Skinfaxi - 01.05.2024, Blaðsíða 42
42 S K I N FA X I
hófust svo æfingar hjá Val á Reyðarfirði, þar
sem Rafael Rökkvi þjálfar nú einnig. Borðtennis-
æfingar hafa verið hjá Þristi frá árinu 2016 und-
ir leiðsögn Kenneth Svenningsen þjálfara.
„Svo tók Andre Fonseca við og það var þá
sem ég byrjaði að aðstoða við æfingar. Árið
2021 tók ég svo alfarið við og haustið 2023
byrjaði Valur á Reyðarfirði með borðtennis-
deild, sem ég hef verið að þjálfa fyrir einnig,“
segir Rafael Rökkvi.
Hjá Þristinum er ein klukkutíma æfing í viku
og hjá Val eru tvær tveggja tíma æfingar í viku.
„Við erum svo með eina aukaæfingu á föstu-
dögum fyrir þá sem eru lengra komnir og er
hún hugsuð fyrir bæði liðin,“ segir Rafael Rök-
kvi. Börnin sem æfa eru á aldrinum 10–15 ára.
Borðtennishelgin
Æfingabúðirnar í febrúar voru hugsaðar fyrir
börn í 5. bekk og eldri. Viðburðurinn fékk
góðar undirtektir og vakti mikla ánægju.
„Það var mjög góð þátttaka á borðtennis-
helginni, en um fjórtán þátttakendur komu,
bæði krakkar sem hafa æft áður og nýir krakk-
ar sem eru nú byrjaðir að mæta á æfingar.
Þetta var mjög skemmtileg helgi og miklar
framfarir hjá öllum,“ segir Rafael Rökkvi.
Undanfarin ár hafa verið haldnar sambæri-
legar helgar hjá Þristinum undir leiðsögn
Bjarna Bjarnasonar, þjálfara frá HK, Kenneth
Svenningsen og Andre Fonseca, fyrrverandi
þjálfurum hjá Þristinum. „Síðasta vetur fengum
við Mattia Contu unglingalandsliðsþjálfara frá
BTÍ til að vera með æfingar fyrir sitthvort liðið,
en hann kom aftur til okkar þessa helgi í febrúar
og þá sameinuðust liðin, Þristur og Valur á
Reyðarfirði, og héldu námskeiðið saman.“
Þessa helgina var æfingum skipt í tvennt.
„Við vorum með æfingar fyrir alla þar sem farið
var yfir grunnskot og aðferðir til að ná stjórn á
kúlunni en svo voru aukaæfingar fyrir lengra
komna þar sem farið var í flóknari skot og meiri
líkamlegar æfingar,“ segir Rafael Rökkvi og
þakkar Borðtennissambandi Íslands fyrir hjálp-
ina og stuðninginn, en borðtennishelgin var
jafnframt liður í undirbúningi fyrir þátttöku á
Íslandsmóti unglinga á Hvolsvelli í mars.
HVAÐ ER AÐ
FRÉTTA?
„Við erum stöðugt að skoða ný tækifæri og
stækka sjóndeildarhringinn,“ segir Rafael
Rökkvi Freysson, borðtennisþjálfari hjá Ung-
mennafélaginu Þristi og Ungmennafélaginu
Val á Reyðarfirði.
Helgina 24.–25. febrúar síðastliðna fór fram
borðtennishelgi í íþróttahúsinu á Reyðarfirði
á vegum Ungmennafélagsins Þrists, sem starf-
ar í Fljótsdal, Völlum og Skriðdal, og Ung-
mennafélagsins Vals á Reyðarfirði. Helgin var
unnin í samvinnu við Borðtennissamband
Íslands (BTÍ). Þristur og Valur eru bæði aðildar-
félög Ungmenna- og íþróttasambands Aust-
urlands (UÍA).
Æfingarnar
„Ég byrjaði að æfa borðtennis hjá Þristinum
þegar ég var 12 ára gamall og fór svo að
aðstoða við þjálfun árið 2020. Það vatt svo
smám saman upp á sig og árið 2021 tók ég
við sem þjálfari á æfingum hjá Þristinum á
Egilsstöðum,“ segir Rafael Rökkvi. Nú í haust
Borðtennishelgi
á Reyðarfirði
Rafael Rökkvi hjá Ungmennafélaginu Þristi segir mikla
ánægju hafa verið með borðtennishelgi fyrir 10–15 ára.
Fremri röð f.v.: Ísak Gunnsteinn, Sandra Dögg, Tekla Tíbrá, Gunnhildur, Ísak Fannar og Hafþór
Svanur. Aftari röð f.v.: Gabríel Ísak, Svava Valrós, Gabríel Glói, Mattia Contu unglingalandsliðs-
þjálfari og Valmundur Pétur.
Rafael Rökkvi borðtennisþjálfari úrskýrir ákveðin atriði á borðtennishelginni á Reyðarfirði.