir
þeirra eru búsett. Fjölskyldan á
svo eftir að sameinast á ný þegar
mæðgurnar flytja til Eyja í byrjun
október. „Það er yndislegt að
vera orðinn hluti af þessu litla
eyjasamfélagi og okkur hlakkar til
að sjá hvað framtíðin ber í skauti
sér” segir Christopher að síðustu.
Við erum ekki að vinna
í ballett
Inn í botni er hægt að rekast á
vinina Krystian Czepiél og Piotr
Maolzik frá Póllandi. Krystian
er 35 ára verkstjóri við seiða-
stöðina og hefur verið búsettur
á Íslandi síðan 2017. Hann kom
til Vestmannaeyja í byrjun árs
og býr í búðunum við Helgafell.
„Það er mjög fínt að búa þar og
maður kynnist fólki frá öllum
heimshornum. Það getur samt
stundum verið erfitt að búa með
svona mörgum karlmönnum sem
þurfa oft að losa um streitu og fá
einhvers konar útrás. Síðan eru
kannski sumir kvarta undan hvor
öðrum en svona er þetta, við erum
ekki að vinna í ballett.”
Geturðu séð fyrir þér að eiga
heima hérna í framtíðinni? „Ég
get því miður ekkert sagt um það
núna. Ég þarf bara að elta verk-
efnin. Ég verð örugglega hérna
í einhver þrjú til fjögur ár þar til
við erum búin með seinni hlutann
austur í fjöru og svo sjáum við
bara til hvað gerist. Ég væri alveg
til í að eignast fjölskyldu hérna
en eftir þetta verkefni þá þarf ég
ef til vill bara að elta það næsta,”
segir Krystian en hann er mjög
ánægður á Íslandi og þá sérstak-
lega ánægður með veðurfarið.
„Það er aldrei of heitt né of kalt.
Þetta er bara akkúrat eins og það
á að vera. Síðan er ég líka mikið
fyrir rok þannig að þetta er bara
fullkomið.”
Ætlar að deyja hérna
Piotr, eða Pétur eins og hann er
kallaður á íslensku, er smiður frá
Kraká og hefur búið á Íslandi í að
verða tvo áratugi. Hann er orðinn
nokkuð sleipur í að tala íslensku
og hefur verið að mæta á íslensku-
námskeið. Hann leigir einbýlishús
í Eyjum og fær fjölskylduna í
heimsókn til sín í næstu viku. „Ég
ætla að deyja hérna” segir hann
staðfastur er spurður hvort hann
ætli að búa á Íslandi í framtíðinni.
Sólveig Rut og Renāte í annarri kaffi- og eldunaraðstöðu búðanna.
Krystian Czepiél og Piotr Maolzik.
Renāte, Endijs, Sandris og Deivids.
Borðtennisborðið er einkar vinsælt meðal íbúa hótelsins.
Christopher Sørensen, fram-
kvæmdastjóri Plast Solutions ApS.