Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2024, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.05.2024, Blaðsíða 14
14 S K I N FA X I „Við höfum verið ótrúlega heppin með þjálf- ara hjá okkur, enda er það uppistaðan í góðu íþróttastarfi,“ segir Helgi Eyleifur Þorvaldsson, formaður íþróttanefndar Ungmennafélags Reykdæla (UMFR), sem er aðildarfélag Ung- mennasambands Borgarfjarðar (UMSB). Ungmennafélagið var stofnað árið 1908 og var fyrsta ungmennafélagið í Borgarfirði. Helgi Eyleifur er alinn upp í Reykholtsdal og þekkir starfið þar vel. „Í grunninn er Ung- mennafélag Reykdæla gamaldags ungmenna- félag, við erum sem dæmi ekki enn komin með heimasíðu,“ segir Helgi, en tímatafla ungmennafélagsins er aðgengileg á heima- síðu UMSB sem félagið nýtir sér ásamt Face- book-hópi fyrir upplýsingar og myndir. „Í gegnum tíðina hefur félagið meðal ann- ars starfrækt leikstarf, skógrækt, framkomu og ræðumennsku en það hefur dofnað aðeins yfir því. Íþróttastarfið hefur verið á ágætu róli í áratugi en við tókum þá ákvörðun nýlega að fara á fullt í íþróttastarfið, meðal annars fyrir ungt fólk og fjölskyldur þess sem vilja setjast hér að,“ segir Helgi. Fjölbreytt tímatafla Umf. Reykdæla Íþróttaæfingar á vegum ungmennafélagsins vorið 2024 eru fjölbreyttar og ættu öll að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Í boði eru körfu- bolti, sund, fimleikar, blak og badminton. Alla æfingar fara fram í íþróttahúsinu á Klepp- járnsreykjum, en þar er íþróttasalur í hálfri stærð og 25 metra sundlaug. Æfingarnar eru opnar fyrir hvern sem er á svæðinu og hafa iðkendur komið hvaðanæva úr Borgarfirði á æfingar. Íþróttahúsið er við Grunnskólann á Klepp- járnsreykjum. Í grunnskólanum eru nemendur í 1.–10. bekk og koma þeir úr Skorradal, Bæjar- sveit, Lundarreykjadal, Flókadal, Reykholts- dal, Hálsasveit og Hvítársíðu. Í ár hafa verið um það bil áttatíu iðkendur í fjölbreyttu framboði íþróttagreina hjá UMFR og um 120 skráningar þar sem iðkendur eru skráðir í fleiri en eina íþrótt. Þetta er töluverð fjölgun á milli ára en skráningar hafa gjarnan verið á bilinu 50–60 og er því um tvöföldun að ræða. „Markmiðið hjá okkur núna er að fá fleiri skráningar í ungmennafélagið,“ segir Helgi. Komið til móts við foreldra Síðasta vetur ákvað íþróttanefnd að festa kaup á 30 körfuboltabúningum í mismunandi stærð- um sem henta á allan iðkendahópinn. „Fly- over Iceland og Hraunfossar Restaurant & Café greiddu fyrir búningana að mestu leyti. Við erum ótrúlega þakklát fyrir það, þetta hefði ekki verið hægt nema fyrir þennan ómetan- lega stuðning bakhjarla,“ segir Helgi. Hug- myndin með framtakinu er að losa foreldra undan því að kaupa reglulega nýja búninga með stækkandi börnum og tilheyrandi kostn- aði. Hugsað er sameiginlega um búningana. „Við höfum fengið mörg þakklætisskilaboð frá foreldrum eftir þetta framtak, en ég veit vel hversu þungur kostnaður það getur verið að hafa börn í íþróttastarfi,“ bætir Helgi við. Ungmennafélag Reykdæla: Fjölbreytt framboð íþróttastarfs Starfið hjá minni ungmenna- og íþróttafélögum byggir á einstaklingsframtaki, vilja, drifkrafti og góðum þjálfurum, segir Helgi Eyleifur Þorvaldsson. Helgi Eyleifur Þorvaldsson, formaður íþróttanefndar Umf. Reykdæla. Ráð fyrir önnur smærri ungmennafélög Helgi bendir á að starfið hjá Reykdælum byggi að stórum hluta á einstaklingsframtaki, vilja, drifkrafti og að sjálfsögðu góðum þjálfurum. „Það gerist ekki neitt nema hafa metnaðar- fulla þjálfara með,“ segir Helgi og bætir því aftur við hversu heppin þau hafi verið með framboð þjálfara á svæðinu. Helgi segir það einnig gott ráð að hafa íþróttamál ungmenna- félaga á sér reikningi. Það gefur nánari mynd af starfinu að hafa íþróttamál aðskilin frá öðrum störfum félagsins. „Þegar iðkendum fjölgar hratt fara greinarnar að standa undir sér og það gefur möguleika á að auka framboðið,“ bætir hann við. Ungmennafélagið hefur undanfarið verið duglegt að efla iðkendur sína í starfi og umbuna þeim. Til dæmis fengu allir iðkendur bol merktan ungmennafélaginu nýverið. „Þetta er gert til þess að hvetja iðkendur til að halda áfram æfingum hjá félaginu, þakka fyrir gott starf og vekja athygli á ungmennafélag- inu, það eru ekki endilega allir meðvitaðir um hvað það er nákvæmlega,“ bætir Helgi við og segir að lokum: „Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi.“

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.