Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2023, Side 12

Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2023, Side 12
12 | | 21. september 2023 Íþrótta-akademía ÍBV og Fram- haldsskólans í Vestmanna- eyjum fór formlega af stað í byrjun árs 2011 og samskonar starf fór af stað við Grunnskóla Vestmannaeyja ári síðar. Akademían hafði lengi verið á stefnuskrá ÍBV-íþróttafélags og var aðsóknin vonum framar fyrsta árið þar sem á fimmta tug iðkenda voru skráðir á fyrstu önn. Markmiðið með þessu sam- starfi hefur frá upphafi verið að efla áhuga, metnað og árangur ungra íþróttamanna í námi og íþróttum, draga úr brottfalli úr íþróttum á viðkvæmum aldri. Einnig að draga úr vímu- efnaneyslu unglinga. Auk þess að bæta þjónustu við afreksfólk og hvetja nemendur til að tileinka sér hugmyndafræði íþrótta í námi og hugmynda- fræði náms í íþróttum. Það vakti athygli blaðamanns að á meðal þeirra fyrstu sem fóru í gegnum Íþróttaakademíu ÍBV hafa fjórir spilað handbolta í efstu deild í Þýskalandi. Það eru þau Elliði Snær Viðarsson sem leikur með Gummersbach, Hákon Daði Styrmisson sem skipti nýlega yfir til Eintracht Hagen en hann lék áður með Gummersbach, Díana Dögg Magnúsdóttir sem leikur með BSV Sachsen Zwickau og Sand- ra Erlingsdóttir leikstjórnandi TuS Metzingen. Þau hafa öll einnig leikið með A-landsliðum Íslands síðustu ár. Við ræddum við þetta öfluga íþróttafólk um akademíuna og hvaða áhrif hún hafði á þeirra árangur. Hornamaðurinn Hákon Daði Styrmisson segir Íþróttaakademíu FIV hafa gert mikið fyrir sig. „Ef mig minnir rétt var ég þrjár annir í akademíunni í Vestmannaeyjum. Þessi tími á þessari námsbraut var skemmtilegur. Við vorum nokkuð mörg í hópnum og einnig góðir vinir. Það var mikið lagt upp með að átta okkur á líkama okkar og fullt af styrktaræfingum og einnig morgunæfingar sem voru handboltaæfingar. Það sem stóð upp úr var kannski að þjálfarinn fékk meiri tíma með hverjum og einum og gat einbeitt sér meira hvar hann vildi setja áhersluna á að bæta.“ Hákon segir þau hafa fengið að prófa ýmislegt og hann hafi séð margar ólíkar áherslur í þjálfun. „Eitt sem stóð upp úr voru æfingarnar og sérstaklega man ég eftir þegar það var dregið fram fimleikadýnu og við vorum látin gera allskonar kúnstir, jafn- vægi, samhæfingar og styrktaræf- ingar á dýnunni. Það hefði verið gaman að eiga upptöku af því.“ Hákon segist ekki vera í vafa um að þessi tími hafi gert mikið fyrir sig. „Þetta ferli hefur hjálpað mér þannig að grunnur minn í handbolta og hreyfigetu er kannski meiri en hjá öðrum og kom fyrr myndi ég segja. Við erum ofboðslega vel þjálfuð heima á Íslandi sérstaklega handboltalega, það er að segja grunnurinn. En það sem er að koma meira og meira inn fyrr er vitund líkamlega hjá okkur líka. Hann mælir heilshugar með þessu fyrir ungt íþróttafólk. „Fyr- ir ungt fólk sem hefur virkilega áhuga á íþróttinni handbolta eða fótbolta eða bara hvaða íþrótt sem er, bara algjörlega. Þetta hjálpar þér alltaf til lengri tíma litið og þú lærir á þig og þinn líkama betur og fyrr en aðrir. Við þurfum að átta okkur á því að við erum í einstakri stöðu í Vest- mannaeyjum, kúltúrinn er þannig að krakkar ná langt, það er bara þannig. Það er ekki á neinum öðrum stað held ég að ég leyfi mér að fullyrða betri þjálfun eða haldið jafnvel utan um krakka og í Eyjum. Samstarf ÍBV og skólanna er einstakt og er hvergi annarsstaðar svona góð og mikil. Sama hvort þú sért uppalinn hér eða kemur á þínum seinni árum er þetta staðurinn til þess að bæði þroskast andlega, líkamlega og handboltalega. Eins og ég sagði þá nær fólk langt hér og það er engin tilviljun. Umhverfið sem fólk og ákveðnir aðilar eru búnir að vinna að og skapa er ótrúlegt og er ég alla vega ævinlega þakk- látur fyrir að alast upp í Eyjum. Díana Dögg Magnúsdóttir hefur verið að gera góða hluti á erlendri grundu síðustu ár. Díana er leik- maður og fyrirliði BSV Sachsen Zwickau en í haust hefur hún sitt fjórða tímabili með liðinu í þýsku 1. deildinni auk þess hefur Díana unnið sér inn fast sæti í íslenska landsliðinu. Díana hefur einnig sinnt krefjandi námi og starfi samhliða handboltanum í landi þar sem hún var tæplega talandi fyrir þremur árum. Díana var fimm annir eða tvö og hálft ár í íþróttaakademíu FÍV en var áður í akademíu GRV. Hún segir akademíuna hafa gert mikið fyrir sig. „Ég lærði ýmislegt í akademíunni, t.d. sjálfsaga, tækni, þolinmæði og þrautseigju.“ Aðspurð um það hvað hafi staðið upp úr segir hún það hafa verið að sjá árangurinn og framfarirnar af æfingunum. „Það var mikil hvatning af því að sjá árangur af þessum auka æfingum, sérstaklega tækniæfingum þær gerðu mikið fyrir mig.“ Hún segist ekki vera í vafa að námið hafi hjálpað henni á sínum ferli. „Akademían bjó mann betur undir þær kröfur sem gerðar voru síðar á ferlinum og allar þær áskoranir.“ Myndir þú mæla með þessu fyrir ungt íþróttafólk? „Ég myndi hiklaust mæla með akademíunni. Vinnusemi, þolinmæði, þraut- seigja og sjálfsagi eru grund- vallarþættir ef íþróttafólk ætlar sér að ná langt og eru þættir sem ungt íþróttafólk ætti að tileinka sér í akademíunni.“ Afreksfólk mælir með akademíunni Vinnusemi, þolinmæði, þrautseigja og sjálfsagi Einstakar aðstæður í Eyjum Díana Dögg Magnúsdóttir. Sandra Erlingsdóttir. SINDRI ÓLAFSSON sindri@eyjafrett ir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.