Upp í vindinn - 01.05.1982, Side 6
Þórarínn Magnússon, verkfr.
Rannsóknastofnun byggingaríðnaðaríns
Snjóflóð —
snjóflóðavarnir
Á undanförnum árum hefur undirritaður átt þess kost að
kynnast nokkuð rannsóknum á snjóflóðum og vörnum gegn
þeim bæði heima og erlendis. Ætlunin er að greina hér stutt-
lega frá nokkrum atriðum sem mál þetta varða.
Haustið 1975 ákváðu Rauði Kross Íslands, Hjálparstofn-
un kirkjunnar og Norðfirðingafélagið í Reykjavík að verja
vöxtum af því fé, sem safnaðist vegna snjóflóðanna í Nes-
kaupstað, til að styrkja menn til náms í snjóflóðavörnum.
Þrír styrkir voru auglýstir og þá hlutu Helgi Björnsson jökl-
afræðingur, Magnús Hallgrímsson verkfræðingur og Þórar-
inn Magnússon verkfræðingur. Styrkþegar hafa síðan farið í
nokkrar kynnis- og námsferðir erlendis (einn til þrír í senn)
og heimsótt Sviss,Noreg,Bandaríkin og Kanada. Auk styrk-
veitenda hafa vinnuveitendur styrkþega borið hluta af
kostnaðinum vegna námsferðanna þ.e. Raunvísindstofnun
Háskólans, verkfræðistofan Hönnun, bæjarsjóður Neskaup-
staðar og Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins.
Að mínu áliti hefur árangur af þessum ferðum verið
góður. Miklum upplýsingum og gögnum hefur verið safnað,
mannvirki skoðuð og tengsl hafa fengist við mjög marga að-
ila sem fást við snjóflóðarannsóknir.
Snjóflóðarannsóknir í Sviss og Noregi.
I Davos í Sviss hefur verið starfandi snjóflóðarannsókna-
stöð frá árinu 1935 og þar eru nú um 30 vísindamenn við
störf allt árið (Das Eidgenössische Institut fur Schnee- und
Lawinenforschung). Þetta er ein stærsta og virtasta snjófl-
óðarannsóknastöð í heimi. Forstöðumaður stöðvarinnar er
Próf. M.de. Quervain en hann kom hingað til lands snemma
árs 1975 og gerði frumathuganir á aðstæðum í Neskaup-
stað, Eskifirði, Seyðisfirði og Siglufirði m.t.t. snjóflóða.
I Noregi var stofnuð sérstök deild fyrir snjóflóða- og skriðu-
rannsóknir á vegum NGI (Norges geotekniski institut) árið
1972 og þar starfa nú 5 menn. Forstöðumaður deildarinnar
Karstein Lied kom ásamt öðrum manni til Neskaupstaðar
haustið 1976 en deildin tók að sér að kanna aðstæður og
gera tillögur um varúðarkerfi og varnarvirki fyrir Neskaup-
stað. Deildin er fús að taka að sér fleiri verkefni íslendinga
verði eftir því leitað enda þótt hún sé mjög störfum hlaðin.
Fyrirbyggjandi aðgerðir
Snjóflóð eru ein þeirra náttúruhamfara sem við íslending-
ar höfum búið við í aldaraðir og oft höfum við orðið fyrir
þungum búsifjum af þeirra völdum. Það er því eðlilegt að
menn spyrji þeirrar spurningar hvort raunhæft sé að tala um
varnir gegn þeim. Að mínu áliti ber hiklaust að svara þeirri
spurningu játandi.
Afl það sem býr í snjóflóðum getur verið gífurlegt (allt að
110 t/m2 hefur mælst) og ekki má búast við að hægt sé að
tryggja fullkomið öryggi gegn þeim en með markvissum
skipulags- og eftirlitsaðgerðum og með byggingum varnar-
virkja - má auka mjög öryggi þeirra sem búa á svæðum þar
sem hætta. getur verið á snjóflóðum.
Snjóflóðavarnir skiptast éinkum í tvo þætti sem þó eru
mjög tengdir þ.e. skipulags-, eftirlits- og viðvörunarað-
gerðir annars vegar og svo byggingu varnarvirkja.
Fyrsta og eitt mikilvægasta atriði þegar rætt er um snjó-
flóðahættu og snjóflóðavarnir á ákveðnu svæði er að safna
upplýsingum um þau flóð sem þar hafa fallið áður. Kanna
þarf hvenær flóð hafa fallið, útbreiðslu þeirra, tjón sem þau
kunna að hafa valdið, athuga hvernig veðurskilyrði hafa
verið, (vindátt, úrkoma, hita o.fl.) gerð flóðanna o.s.frv. Út-
vega þarf loftmyndir, kort og Ijósmyndir og kanna aðstæður
á viðkomandi stöðum s.s. halla, jarðveg o.þ.h. Sé um
byggð svæði að ræða þarf að fá upplýsingar um fjölda,
gerð og starfsemi þeirra bygginga sem þar eru. Á grund-
velli þessara og annarra athugana má svo gera tillögur um
skipulags-, viðvörunar- og eftirlitsgerðir og slíkar athuganir
eru einnig undirstaðan að ákvörðun um byggingu varnar-
virkja.
Þau varnarvirki sem mest hafa verið notuð í baráttunni
við snjóflóð eru: Bremsukeilur úr uppýttum jarðvegi, mis-
stórar eftir aðstæðum. Samsíða raðir af slíkum keilum eru
gerðar rétt ofan við byggð og er þeim ætlað að sundra flóð-
unum og drepa niður orku þeirra. Varnargarðar (ská, þver
og V-laga garðar), þeim er ætlað að breyta stefnu flóðanna,
stöðva eða kljúfa þau. Varnarveggir einkum úr steinsteypu
eru notaðir til að verja einstakar mikilvægar byggingar eða
svæði. Grindverk eru mikið notuð í Sviss einkum efst í
fjöllum og er þeim ætlað það hlutverk að koma í veg fyrir
að flóðin geti losnað. Vegsvalir eru byggðar þar sem
verja þarf mikilvægar samgönguæðar. Þess má geta að
norska vegagerðin hugleiðir nú að draga úr byggingu veg-
svala vegna hins mikla kostnaðar (um 20.000 N.kr./m) og
nota bremsukeilur eða varnargarða að miklu leyti í staðinn.
Svisslendingar hafa þróað ákveðnar hönnunarforsendur við
gerð þessara mannvirkja og byggja þá bæði á reynslu og
rannsóknum. Norðmenn nota þessar forsendur að mestu
óbreyttar.
Ein tegund varnaraðgerða er að koma snjóflóðum af stað
með sprengingum, áður en þau verða hættulega stór. Þetta
er mikið gert í Sviss en eingöngu vegna vega eða skíða-
svæða en ekki ofan við byggð.
Aðgerðir í Neskaupstað
Eins og áður kom fram gerði norska snjóflóðastofnunin
áætlun fyrir Neskaupstað um þær varnaraðgerðir sem
hugsanlegt væri að grípa til. Hér er um að ræða tillögur um
skipulags-, eftirlits- og viðvörunaraðgerðir, svo og um bygg-
ingu mannvirkja. Þar koma fram tillögur um svæðaskiptingu
byggðarinnar, rýmingu, viðmiðunarreglur fyrir eftirlitsjnann
vegna veðurfarsaðstæðna og loks tillögur um varnarvirki og
var þar um að ræða bremsukeilur, varnargarða og varnar-
veggi.
Svo til öllum tillögum Norðmanna hefur nú verið komið í
framkvæmd á Neskaupstað nema byggingu varnarvirkja
enda er einstökum bæjarfélögum ofviða að standa undir
slíkum framkvæmdum án þátttöku ríkisins.
6