Upp í vindinn - 01.05.1982, Blaðsíða 16
Björn Marteinsson, verkfr.
Rannsóknastofnun
Jón Sigurjónsson, verkfr.
Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins byggingariðnaðarins
Loftræstar
útveggia-
I 1 x
klæonmgar
1. INNGANGUR.
Á undanförnum árum hefur oröið mikil aukning á aö íbúö-
arhús séu klædd með loftræstri klæöningu.
Ýmsar orsakir má eflaust finna fyrir þessari þróun, þar á
meðal eru aukin erlend áhrif, ný og betri efni auk stórfelldra
steypuskemmda á höfuöborgarsvæöinu.
Hér verður drepiö á nokkur atriöi varðandi útveggja-
klæðningar og einangrun, en þessum málum veröa gerð ýt-
arlegri skil í væntanlegu riti „Utveggjaklæðningar“ sem gef-
ið verður út innan skamms hjá Rannsóknarstofnun bygging-
ariðnaðarins.
Vel gerð útveggjaklæðning getur gefið húsi gott útlit, þótt
enn sé algengara að verið sé að laga alvarlega byggingar-
galla þegar nýleg hús eru klædd.
Vaxandi er þó að steypt íbúðarhús séu hönnuð fyrir
klæðningu og fylgir þá oftast að húsin eru einangruð utan
frá, enda er það heppileg einangrunaraðferð.
Útveggjaklæðning krefst mikillar vandvirkni og jafnvel
nosturs, ef vel skal takast til með útlit og endingu.
Að mörgu þarf að hyggja og mörg atriðin eru þess eðlis
að þau verða ekki leyst á byggingarstað um leið og upp-
setning klæðningar fer fram.
í þessari örstuttu grein verður reynt að benda á nokkur
þessara atriða.
2. KLÆÐNINGAGERÐIR
Málmklæðningar.
Algengustu klæðningagerðir eru málmklæðningar ýmis
konar. Málmklæðningar skiptast í meginflokkana stál, ál og
járn. Alls eru um 10 aðilar hérlendis sem flytja inn eða
framleiða (selja) þessar gerðir klæðninga, þannig að úrval
er nokkuð fjölskrúðugt. Algengast er að málmklæðningar
séu trapisulaga eða bárulaga en ýmis önnur þversniðslögun
er einnig fáanleg.
Þykkt og húðun er einnig breytileg. Hámarks lengdir eru
breytilegar frá 2,85 og allt upp í 13m. Vissar gerðir er einn-
ig hægt að sérpanta í lengdum eftir eigin vali.
Mikilvægt er að fara vel með málmklæðningar í flutningi
og á byggingarstað vegna þess að yfirborðshúð þeirra getur
auðveldlega skaddast.
Helstu yfirborðshúðanir eru:
1. Sink húðaðar plötur (bárujárn)
2. Ál/sink húöaðar plötur
3. Plasthúðaðar plötur
Segja má að húðunin sé einnig í þessari gæða- og verðröð.
Rétt er að minna lesendur þessarar greinar á mikilvægi
þess að velja festingar við hæfi þeirrar málmklæðningar
sem þeir nota. Sérlega er álið viðkvæmt ef út af er brugðið.
Timburklæðningar.
Notkun timburklæðninga hefur aukist mikið í seinni tíð
bæði vegna aukinnar byggingar timburhúsa og einnig
vegna viðgerðarverka. A.m.k. sex aðilar selja timburklæðn-
ingar af ýmsum gerðum. Af mismunandi klæðningum má
nefna klæðningarborð sem notuð eru saman eða með
fölsum, einnig virðist tvíbyrt útveggjaklæðning vera vinsæl.
Er þá jöfnum höndum valið að nota misbreið eða jafnbreið
borð yst og innst. Plötuklæðning með plötum sem hafa
áfasta yfirborðshúð er nokkuð notuð og hafa slíkar plötur verið
fluttar til landsins úr ýmsum áttum.
TAFLA - skrá yfir fyrirtæki sem selja útveggjaklæðningar
Heiti Heimilisfang Sími Já Al St Pl Ti An
Andri hf. Ármúla 28 83066 X
Árni Jónsson & Co. hf. Laugavegi 148 11333 X
BB-byggingavörur hf. Suðurlandsbraut 4 33331 X
Börkur hf. Hjallahr. 2 Hf. 53755 X
BYKO sf. Nýbýlav. 8 Kóp 41000 X X X X
Garða-Héðinn hf. Stóriás 4-5 Hf. 52922 X
Húsasmiðjan hf. Súðavogi 3-5 84599 X X
Innkaup hf. Ægisgötu 7 22000 X X
Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 10600 X
Kjölur sf. Borgartúni 33 21490 X X
SÍS Suðurlandsbraut 32 82180 X X X
Völundur hf. Klapparstíg 1 18430 X
Töggur hf. Bíldshöfða 16 81530 X
Eftirtalin fyrirtæki seldu útveggjaklæðningar á tilboðsverði.
Iðnval hf. Bolholti 4 83155 X
ÍSAL hf. Straumsvík 52365 X
16