Upp í vindinn - 01.05.1982, Side 44
Guðni Guðnason, tæknifr. Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins
Islensk einingahús
Inngangur:
Áhugi á byggingu einingahúsa hefur fariö vaxandi á
undanförnum árum, aö sama skapi hefur umræöa og vanga-
veltur um framleiöslu þeirra aukist hjá þeim aðilum er láta
byggingarmál sig varða.
A síöasta ári gekkst Rannsóknarstofnun byggingariönaö-
arins fyrir könnun á íslenskum einingahúsum en könnun sú
beindist aðallega að byggingarkostnaði þeirra ásamt starfs-
skilyrðum einingahúsaverksmiðja hérlendis. Ennfremur hef-
ur síaukin athygli beinst að gæðum þessara húsa og hvort
þau uppfylli lágmarkskröfur reglugerða um byggingu íbúðar-
húsnæðis.
Til að fjalla um þessi mál var skipuð nefnd s.l. desember
og eiga þar fulltrúa: Húsnæðisstofnun ríkisins, Rannsókn-
arstofnun byggingariðnaðarins, stofnlána og iðnlánaxssjóðir,
Iðntæknistofnun og Samtök einingahúsaframleiðenda.
Var HR og RB einkum falið að afia gagna fyrir nefndina
oq annast úrvinnslu þeirra, þar á meðal tæknilega úttekt á
einingahúsum framleiddum á íslandi. Það sem hér fer á
eftir er úrdráttur úr skýrslu RB, íslensk einingahús, sem
væntanleg er til útgáfu bráðlega.
Framleiðsla einingahúsa:
Framleiðsla einingahúsa er mjög nýleg grein í byggingar-
iðnaði á íslandi, ef miðað er við aðrar greinar hans.
Þótt bygging húsa úr einingum hafi hafist fyrir 1950 er
það fyrst á árunum 1973-1974 sem framleiðsla þeirra er
orðin í einhverjum mæli. Forsendur fyrir aukna og fjölbreytt-
ari framleiðslu einingahúsa hafa skapast hin síðari ár vegna
breyttra byggingarhátta og nýrra viðhorfa í skipulagsmálum.
Óstöðugt verðlag og erfiðleikar húsbyggenda við fjár-
mögnun nýbygginga hafa enn fremur aukið þörfina á ódýr-
ari sérbýlishúsum og meiri framkvæmdahraða, en hér hafa
tíðkast án þess, að því fylgdi breytingar á híbýlaháttum eða
eignarformi.
Eflaust má rekja aukna eftirspurn síðustu ára jafnframt að
einhverju leyti til hinna víðtæku steypuskemmda sem í Ijós
hafa komið og til vantrúar almennings á því, að endanleg
lausn sé fengin á þeim vanda.
Leiðir því af framansögðu að framleiðsla einingahúsa í
verksmiðjum hefur vaxið á undanförnum árum í kjölfar auk-
innar eftirspurnar og þeim fyrirtækjum sem framleiða eininga-
hús fjölgað ört að sama skapi, sem sjá má á mynd 1.
44